California here we come...again

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Sjúkdómsgreiningin

Fórum með Val á bráðamóttökuna í gærkvöldi. Mó vinur hans Atla í MBA náminu er læknir og kom hann hingað í gærkvöldi til að kíkja á hann. Sagði okkur að fara með hann upp á spítala sem við gerðum. Hitinn var farinn að skjótast í 40 stig og það var orðið ómögulegt að gefa honum nokkuð að drekka. Í ljós kom svæsin eyrnabólga í báðum eyrum (hann fór samt til læknis í skoðun fyrir 10 dögum, þá var hann fínn) og sama sýking var komin í augun á honum. Svo er hann að taka jaxlana sína, tveir efri jaxlarnir komnir niður en þeir neðri eru alveg að koma. Hann var búinn að naga tunguna á sér út af þessu og er kominn með sár á tunguna á báðum hliðum en það var að valda mér áhyggjum því hann var stanslaust að reka tunguna út úr sér. Er með hana eins og hundur, hangandi út öllum stundum. Hann er kominn á lyf og fer vonandi að lagast núna blessaður.

4 Comments:

  • Sæl öll. Ég vona að Valur sé á batavegi og hafi fengið almennileg lyf við eyrnabólgunni, ég hélt að hún væri eiginlega bara á Íslandi en svo er auðsjáanlega ekki. Allir á 31 á skíðum og ég passa Felix, kanaríufuglinn og fiskana, vona að þau lifi þetta af hjá mér.Kveðja til allra, mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:42 e.h.  

  • Leiðinlegt að heyra með veikindin hans Vals. Allt í einu eyrnabólga, hiti, jaxlataka og sár á tungunni... það á ekki af honum að ganga elsku kallinum. Sendi ykkur hlýjar kveðjur með von um skjótan bata hjá litla kút.
    Knús og kremj....
    Elísabet.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:11 e.h.  

  • Úff púff.. það er ekkert smá sem á lítinn mann er lagt!
    Vonum að hann jafni sig fljótt.
    Luv,
    S&co.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:33 f.h.  

  • Komið þið sæl og gleðilegt nýár.Takk fyrir sendingarnar um jólin(þessi frá Santa sló alveg í gegn.Er í stöðugri notkun.)Vona að Valur verði fljótur að hrista þetta af sér,hann er sterkur strákurinn.Myndir alltaf vel þegnar,strákarnir eru svo fljótir að stækka(og hvað þeir eru sætir,maður lifandi!)Kær kveðja Anna frænka.

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:41 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home