Frá LA
Það er kannski orðið tímabært að koma með smá blogg. Hef ekkert skrifað í rúma 2 mánuði og hefur mikið gerst á þessum tíma. Ég og strákarnir skelltum okkur t.d. í rúmlega 5 vikna frí til Íslands þar sem ýmislegt var brallað. Veðrið var ekki alveg að gera sig fyrir okkur en það var gaman að hitta vini og vandamenn aftur. Við náðum samt eiginlega ekki að hitta alla sem við ætluðum að hitta og heimsækja en þannig er það bara þegar maður er einn að þvælast með 2 krakka gorma. Náði samt að fara á eitt djamm með Gallupsaumó, út að borða með Garðabæjarhópnum auk þess sem ég náði einum saumó með þeim líka, fara í bústaðinn með mömmu og pabba, hitta Junkó og Kobba, liggja í sundi með strákana, heimsækja þau oft í Lundi, hitta vini yfir hádegismat, kaffi og kvöldmat, heimsækja ættingja í bústað og fara í spa á Nordica svo eitthvað sé nefnt. Halldór Andri skemmti sér líka konunglega á Fróni, nóg að gera hjá honum á hverjum degi. Hann fór í Heilsuskóla, á fótboltanámskeið og á sundnámskeið. Lék við Önnu Maríu sína og Jónas frænda, fór í Húsdýragarðinn tvisvar, í annað skiptið til að hitta Mána vin sinn og í hitt skiptið til aðleika við Gallup afkvæmisbörn. Fór með ömmu sinni Hildi í hvalaskoðun, skellti sér í bústaðinn með hinu ömmu/afa settinu og svona má lengi telja. Hann var samt farinn að hlakka til að fara aftur út að hitta pabba sinn og var gott að sjá Atla aftur á flugvellinum í San Fran þar sem hann tók á móti okkur eftir maraþonflugið mikla. Flaug sem sagt ein með gormana frá Íslandi til San Fran (9tíma flug) í pakkfullri vél og var ekki með auka sæti fyrir Val. Að auki var þjónustan um borð með því ömurlegasta sem ég hef nokkuð tíman lent í í flugi. Það endaði með að ég bað flugfreyjuna sem var að þjónusta okkur þarna um að sækja fyrir mig aðra freyju til að tala við þannig að það kannski segir sína sögu....
Alla vega. Við gistum eina nótt í San Fran og fórum svo með flugi til LA morguninn eftir þar sem við ætlum að vera til 19. ágúst með Atla áður en við höldum heim á leið á Stanford kampusinn. Hitabyglgjan sem hér hafði verið að gera mönnum lífið leitt (og drepið um 100 manns) var yfirstaðin þegar við komum og var okkur mikið létt við það. Kominn þessi perfekt sumarhiti sem hér á að vera með sinni volgu hafgolu þannig að maður getur verið lítið klæddur úti án þess að vera heitt né kalt. Bara akkúrat svona perfekt hitastig. Við erum búin að gera hitt og þetta síðan við komum. Skelltum okkur á ströndina í Santa Monica, heimsóttum rosalegan botanical garð í Pasadena sem var æðislegt að sjá, rölta um svæðið og fara í garða hér í kring með krakkana, fórum í grillveislu hjá einum partnernum í vinnunni hjá Atla sem býr á Manhattan beach í 4 milljón dollara húsi (og við fengum sko guieded tour um húsið!). Ég fór með strákana á Getty safnið sem var mjög gaman og í gær skelltum við okkur svo í Wild life dýragarð nálægt San Diego. Í þessum skrifuðu erum við að gera okkur klár fyrir ströndina á Malibu þar sem við ætlum að spóka okkur um í dag. Sem sagt voða nóg að gera.
Læt þetta duga frá okkur í bili.

4 Comments:
Hæ elskurnar!
Var einmitt að vona að eitthvað færi að koma á bloggið!
Gott að heyra að flugferðin hafi gengið svona vel og freyjurnar látið ykkur líða svona líka frábærlega á leiðinni á þessu stutta flugi..... hvað var í gangi?? Greinilega ekki réttu freyjurnar um borð!
Mikið væri nú annars ljúft að hafa ykkur hérna núna þegar maður er loks komin í langþráð sumarfrí (frá og með deginum í dag, jibbí!)en ég get ímyndað mér að ykkur hafi öllum þótt gott að hittast aftur og gott að heyra að það sé nóg að gera hjá ykkur í LA.
Enjoy life!
Knús, S & co
By
Nafnlaus, at 2:25 e.h.
Blessuð. Þarf nú eiginlega að segja þér frá þessari ferð. Stelpan sem var með minn gang var hreint út sagt desaster. Reyndi að muna nafnið á henni einmitt fyrir þig en gleymdi því alltaf jafn óðum og man það sem sagt ekki núna. Hún var ömurleg. Vélin var pakk full þannig að það var mikið að gera hjá þeim en fyrr má nú rota en dauðrota. Ég komst einu sinni á klóið eftir að hafa náð í skottið á annarri freyju því þessi hafði sko ekki tíma til að halda á VB fyrir mig meðan ég færi. Hún gat ekki reddað mér mat fyrir VB því hún var svo sein að allar hinar freyjurnar voru búnar að taka aukamatinn og dreifa honum á annað lið, hún gat ekki reddað mér blýjanti til að fylla út USA pappírana, hún gat ekki tekið ruslið fyrir mig eftir matinn svo HAA kæmist á klóið og nb. ég sit með ungabarn í fanginu og get ekki hreyft mig. Þetta var allt svona hjá manneskjunni. Segi þér betur frá þessu síðar. Hafðu það gott í fríinu. Ætlaðir þú ekki að skella þér til Köben? Biðjum að heilsa, heyrumst fljótlega.
By
Nafnlaus, at 9:29 e.h.
Hæ, vildi bara segja að okkur Veru fannst æðislegt að fá ykkur Val í heimsókn til okkar og svo var gallupsaumódjammið auðvitað frábært! Ertu búin að sjá myndir/vídeó frá því....? Úff, totally eclipse of the heart var alveg met hehe!
Hefði viljað hitta þig og þína meira, en svona er þetta bara stundum... meira næst!
Luv,
Erla og kó.
By
Erla, at 12:00 e.h.
Blessuð Erla,
Jú, fékk myndirnar hennar Betu H á diski og er búin að stúdera þær. Hef ekki séð neitt video....er ekki viss hvort ég vilji eitthvað sjá það!!! Já, við vorum að vonast til að ná afmælinu hennar Veru áður en við færum svo við næðum að hitta ykkur aftur en við vorum víst ekki svo heppin. Biðjum að heilsa.
By
Nafnlaus, at 5:59 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home