Frændi minn hann Jónatan
Jónatan Helgi Rafnsson
fæddur: 300887, dáinn: 010506
Útför Jónatans Helga frænda míns var í dag en hann var einungis 18 ára þegar hann lést. Útförin var víst afskaplega falleg og margmenn.
Jónatan féll fram af svölum á 4 hæð á hóteli sínu á Kanarí þar sem hann var í fríi með kærustu sinni. Hann hlaut mörg beinbrot og mikla höfuðáverka en svo virtist þó sem heilinn hefði sloppið ótrúlega vel miðað við fallið. Eftir langa aðgerð á sjúkrahúsinu á Kanarí var honum haldið sofandi á meðan hann næði sér og hann kældur til að minnka bólguna í heila. Í kjöflarið fékk hann lungnabólgu, sem er vanalegt að fólk fái vegna svona kælingar. Lungabólgan sem hann fékk var hins vegar illviðráðanleg en Jónatan barðist hetjulega við hana framan af. Hann lést 1. maí sl. eða rétt um mánuði eftir slysið.
Foreldrar hans fóru til Kanarí nokkrum klukkutímum eftir slysið en til að komast þangað sem fyrst þurftu þau að leggja í flókna og dýra ferð með viðkomu í nokkrum löndum. Þegar út var komið leigðu þau hús og voru í stöðugu símasambandi heim. Eftir lát Jónatans var ekki útséð með flug heim með kistuna fyrr en um miðjan maí mánuð og ekki vildu þau skilja hann eftir einan á Kanarí. Það varð úr að föðurbræðrum Jónatans tókst að leigja fyrir þau flugvél sem sótti þau og kom þeim öllum til Íslands til að hægt væri að sameina fjölskylduna sem fyrst á þessum erfiða tíma. Heima biðu tveir bræður Jónatans, Palli 22 ára og Snorri 10 ára, sem þurftu á foreldrum sínum að halda. Kostnaðurinn sem þessu slysi hefur fylgt er mikill og hleypur á nokkrum milljónum. Þau eru líklega ekkert farin að hugsa um þessa hluti ennþá, hafa úr nógu að vinna núna þegar þau eru loks komin heim. Kaldur raunveruleikinn mun þó skella á fyrr en síðar og þessa reikninga þarf að borga. Söfnunarreikningur var stofnaður í Sparisjóðnum handa þeim til að létta á byrði þeirra. Fólk hefur verið mjög örlátt og skilningsríkt og margir hafa gefið í söfnunina. Vil ég hjálpa til og benda á þennan söfnunarreikning og biðja þá sem eitthvað geta gefið, hversu lítið sem það er, að gera það. Margt smátt safnast jú saman.
Reikningsnúmer 1135-05-802200
Kt: 100160-7149
Minning Jónatans:
Jónatan bjó með fjölskyldu sinni framan af í Vestmannaeyjum. Þau fluttu á Álftanesið fyrir nokkrum árum en eftir það fór ég að hitta fjölskylduna mun meira og þar á meðal Jónatan. Ekki löngu eftir að þau komu í bæinn gerði Jónatan mér stóran greiða og var þjónn hjá mér í brúðkaupsveislunni minni þar sem hann sá til þess að glös gesta væru full af freyðivíni. Hann gerði þetta með glöðu geði og bros á vör. Ég reyndar man ekki eftir honum öðruvísi en í góðu skapi og helst brosandi. Jónatan var mjög handlaginn og lágu alls kyns tækja, tölvu, rafmagns og snúrumál afskapelga vel fyrir honum. Þegar ég hugsa um það þá var hann oftast fyrir framan tölvuna þegar ég heimsótti þau í Vesturtúnið ef hann var heima það er að segja. Ég minnist þess einnig í einni heimsókninni að pabbi Jónatans var að monta sig af honum. Jónatan var þá farinn að fara með pabba sínum, sem er rafvirki, í vinnuna að hjálpa til. Þar var Jónatan oft kominn í að vinna flókin rafmangs- eða tölvumál og þekkti þetta víst oft betur en rafvirkjarnir á svæðinu. Jónatan var svo nýlega farinn að vinna hjá rafvirkjafyrirtæki í Hafnarfirði og eftir því sem ég best veit líkaði honum vinnan mjög vel. Ég hitti Jónatan síðast sl. september/október þegar hann kom í heimsókn með mömmu sinni á Hegranesið. Meðferðis hafði hann hana Bínu sína (hundur sem hann bjargaði frá illri meðferð fyrri eiganda) og ræddum við um hvað hún hefði tekið miklum breytingum frá því hann tók hana að sér, en hundurinn var orðinn allt annar frá því ég sá hann fyrst og augljóst að hugsað væri vel um hana.
Kæri frændi. Ég kveð þig að sinni.
Sofðu rótt.
Elsku Binna, Rabbi, Palli og Snorri. Missir ykkar er mikill. Megi allir Guðs englar vaka yfir ykkur og veita ykkur styrk í þessari miklu sorg.
Sofðu rótt.
Elsku Binna, Rabbi, Palli og Snorri. Missir ykkar er mikill. Megi allir Guðs englar vaka yfir ykkur og veita ykkur styrk í þessari miklu sorg.


2 Comments:
Elsku Ella mín, mikið er þetta fallega skrifað hjá þér. Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra sem eigið um sárt að binda eftir fráfall ykkar kæra Jónatans. Við löggðum inn á reikningin á dögunum upphæð sem er þó eflaust bara örlítið brot af heildinni en margt smátt gerir eitt stórt og hvet ég því alla sem mögulega geta, að gera slíkt hið sama.
Kv,
Soffa, Jói og Dísa
By
Nafnlaus, at 7:46 f.h.
Tek undir það sem Soffa segir og hvet alla til að leggja inn, kveðja asa
By
Nafnlaus, at 12:49 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home