OC og Palm Springs
Komum í höllina í Palm Springs í gær eftir að hafa verið 2 nætur í OC. Pínu skrýtið að koma aftur til OC. Tókum smá bíltúr um svæðið og sýndum Halldóri, hann mundi ekki eftir neinu! Ekki eftir húsinu okkar, ekki eftir leikskólanum né Laguna Beach ströndinni sem við vorum voða mikið á. Undarlegt hvað hlutirnir eru fljótir að gleymast hjá svona litlum gaurum. Fyrir honum er ábyggilega heil eilífð síðan við bjuggum þarna, en við fluttum þaðan fyrir rúmu ári. Mest vorum við hjá Oddný og Pálma sem unnu með Atla hjá Össuri (gistum þar). Ætlaði að heimsækja Aline vinkonu mína en náði ekki í hana fyrr en í gær. Við erum því að spá í að fara aftur til OC eftir dvölina hér til að sjá framan í þau.
En aftur að höllinni. Þetta hús sem við leigðum hér er hreint út sagt stórkostlegt. Verst að geta ekki sett inn myndir til að sýna ykkur þetta. Hér er allt til alls, einkasundlaug og pottur í garðinum, sól og gott veður. Við erum voða sæl með þetta hér. Eina sem hefur skyggt á þetta hjá okkur er að Halldór veiktist á sunnudaginn, fékk gubbuna og rosa hita. Hann er enn hálf slappur, var enn með 38 stiga hita í dag. Hann er voðalega súr yfir að komast ekki laugina, hann er ekki lítið búinn að bíða eftir þessu fríi og að komast í sund. Vonandi verður þetta búið hjá honum á morgun.
Læt ykkur vita með framhaldið seinna.
E

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home