California here we come...again

þriðjudagur, september 12, 2006

Það nýjasta

Fórum til Carmel og Monterey um helgina í boði tengdó. Geggjað að koma þangað, mjög falleg þorp við ströndina sunnan við San Fran. Skelltum okkur á þetta geggjaða sædýrasafn á svæðinu (sem við heimsóttum í vor) og bara tjilluðum og borðuðum góðan mat. Það er ótrúlegt hvað það er mikill hitamunur á svæðinu hér og þarna við sjóinn. Tekur okkur 1,5 tíma að keyra þetta og það munar kannski 15 gráðum, jafnvel 20. Einkennilegt. Hitinn hér í dag er alveg svakalegur. Atli stendur úti með slönguna og er að úða á krakkana sem eru úti að leika. Það er varla líft úti. Það hefur svo verið skipulögð hópferð í sundlaugina hjá Espe seinnipartinn til að kæla liðið niður.

Annars bara allt gott. Bíðum mjög spennt eftir kvöldinu í kvöld. Við erum ein af þeim sem erum sest fyrir framan kassann fimm mínútur í níu og tilbúin fyrir Rockstar. Ég svei mér held að Magni eigi eftir að hafa þetta. Mér finnst hann besti söngvarinn af þessum 4 sem eftir eru en mér finnst mikið vanta uppá sviðsframkomuna hjá honum. Hann er alltaf eins drengurinn, mér finnst það orðið pínu pínlegt. Það er alltaf skemmtun að horfa á hitt liðið performa, það kann þetta. Magni þarf smá hjálp með þennan hluta. Sjáum hvað setur í kvöld.....úff ég iða alveg hér í sófanum af spenningi....eru fleiri svona?

Læt fylgja með nokkrar myndir frá helginni.
Luv,
E

Í matarboði hjá Jeab og Vihn (frá Tælandi) með frönsku pari áður en haldið var í ferðina

Halldór að pota í sea cucumber

Týndi tvíburabróðirinn loksins fundinn!

Settið í Monterey
Val Pal að spóka sig um

Gaurarnir að leika

4 Comments:

  • Ég fylgist með Magna, en legg það þó hvorki á mig að vaka yfir þessu né að kjósa. Er meira að fylgjast með endursýningunum. Magni er góður en þó pínu (reyndar massa) sveitó. Mjög fyndið að fylgjast líka með því hvað hann er að reyna að poppa sig upp, t.d. er hann farinn að performa með maskara núna. Ég veðja á Toby Rand!

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:03 f.h.  

  • Með maskara! Hvar heyrðir þú það...eða sást það kannski? Já, hann er voða sveitó, það er rétta orðið. Ekkert show í gangi hjá honum, hann hefur ekkert þróast í því einhvern veginn eins og t.d. Toby. Toby hefur komið sterkur inn undanfarnar vikur. Sjáum hvað gerist í kvöld!

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:12 f.h.  

  • Gvööð er gaurinn farinn að maskara sig!! Nú verður ekki aftur snúið fyrir hann því eins og allar konur vita (sem maskara sig) er ómögulegt að hætta þeirri iðju once u start:-) Held reyndar að flestir Íslendingar muni virka ansi "sveitó" innan um lið eins það sem er í Rockstar! Frekar´"lifað"!
    Við fylgjumst sko líka með Magna á þessu heimili. Bíð ekkert smá spennt eftir kvöldinu. Hef stundum náð að kjósa þegr ég er að fara í morgunflug en annars sofna ég því miður alltof oft yfir þessu... t.g.f reruns! En er staðráðin í að vaka yfir þessu í kvöld. Sammála með Toby, vona að hann vinni þetta en held samt að Lukas hafi þetta. Hann passar þessum útbrunnu rokkurum best.
    KV, T9

    GO MAGNI!

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:03 e.h.  

  • Mér finnst Magni krútt.

    Ég er einmitt að horfa á þetta núna og er að vona að Magni vinni EKKI! Finnst hann bara ekki bestur í þetta, á bara að meika það on his own laus við þessa sukkara (ljótu kallana).
    E

    By Blogger Erla, at 4:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home