California here we come...again

laugardagur, janúar 07, 2006

Helgin

Helgin fór vel af stað. Föstudagskvöldið fór í pössun. Pössuðum Ingibjörgu (5 ára) og Ingvar Atla (um 3ja) fyrir kunningja okkar í Stanford . Halldór og krakkarnir léku til að verða tíu um kvöldið en þá var liðinu komið í rúmið. Á laugardagsmorguninn kom Peter vinur Atla úr MBA prógraminu til okkar í morgunmat. Peter er hinn besti drengur, er frá London og var fréttastjóri hjá BBC í nokkur ár þegar hann ákvað að söðla um og skella sér aftur í skóla.

Við Atli ákváðum að þegar við kæmum hingað út saman, ætluðum við að ferðast og skoða okkur um eins mikið og við gætum. Planið er að reyna að fara eitthvað um hverja helgi, annan daginn. Planið fyrir þessa helgi var að skella okkur til Monterey og fara á hið fræga sædýrasafn þar í bæ.
Eftir morgunmatinn var því lagt í fyrstu ferðina á nýja jepplingnum. Það tók rúma 1,5 klst. að keyra til Monterey sem er afar fallegur bær við ströndina suður af SanFran. Það er talað um að þessi bær sé einn sá fegursti í Californíu og fallegur var hann. Íbúar Monterey eru um 30 þúsund en bærinn ber þess sterk merki að vera reistur af Spánverjum og Mexikönum. Margar byggingar frá tímum Spánverja og Mexikana í Kaliforníu hefa verið endurgerðar í bænum. Sjávarlífið í kringum þennan bæ er víst einstakt og verulega fjörbreytilegt. Frá ströndinni og við höfnina er t.d. hægt að spotta sjó-otra, seli, sæljón, fílaseli (elephant seals), höfrunga og hvali. En við höfðum lítinn tíma til að skoða okkur um í bænum þar sem leiðinni var heitið á sædýrasafnið.

Þetta ótrúlega sædýrasafn var frábært en þar sáum við alls kyns sjávarkvikindi, allt frá hægfara stjörnufiskum (starfish) og slímugum sjóormum upp í mörgæsir og hákarla. Safnið var heljarstórt á þremur hæðum og er meðaltíminn sem fólk tekur sér í að fara þarna í gegn um 3 klst. Þarna var nýtt marglyttusafn sem var hreint ótrúlegt. Þarna voru líka grunnar handlaugar með kröbbum, sniglum, skötum og einhverjum dýrum sem ég kann ekki nöfnum að nefna, sem mátti koma við og í sumum tilfellum halda á. Halldóri fannst þetta ógeðslegt og þorði ekki að dýfa puttunum í þetta en Atli prófaði. Hann dýfði hendinni einu sinni svo hranalega ofaná eina skötuna að hún gusaði á hann vatni með sporðinum....hann hélt sér frá handlaugunum eftir það, honum brá svo! En alla vega, þetta var góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna og mæli ég með þessum stað fyrir verðandi Kaliforníuferðalanga (þá sem ætla að heimsækja okkur!).

Í gær (sunnudag) heimsóttum við svo hjón og tvö börn þeirra sem búa hinum meginn við flóann. Við hittum þau í IKEA (of all places) þegar við vorum nýkomin út og skiptumst á símanúmerum. Þau hringdu svo í okkur fyrir helgi og buðu okkur í kaffi til sín. Sátum og spjölluðum við þau í um 2 tíma í gær og var bara mjög fínt.

Að lokum ætla ég að segja ykkur frá því að við erum búin að finna nýjan skóla fyrir Halldór. Þetta er lítill Montessori skóli hér rétt hjá okkur, rekinn af fólki ættuðu frá Sri Lanka http://www.pamontessori.com/ og byrjar Halldór þar á morgun. Hann verður sem sagt í þessum skóla þar til út júní og byrjar aftur í Escondido Elementary í lok ágúst. Þetta er allt að koma!

Kveðja í bili.

7 Comments:

  • Sæl Ella, og herrarnir líka. það er greinilega líf og fjör hjá ykkur. Það er hérna líka, en ég fékk litla tröllastelpu í afmælisgjöf í gærkvöldi, það var ekki búið að vigta og mæla endanlega þegar Rúnar hringdi en þau reiknuðu með 22+. (Edda var sett af stað í gærmorgun og endaði með bráðakeisara um kl.7 í gærkv.)
    Kveðja Binna

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:08 f.h.  

  • Já ég fékk sendar myndir frá Rúnari áðan, flott og stór stelpa...held hún hafi endað í 19 mörkum.

    By Blogger Ella, at 6:32 e.h.  

  • Ég er alltaf að reyna að senda þér línu en þetta virðist aldrei fara í gegn. Prófa núna

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:12 f.h.  

  • Svei mér þá ég held að þetta hafi farið. Vona að Halldóri Andra gangi vel í nýja skólanum. Billi hringdi frá Bankok í morgun og er alsæll. Kveðja, mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:15 f.h.  

  • Það eiga greinilega fleyri en ég í vandræðum með að koma til þín línu.Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu .Gaman að fylgjast með ykkur vona að allt gangi vel.Kveðja; Anna frænka.

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:36 e.h.  

  • Þetta er kannski hálf ruglingslegt en þegar maður skrifar comment er texti fyrir neðan sem segir choose an identity - þar getur maður valið um blogger, other og anonymous. Mamma, þú verður að velja other or anonymous því þú ert ekki blogger. Þá sleppirðu við að skrifa inn username og password.

    By Blogger Ella, at 10:37 e.h.  

  • Jæja, nú skulum við sjá hvort þetta fer í gegn, en ég hef líka átt í vandræðum með kommentin - gaman að fá myndir, sendu okkur nú myndir líka af garðinum hjá ykkur og nánasta umhverfi. Knús frá Hildi ömmu

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:30 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home