Jólin koma
Ég fór í próf sl. föstudag, kom heim kl. 18. Atli var búinn að finna eðal-tilboðspakka á svaka resort í Cabo San Lucas í Mexico þegar ég kom heim og skelltum við okkur á hann. Lagt var af stað kl. 6 morguninn eftir þannig að það náðist hreinlega ekki að blogga áður haldið var í hann. Þetta var jólagjöfin okkar í ár, frá mér til hans og frá honum til mín :) Fyrir utan þetta venjulega sem fjölsyldan lendir í á sínum ferðalögum var ferðin alveg æði. Ein taskan okkar (með öllu dótinu hans Vals) skilaði sér ekki fyrr en á þriðja degi, hún ákvað að kíkja fyrst til Costa Rica. Valur fékk gubbuna á fyrsta degi og tókst að smita mig og Atla. Það fóru tveir dagar í þetta vesen. Að öðru leyti áttum við frábæran tíma á rosalegasta hóteli sem ég hef gist á. Hitastigið var perfecto, 25-27 stig, heiðskírt og smá hafgola. Gerist ekki betra og fínt í 6 daga. Reyni að setja inn nokkrar myndir fyrir ykkur til að koma ykkur í jólafílinginn sem við búum við.
Dagurinn í dag fer í tiltekt, kaupa jóltré og jólaskraut, gjafir fyrir börnin, renna eftir hamborgarahryggnum, matarinnkaup, möndlugjöfin og já bara nóg að snúast í dag og um að gera að fara bara að byrja.
GLEÐILEG JÓL ÖLL SÖMUL og hafið það hrikalega gott í öllu átinu.
Luv,
The Knutsson's

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home