California here we come...again

föstudagur, febrúar 09, 2007

Fyrsta ballið

Hlakka alveg óendanlega mikið þegar þessi vika klárast, á hádegi á morgun. Búið að vera alveg svaka álag á alla hér þessa vikuna. Atli að skila af sér verkefnum ofan á alla skólasetuna hjá honum, ég búin að vera að skila inn verkefnum og er að fara í þetta lokapróf á morgun. Það verður eitthvað skemmtilegt gert í rigningunni á morgun.

Talandi um skemmtilegheit. Halldór er alveg að farast úr spenningi því fyrsta skólaballið hans er í kvöld...hahahahha. Já, þetta er eiginlega frekar fyndið. Sex ára á leið á disco :S. Krakkarnir eru þarna í fylgd með foreldrum, boðið upp á pizzu og jús og þrusu músík þar sem verður rokkað feitt frá 18-19:30. Minn er búinn að tilkynna mér það að það þurfi ekki að klæða sig í betri föt, hann spurði kennarann (dóóó fyrir mömmuna). Fyrir þá sem ekki vita þolir hann ekki gallabuxur og aðrar tegundir af hnepptum buxum, skyrtur og stíf föt. Hann vill bara sín þægilegu joggingföt, stuttermaboli og háskólaboli. Ég sagði þá við hann að þá fyndist stelpunum hann ekkert flottur, þær kæmu ábyggilega í kjólum. Hann svaraði um hæl og sagði að þá fengi hann frið frá þeim, þær myndu þá láta sig vera og hann gæti dansað í friði í mjúkum fötum, ekki hörðum.

Hann er alveg merkilegur drengurinn. Veit ekki alveg hvernig hann á að fara með alla þessa nýju athygli stelpnanna í skólanum. Kennarinn talaði við mig um daginn og sagði..."the girls are swarming around him, Halldor this, Halldor that" og fleira sem ég ætla ekki að hafa eftir. Ég hef nú nokkrum sinnum heyrt í honum, hrósandi þessari og hinni fyrir að vera í "fallegum fötum" með "fallega hárgreiðslu" og fleira. Hann hefur þetta frá pabba sínum. Veit hvað virkar og um að gera að byrja að æfa sig snemma :) Mínir menn eiga ekki í vandræðum með þetta og Halldór virðist ætla að vera eins og pabbi sinn. Atli er svo vinsæll hér að vinkonurnar drífa sig í heimsókn til að fá komment á nýjan fatnað, hárgreiðslu eða klippingu....þeirra menn taka nefnilega ekki eftir neinu. Þeir sem þekkja Atla hafa eflaust fengið frá honum komment eða hrós varðandi þessa hluti sem láta konum líða betur :) Held að Hildur hafi lagt mikla áherslu á þetta í uppeldinu :))

Ups, þetta er komið út í einhverja steypu hér. Hætti núna. Reyni að skella inn myndum um helgina af því sem við höfum verið að bralla undanfarið.
Eigið góða helgi.

Luv,
E

1 Comments:

  • núnú bara fyrsta ballið hjá kappanum ... líst vel á þetta :) skil hann vel í þessu með óþægilegu stífu skyrturnar og buxurnar blööö

    Það er nú soldill munur á slysó í stanford og á landspítalanum... þar er maður heppinn ef maður kemst í íslenskt tímarit sem er ekki eldra en 5 ára...
    Hvað er málið með það... Hrúgur af dönskum tímaritum frá 1986..??

    kveðja Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home