Hitt og þetta
Tíminn hér bókstaflega flýgur. Veit eiginlega ekki af hverju hann líður svona hrikalega hratt. Það er bara brjálað að gera í að vera heima með börnin (þótt annað sé á leikskóla nánast allan daginn)! Það þarf að mæta á alls konar samkomur (blanket babies samkomur, playdate samkomur fyrir eldri krakka, hitta mömmurnar án krakkanna o.s.frv.), halda heimilinu þolanlega hreinu, sjá um að það sé matur á borðum alla daga, fá fólk í mat og þar fram eftir götunum. Þetta tekur allt tíma og dagarnir hreinlega fljúga.
Við höfum reynt að halda okkur við upprunalegt plan okkar og reynt skreppa í dagsferðir á laugardögum (þrátt fyrir að brjálæðislega mikið sé að gera hjá mér í húsmæðrastarfinu..hahaha). Keyrðum inn í San Francisco um hádegið í blíðskaparveðri og skelltum okkur á Fisherman´s Wharf sem er eins konar göngugata meðfram höfninni (sem eru reyndar nokkrar hafnir). Við nutum veðursins og stoppuðum hér og þar til að fylgjast með áhugaverðum skemmtikröftum. Þarna voru t.d. break-dansara hópar (sem Halldóri fannst geðveikt flottir), hljómlistamenn, kjurrstyttur sem allt í einu hreyfðu sig þannig að öllum brá og málarar. Við röltum svo yfir á Pier 45 til að skoða kafbát sem þar er til sýnis (USS Pampanito). Þetta er kafbátur sem tók þátt í WWII, fór í 6 leiðangra og grandaði 6 japönskum skipum. Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessari reynslu....ég fór ofaní bátinn, stóð kjurr fyrir neðan stigann í nokkrar mínútur og flýtti mér upp og út aftur...ég fékk þokkalega innilokunarkennd. Ég gerði svo aðra tilraun og það gekk aðeins betur. Ég sá alla vega eitthvað smá af kafbátnum. En hey, þetta var illa lítið, þröngt og skelfilegt. Við erum að tala um að ég var með bakpoka á bakinu (skiptitöskuna hans Vals) og ég gat ekki snúið mér við á göngunum...þurfti að bakka. Klósettin á skiptinu voru 4 og voru þau svo lítil að þú þurftir að bakka inn á þau..rass að klósetti..menn hafa notað einhverja taktík þarna til að skeina. Skipið fannst mér lítið en í þessum ferðum sínum voru 80 hermenn sem mér finnst ótrúlegt. Skil engan veginn í því hvernig hægt var að koma svo mörgum inní bátinn en það var mjög spes að sjá þetta. Ákváðum svo að skella okkur yfir The Golden Gate Brigde (ótrúlegt mannvirki) og keyra upp til Sausalito sem er hrikalega fallegur lítill bær norðan megin við flóaminnið. Þaðan var stórskostlegt útsýni yfir hina krúttlegu stórborg San Fran.
Veðrið er búið að vera frábært frá því á föstudaginn síðastliðinn og spáin er góð fyrir vikuna. Ætli það hafi ekki verið 20 stiga hiti í dag og stuttbuxnaveður. Það var smá grillpartý í garðinum fyrir íslendingana á svæðinu á sunnudaginn og fékk Valur aðeins að taka smá þátt. Ætli hann hafi ekki verið í sólinni í svona 10 mín (var aðallega í vagninum eða í skugganum auðvitað). Þegar ég fór að baða hann um kvöldið tók ég eftir því að vinstri hliðin á honum var öll eldrauð! Skamm, skelfilega mamman búin að brenna 3ja mánaða barnið. Fékk smá sjokk en þetta var orðið gott daginn eftir. Er búin að kaupa blokk á börnin þannig að þetta kemur vonandi ekki fyrir aftur. Fyndið líka hvað gerist þegar það kemur svona gott veður. Fékk geðveika þörf til að byrja að æfa og hreyfa mig aftur. Fylgir því líklega að þurfa að fækka fötunum. Byrja í pilates á morgun til að grynnka á spikinu. Verð að fara að taka þetta alvarlega ef ég ætla að komast í einhverja version af pæjubikiní á Hawaii í spring break. Þarf að taka á því núna í 1 1/2 mánuð.

4 Comments:
Mæli með rope yoga... það svínvirkar fyrir blessuðu bumbuna! Annars er gott að heyra að allt sé í góðum gír hjá ykkur. Allt crazy að gera hjá okkur eins og vanalega já og nú erum við líka að fara að flytja!! Verð að fara að heyra í þér darling, Ása
By
Nafnlaus, at 5:11 f.h.
Gaman að það sé svona mikið að gera, og frábært hvað þið eruð duglega að skoða í kringum ykkur!!!
By
Nafnlaus, at 5:31 f.h.
Sé að þú ert á góðri leið að lenda bak við eldavélina eins og Guðni Ágússon sagði. Gestur læknir hringdi og sagði að það eina sem var ath. var sykur og hann var í lagi. Bað að heilsa ykkur og vonaði að allt væri í lagi. Bless mamma
By
Nafnlaus, at 2:56 f.h.
Þetta hefur aldeilis verið skemmtileg helgi hjá ykkur. Frábært hvað þið erum mikið á fartinni. Ja, ekki hefði ég farið ofan í þennan kafbát svo mikið er víst! Líst vel á leikfimiplönin er ekki dómbær á pilates, en þú finnur örugglega e-ð við þitt hæfi. Allt gott að frétta héðan, Ég er að fara til Glasgow með deildinni minni í byrjun mars, í helgarferð. Guðjón fer til Köben í vinnuferð í 10 daga, vonandi hafa öldurnar lægst aðeins þar þegar þar að kemur. Ég hringi bráðum,
þín Hildur
By
Nafnlaus, at 12:06 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home