California here we come...again

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Glæpasaga

Ég skellti mér út í búð í gærmorgun um kl. 11 en lenti í traffík og það hér nánast fyrir framan kampusinn! Stórum hluta aðalgötunnar sem liggur hér fyrir framan hafði verið lokað á kafla sem er ca 4 mínútu í burtu. Ég þurfti að fara svaka krókaleið til að komast í búðina. Þegar þangað var komið gerði ég það sem ég þurfti að gera og hélt heim á leið. Þá kom það í ljós að gatan í átt heim var líka lokuð. Það var eitthvað undarlegt að gerast þarna. Ég sá engan árekstur eða neytt slys. Af forvitninni einni keyrði ég eins langt og ég gat að lokunarmerkinu til að athuga hvað hefði komið fyrir...er það ekki alveg ég :). Nei, sá ekkert nema gommu af löggubílum, slökkvibílum og svo sá ég hóp grænklæddra manna í fjarska. Gat þetta verið herinn og hér í hinni friðsælu Palo Alto/Stanford? Krókaleiðin sem ég þurfti að fara til að komast heim var umsetin lögreglumönnum og löggubílum. Í 23 fréttunum í gærkvöldi kom svo útskýringin á öllu þessu tilstandi. Kl. 9 um morguninn hafði hvítur maður gengið inní keiluhöllina í bænum og skotið þar annan mann í hálsinn. Skotmaðurinn var ófundinn kl. 23 í gærkvöldi en lögreglan og sérsveitin (mennirnir í grænuklæðinum) leituðu hans stíft. Fórnalambið lifði skotárásina af en var í aðgerð í allan gærdag.

Þetta sem sagt gerðist í næsta húsi, sama dag og Atli fór til Europe í viku. Ég var ein hér með strákana og stóð eiginlega ekki á sama. Ég tékkaði glugga og hurðir 4 sinnum áður en ég fór að sofa, fór með símann upp í rúm og hafði kveikt ljós í íbúðinni til að fæla bófann í burtu ef ég yrði svo óheppin að hann veldi mitt hús til að brjótast inn í :) Hann lét hins vegar ekki sjá sig hér í nótt og vona ég að þeir hafi fundið hann.

Bý ég í glæpahverfi? Ég bara spyr.

1 Comments:

  • Hae. Tu vedur ad anda gegnum nefid og vona ad um personulegt mal hafi verid ad raeda.Vildi ad tu hefir getad komid. Eg er ad drukkna i ollum tessum husum.Buin ad skoda 10 og a eftir 7.Vona ad allt verdi i lagi hja ykkur Bless mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:51 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home