California here we come...again

sunnudagur, febrúar 26, 2006

LA style :)

Jæja þá erum við komin heim eftir fjör helgarinnar í borg englanna. Þetta var nú meiri ævintýraferðin get ég sagt ykkur. Það var hreinlega öllu til tjaldað þarna af hálfu BCG og það gert með sannkölluðum "LA style" en svona ferðir ganga hreinlega út á að "kaupa" til sín starfsmenn.

Ráðgjafabransinn í Bandaríkjunum snýst um að fá til sín gott fólk úr þessum skólum því starfsmannaveltan í bransanum er gríðarleg. Fólk stoppar stutt við, kannski 2-4 ár, og notar þetta starf sem stökkpall inn annað og varanlegra starf. BCG í LA sem sagt valdi um 12 manns eftir viðtölin sín og bauð starf. Þeir vita hins vegar ekki hvort þessir umsækjendur hafa fengið tilboð frá öðrum fyrirtækjum um starf en til að reyna að hafa "jákvæð" áhrif á val þeirra er boðið í svona ferðir þar sem öllu er tjaldað til, allt það flottasta og besta valið undir liðið og allt borgað auðvitað.

Við fórum öll fjögur héðan á föstudagskvöldið. Flugið frá San Jose flugvelli (sem er stutt frá okkur) til LA tók ekki nema 45 mínútur en heildarferðin hefur tekið svona um 4 klst. Þið vitið hvernig þetta er...það er öryggistékk og öryggistékk og öryggistékk og bið og traffík og allt þetta sem fylgir því að ferðast með flugi hér í USA. Svo er það allur farangurinn. Það fer nú ekki lítið fyrir honum þegar maður ferðast með 2 börn þótt þetta sé bara fyrir 2 daga. Ferðin gekk samt vel og var ekki erfið. Þegar við vorum komin upp á hótel hefðum við alveg getað sætt okkur við 3x meira og lengra ferðalag. Shutters on the beach (www.shuttersonthebeach.com) heitir hótelið og er staðsett á ströndinni í Santa Monica, sem sagt á besta stað í LA. Þarna tók hótelgengið hrikalega vel á móti okkur, vissi strax að við vorum hluti af BCG liðinu, allt klappað og klárt og greinilega búið að borga þeim fyrir að vinna vinnuna sína! Þar sem Atli kom með alla familíuna með sér var honum komið fyrir í einni af svítum hótelsins (hann var sá eini auðvitað af þessum sumarstarfsmönnum sem á börn..kemur það á óvart..nei). Okkur hreinlega brá þegar við löbbuðum inn á herbergið....eða íbúðina ætti ég frekar að segja. Held að hótelherbergið hafi verið stærra en íbúðin okkar hér heima en ég má til með að lýsa þessu aðeins fyrir ykkur.

Gengið var í stórt living room herbergi með sófa, skrifborði, bókahillum, hægindastólum. Þarna voru bækur, dvd-diskar, geisladiskar í græjurnar (Bang og Olafsen græjur) og risa LCD sjónvarpsskjár. Þetta herbergi átti Halldór Andri en sofanum var breytt í svefnsófa. Hann hafi svo sér klósett og skápa. Inn af þessu herbergi var stórt master svefnherbergi. Rúmið var æði og þarna var annað eins LCD sjónvarp sem við höfum út af fyrir okkur og gátum horft á úr rúminu. Master baðherbergið var svo út frá okkar svefnherbergi en þar var æðisleg sturta og risa nuddpottur þar sem hægt var að liggja og láta líða úr sér og horfa á enn eitt LCD sjónvarpið sem hékk þarna á veggnum. Á öllu herberginu var parket og hér og þar voru ofnar mottur á gólfinu. Sem sagt flottasta hótelherbergi sem við höfum komið inn á. Að auki var okkur sagt að allt væri frítt. Við máttum borða á okkur gat, panta það sem við vildum horfa á í sjónvarpinu (myndir sem verið var að sýna í bíó) og reyna bara að hafa það sem allra best. Á herberginu beið svo pakki til Atla frá BCG með einhverju dóti (flíspeysa og eitthvað meira). Þegar hjónakornin voru svo komin upp í rúm fyrsta kvöldið og farin að rífast yfir því hvaða mynd yrði fyrir valinu það kvöldið var bankað á dyrnar. Þjónn hafði verið sendur til okkar með late dinner (Atli náði ekki að mæta í dinner þetta kvöldið með liðinu þar sem við komum svo seint en liðið át á einhverjum svaka tískustað auðvitað sem heitir Geisha og er í eigu Aston Kutsher), ekta kampavín af fínustu gerð, hrúgu af sætum ljúffengum jarðaberjum, smákökur og mjólk. Við sofnuðum útbelgd með bros á vör það kvöldið.

Veðrið á laugardeginum var frábært, 25 stiga hiti og sól, og skemmti það ekki fyrir. Dagurinn hófst á því að panta það dýrasta á morgunverðarmatseðlinum í rúmið. Það sem seinna tók við voru svo limmur, Universal Studios með "in front of line pass" auðvitað svo við þyrftum ekki að standa í neinum röðum, matur, sundlaug og smá sólbað, dvdgláp og notarlegheit. Atli fór og hitti BCG liði á einhverjum veitingastaðnum þarna í Santa Monica um kvöldið en við Halldór fengum okkur auðvitað kvöldmat í rúmið, humar í kús kús beði, og rosalegustu eftirréttina sem við fundum á matseðlinum. Á bíóskjánum okkar við rúmið var svo verið að sýna Chicken Little yfir matnum! Sunnudagurinn fór svo í hvíld, sundlaug, mat, mat, mat og göngutúr meðfram ströndinni í Santa Monica. Við vorum svo kvödd um tvö leytið í dag af BCG liðinu. Lokaorðin voru þessi....við hugsum vel um starfsmenn okkar og við vonum að þið hafið fundið þá strauma! Vonandi hjálpar þessi ferð ykkur í að taka rétta ákvörðun um það hvar þið viljið vinna í sumar!

Við komum svo heim til Stanford um kvöldmatartímann í kvöld. Komin aftur á námsmannaböddséttinn og costco frystikistumatinn. Við erum þokkalega sátt við þetta óvænta fría lúxus-helgarfrí sem við áttum þarna í LA. Svona gerast þá kaupin á eyrinni hjá jöxlunum hér í Kaliforníu. Ja hérna hér, við bíðum bara eftir næsta tilboði og næsta weekend escape!

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Og það verður....LA í sumar

Hef eina góða stóra frétt fyrir ykkur. Atla var boðið starf hjá BCG (Boston Consulting Group) í LA í sumar sem hann ætlar að taka. Hann fór í viðtal nr. 2 hjá þeim á miðvikudaginn í LA og þegar hann lenti aftur í San Fran var hingt í hann og honum boðið starfið. Ég er auðvitað hrikalega stolt af honum enda ekki auðvelt að komast í þessar stöður. Þetta var eitt af þeim stöfum sem hann langaði mest í og hjá þessu fyrirtæki þannig að hann er ótrúlega ánægður með þetta. Fyrirtækið er mjög international (staðsett um heim allan og mikið af allra þjóða kvikindum á öllum skrifstofunum þeirra) og er þekkt fyrir mjög góða starfsmannastefnu. Reynt er að passa uppá að menn vinni ekki yfir sig og reyni að halda balans milli vinnu og einkalífs eins og þeir geta (en vinna í þessum bransa er ekki 40 tíma vinnuvika get ég sagt ykkur en samt ekki svo slæmt að þeir eigi mann eins og bankageirinn er hér). Fyrirtækið er rankað nr. 11 á lista yfir bestu fyrirtækin til að vinna hjá í USA.

Þeir buðu okkur hjónunum svo niður til LA yfir helgina ásamt hinum sumarstarfsmönnunum í activity og dinnera. Við erum svolítið búin að liggja yfir þessu með barnapössunarmálin og á endanum ákváðum við að fara bara öll fjögur til LA. Hefði alltaf þurft að taka Val með mér og Halldór hefði orðið vitlaus hefði hann einn verið skilinn eftir í pössun hér. Við getum spókað okkur saman eitthvað í LA og Atli mætir bara í dinnerana einn. Förum á föstudagskvöldið og komum heim seinnipartinn á sunnudaginn. Sumarið mitt er nú farið að skýrast, Ísland, LA og Palo Alto (San Fran).

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

Ferðalög, kuldi, haglaskot og drasl

Atli fór til NYC í gærkvöldi í fleiri viðtöl og er ekki væntanlegur til baka fyrr en seint annað kvöld. Enn eru nokkur viðtöl eftir hjá honum, annað viðtal í NYC í næstu viku og eitt í LA sem ég veit um. Það fer þó að styttast í að við vitum hvar hann mun vera niðurkominn í sumar. Þessi job sem hann er helst að sækjast eftir eru í Houston Texas, LA California, Sviss og London. Ef hann fær eitthvað af þessu þá eru þetta staðirnir. Nú ef hann fær ekkert af þessu þá byrjar ferlið bara aftur upp á ný, sækja um á öðrum stöðum, fleiri viðtöl o.s.frv. God, má ekki til þess hugsa!

Ég vaknaði í morgun við troðslu í rúminu þótt Atli væri ekki á svæðinu. Halldór var kominn uppí og ég hafði sofnað með Val á brjóstinu. Öllum var svo kalt að við lágum í einni hrúgu nánast ofaná hvort öðru. Skrítið hvað veðrið sveiflast. Í síðustu viku var 25 stiga hiti og sólbaðsveður og svo þetta! Það er bara hreinlega KALT í dag.

Það helsta í fréttum hér í USA er frekar skopleg frétt sem þið hafið eflaust frétt af. Varaforseti USA Dick Cheney var á kornhænuveiðum með haglabyssuna sína í Texas með einhverjum rebúblikana milla-vini sínum þegar hann heyrir þrusk fyrir aftan sig, snýr sér við og skýtur. Í ljós kom að þetta var ekki kornhæna sem hann hæfði heldur milla-vinurinn frá Texas. Hann skaut aumingja manninn í andlitið. Höglin lentu einnig í bringunni á karlinum (félaginn er að nálgast 70 árin) en talið var að hann væri ekki í lífshættu fyrr en hann fékk vægt hjartaáfall eftir "óhappið". Kom þá í ljós að eitt haglið hafði lent í hjartanu á honum. Finnst ykkur þetta ekki einhvern veginn týpískt að gerist fyrir Bush og hans félaga?

Jæja, ætla að taka til í draslinu hérna hjá mér áður en við höldum út. Íbúðin er svo lítil að þá má ekki reka við hér, þá er allt orðið í drasli! Skil ekki hvernig þetta getur orðið svona þótt maður taki til 10x á dag. Seinna í dag er mér boðið í blanket babies klúbb (einn mömmukúbburinn hér) en eins og þið sjáið er brjálað að gera í social-lífinu hér. Haha, mömmuklúbbur hér, mömmuklúbbur þar. Svo ætla ég að pína Atla til að læra sem minnst yfir helgina (en þetta er 3ja daga helgi) og gera eitthvað skemmtilegt með okkur í staðinn.

Seinna,
E

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Valentínos

Í dag er Valentínusardagurinn. Það var því ekki talað um annað í garðinum í dag en það hvernig kerlurnar ætluðu að koma mönnum sínum á óvart með því að gera þetta eða með því að gera hitt. Mér fannst hálf fyndið að sitja og hlusta á þær röfla um þessi rosalegu plön sín. Þetta er svo yfirgengilegt hjá mörgum eins og svo margt er orðið nú í dag. Þetta snýst allt saman um að kaupa, kaupa og kaupa. Auglýsingaflóðið rignir yfir mann í útvarpi, sjónvarpi og í ruslpósti. Þetta líkist brjálæðinu á jólunum. En alla vega, ég man eftir fyrsta Valentínusardeginum sem við Atli áttum hér í USA. Það var í febrúar árið 1997 í North Carolina. Ég föndraði með krökkunum sem ég var að passa þá önnina stórt hjarta sem ég fyllti af súkkulaði en auk þess keypti ég fyrir hann silkiboxeranaríur með hjartamynstri sem Atli svaf í í nokkur ár. Í ár skrifaði ég til hans sætt kort. Atli gerði þó enn betur, gaf mér kort á móti, bók (Saving fish from drowing eftir Amy Tan), SUDOKU bók (er orðin húkt á þessu sudoku - Bríet kom mér í þetta í spítalalegunni eftir gallsteinana) og fór og keypti take out (það er sko virkur dagur og námsmenn leyfa sér ekki slíkan munað nema tilefnið sé eitthvað spes). Ég hef því nóg að gera næstu vikurnar..hehe.

Annars var dagurinn hjá okkur síður en svo rómó. Atli kom heim í hálftíma, skellti pakkanum á mig, hljóp út til að kaupa mat sem hann renndi niður á met tíma og svo var hann rokinn. Allt vitlaust að gera hjá honum. Viðtöl, lærdómur, próf og ferðalög. Svo er hann hálf svefnlaus og lasinn ofaná allt saman. Vona að þessi törn fari að taka enda. Framundan er alla vega löng helgi (frídagur næsta mánudag) og byrjað er að læna upp matarboðum.

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Nokkrar myndir af strákunum

Valur í vagninum sínum, alltaf voða glaður





Halldór og Valur pósa smá fyrir mömmu





Atli og Valur út í garði í grillpartýi



Garðurinn séður frá stofuhurðinni okkar



föstudagur, febrúar 03, 2006

Hitt og þetta

Tíminn hér bókstaflega flýgur. Veit eiginlega ekki af hverju hann líður svona hrikalega hratt. Það er bara brjálað að gera í að vera heima með börnin (þótt annað sé á leikskóla nánast allan daginn)! Það þarf að mæta á alls konar samkomur (blanket babies samkomur, playdate samkomur fyrir eldri krakka, hitta mömmurnar án krakkanna o.s.frv.), halda heimilinu þolanlega hreinu, sjá um að það sé matur á borðum alla daga, fá fólk í mat og þar fram eftir götunum. Þetta tekur allt tíma og dagarnir hreinlega fljúga.

Við höfum reynt að halda okkur við upprunalegt plan okkar og reynt skreppa í dagsferðir á laugardögum (þrátt fyrir að brjálæðislega mikið sé að gera hjá mér í húsmæðrastarfinu..hahaha). Keyrðum inn í San Francisco um hádegið í blíðskaparveðri og skelltum okkur á Fisherman´s Wharf sem er eins konar göngugata meðfram höfninni (sem eru reyndar nokkrar hafnir). Við nutum veðursins og stoppuðum hér og þar til að fylgjast með áhugaverðum skemmtikröftum. Þarna voru t.d. break-dansara hópar (sem Halldóri fannst geðveikt flottir), hljómlistamenn, kjurrstyttur sem allt í einu hreyfðu sig þannig að öllum brá og málarar. Við röltum svo yfir á Pier 45 til að skoða kafbát sem þar er til sýnis (USS Pampanito). Þetta er kafbátur sem tók þátt í WWII, fór í 6 leiðangra og grandaði 6 japönskum skipum. Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessari reynslu....ég fór ofaní bátinn, stóð kjurr fyrir neðan stigann í nokkrar mínútur og flýtti mér upp og út aftur...ég fékk þokkalega innilokunarkennd. Ég gerði svo aðra tilraun og það gekk aðeins betur. Ég sá alla vega eitthvað smá af kafbátnum. En hey, þetta var illa lítið, þröngt og skelfilegt. Við erum að tala um að ég var með bakpoka á bakinu (skiptitöskuna hans Vals) og ég gat ekki snúið mér við á göngunum...þurfti að bakka. Klósettin á skiptinu voru 4 og voru þau svo lítil að þú þurftir að bakka inn á þau..rass að klósetti..menn hafa notað einhverja taktík þarna til að skeina. Skipið fannst mér lítið en í þessum ferðum sínum voru 80 hermenn sem mér finnst ótrúlegt. Skil engan veginn í því hvernig hægt var að koma svo mörgum inní bátinn en það var mjög spes að sjá þetta. Ákváðum svo að skella okkur yfir The Golden Gate Brigde (ótrúlegt mannvirki) og keyra upp til Sausalito sem er hrikalega fallegur lítill bær norðan megin við flóaminnið. Þaðan var stórskostlegt útsýni yfir hina krúttlegu stórborg San Fran.

Veðrið er búið að vera frábært frá því á föstudaginn síðastliðinn og spáin er góð fyrir vikuna. Ætli það hafi ekki verið 20 stiga hiti í dag og stuttbuxnaveður. Það var smá grillpartý í garðinum fyrir íslendingana á svæðinu á sunnudaginn og fékk Valur aðeins að taka smá þátt. Ætli hann hafi ekki verið í sólinni í svona 10 mín (var aðallega í vagninum eða í skugganum auðvitað). Þegar ég fór að baða hann um kvöldið tók ég eftir því að vinstri hliðin á honum var öll eldrauð! Skamm, skelfilega mamman búin að brenna 3ja mánaða barnið. Fékk smá sjokk en þetta var orðið gott daginn eftir. Er búin að kaupa blokk á börnin þannig að þetta kemur vonandi ekki fyrir aftur. Fyndið líka hvað gerist þegar það kemur svona gott veður. Fékk geðveika þörf til að byrja að æfa og hreyfa mig aftur. Fylgir því líklega að þurfa að fækka fötunum. Byrja í pilates á morgun til að grynnka á spikinu. Verð að fara að taka þetta alvarlega ef ég ætla að komast í einhverja version af pæjubikiní á Hawaii í spring break. Þarf að taka á því núna í 1 1/2 mánuð.