Milliafmæli VB
Valsarinn okkar er eins og hálfs árs í dag. Trúir því einhver?
Hann er algjör krúsímús, farinn að tala alveg heilan helling, farinn að leika með öllum krökkunum sjálfur í garðinum, er alltaf kyssandi og knúsandi, dasandi og syngjandi og er bara svo mikill rúsínurass. Mér finnst þetta án efa skemmtilegasti litlukrakka-aldurinn og allt sem þau gera á þessum aldri er bara það sætasta í öllum heimi.
Lágum í sundi og sólbaði alla helgina í yfir 30 stiga hita. The summer is here get ég sagt ykkur og keppast þeir hvítu við að fá smá tan á sig til að hressa smá upp á útlitið. Það helsta sem ég þarf hins vegar á að halda er KLIPPING. Hef ekki farið í klippingu síðan í lok júní 2006. Þarf að bíða með það þar til ég kem heim í byrjun júlí....tek enga sénsa með þetta lengur hér. Til að setja ykkur í mín spor, ímyndið ykkur að þið séuð að fara til tannlæknis og þið takið eftir því þegar hann fer að tala að það vantar uppí hann nokkrar tennur....restin af tönnunum er svo hálf svört. Mynduð þið hlaupa út eða þora í stólinn? Þetta er eins með hárið.
Skelli inn myndum af knutsskinnunum okkar fljótlega.
OO Ella

3 Comments:
Ella, ég ætla að láta vaða og panta á www.juut.com - þorirðu með???
Bestu,
B.
By
Fjölskyldan Barðaströnd 4, at 10:45 e.h.
Til hamingju Valur!
Hlökkum svakalega til að hitta knúsarann í sumar sem og restina af fjölskyldunni. ALLT of langt síðan við höfum hist!
Knús,
Soffa og co.
By
Nafnlaus, at 5:37 f.h.
jæja, myndirnar ekkert á leiðinni???
þessi börn vaxa svo hratt að það verður bara að setja myndir inn reglulega! Valur orðinn líkur pabba sínum á síðustu myndum. Mér finnst líka svolítill svipur með þeim frændum, Val og Jónasi Rafnar.
kv. LDH
By
Nafnlaus, at 4:13 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home