California here we come...again

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Og afmæli var það

Ó mæ god, ó mæ god, ó mæ god. Já, við vorum að koma heim úr fjögra ára afmælisveislu aldarinnar! Já, ég á ekki til orð til að lýsa þessu fyrir ykkur.

Partýið byrjaði kl. hálf sjö og stó til níu. Þau höfðu leigt einn af þessum stöðum sem ég skrifaði um hér um daginn nema þá að þau leigðu ekki eitt herbergi og fengu afnot af leiksvæðinu heldur leigðu þau allan staðinn, þ.e. höfðu allt út af fyrir sig og sína veislu. Þarna voru líklega um 120 manns. Þetta byrjaði með hlaðborði (salöt, kjúllaréttir, pizzur, spagettíréttir og fleira). Eftir það fóru krakkarnir að leika sér á leiksvæðinu (sem er svona eins og krakkaland á Smáratorgi og í Kringlunni) og það flugu beisiklí gjafir til krakkanna úr loftinu allan tímann. Alls konar skrýtnir skór, uppblásin hljóðfæri og þess háttar. Á svæðið mætti svo DORA (úr Dora the explorer) og gaf fleiri gjafir til gestanna, lét taka myndir af sér með krökkunum og vakti hún verulega kátínu. Svo var kökuveisla fyrir allt liðið. Það var þvílíkt hlaðborð af kökum get ég sagt ykkur. Og afmæliskakan sjálf.....já, ég bara hrökk í kút þegar ég sá hana, hún var hjúmangos Curious Goeorge kaka. Í kökuveislunni fengu krakkarnir svo kveðjugjafirnar sínar sem var risa hattur hlaðinn af dóti. Ég átti í mesta basli við að drösla Halldóri heim eftir að veislunni lauk með hlaðnar hendur af kveðjugjöfum. Á leiðinni út var mér litið á einn vegginn þarna sem var þakinn hillum upp í loft. Út úr hillunum flæddu svo gjafirnar, ég er að segja ykkur að þetta var meira en það sem maður sér í kringum jólatré hjá fjölskyldu með 3 börn! Já þetta var svei mér þá upplifun, at least a $1300 dollar birthday for a four year old! Aline hlóg að mér allan tímann. Ég sat bara þarna og gapti undrandi. Spáið í að eiga svona mikla peninga að maður þurfi hreinlega að rembast við að eyða þeim. Já, Aline sagði mér að þetta væri alls ekki það svakalegasta sem hún hefði séð. Bræður mannsins hennar eru víst í þessari categoríu og nú síðast þegar þegar börn annars bróðursins (sem eru þrjú og eiga afmæli öll í sama mánuði) áttu afmæli, komu uppádressaðir hestar að sækja krakkana í skólann, leigt var Disney show inná heimilið....alvöru show og ég veit ekki hvað og hvað. Úff, gæti maður vanist þessu? Ég er bara enn að ná mér. Frábært að eiga hlaðna vasa af peningum en veit ekki...., ég bara næ ekki að hugsa svona langt.

Alla veganna ætla ég að halda uppá afmælið hans Halldórs á morgun. Planið er þetta, 7 krakkar og mömmur þeirra, ætla að koma og hitta okkur Halldór á skemmtilegum pizza stað hér skammt frá. Borðum pizzu og fáum svo afmælisköku á eftir sem ég er að klára að baka! Löbbum svo yfir á svona "barnaskemmtistað" sem ég ætla að bjóð krökkunum á og þeir leika sér þar í klukkutíma. Þetta verður ekki síðri skemmtun, haldið þið að krakkarnir sjái muninn......4 ára, hehe, nei. Þetta verður nefnilega alveg jafn gaman fyrir brot af því sem eytt var í veisluna góðu í kvöld!

Annars eitt enn. Er búin að setja upp hjá mér skype forritið. Þið sem ekki eruð með þetta ættuð endilega að setja þetta upp hjá ykkur. Getið nálgast þetta frítt á www.skype.com Þetta er hægt að setja upp á öllum nýlegum tölvum. Frábært er að hafa litla tölvuhátalara til að heyra betur og svo þarf bara headphona (eins og maður notar í vasadiskó) sem mæk til að tala í (þarf ekki að kaupa neitt). Svo talar maður bara saman á Internetinu eins og í síma, bara að kostnaðarlausu! Þetta er alveg hreint meiri háttar og er búin að vera að tala við nokkra svona.
Notandanafnið mitt er elladora

2 Comments:

  • Þetta er allsvakalegt!! Hélt einhvernveginn að heimabakaðar kökur og vinir og vandamenn myndi duga bara alveg ágætlega.....
    Held að það verði samt miklu skemmtilegra í veislunni hans Dóra Dunks:)

    Kv, Soffa

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:20 e.h.  

  • Ég segi nú bara rólegir kanar í afmælispartíin... ég held að surfkappinn hann dóri eigi eftir að skemmta sér betur í sinni veislu... var að reyna að hringja áðan en ætla að koma afmæliskveðjunni á framfæri hér bara í staðinn :) bestu kveðjur Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:31 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home