California here we come...again

þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Fra Trørød

Jæja, sit her a bokasafninu i Birkirød ad kanna postinn minn. Vid faum ekki nettengingu heim fyrr en 2-4 vikur og verdur tvi litid um faerslur tangad til.
Ferdin ut gekk vel enda var tetta styttra ferdalag en vid hofum verid ad fara i sidustu ar og eg var bara med Val med mer einan. Atli var buinn ad graeja otrulegustu hlutum adur en vid komum. Buinn ad kaupa bil, fa danskar kennitolur, ganga fra ollum skolaumsoknum fyrir strakana og fleiri skraningum. Valur byrjar a leikskolanum 20. agust og Halldor i sinum skola 13. agust. Tad eru enn einhverjir dagar i heimasimanumerid. Se strax ad Danirnir eru frekar slow midad vid tad sem vid eigum ad venjast heima. Fekk fyrir hjartad tegar eg fretti ad nettengingin kaemi eftir 2-4 vikur, teir bara virdast saetta sig vid svona seinagang.

Jaeja nenni ekki ad hanga a bokasafninu lengur. Allir eru i standi heima, er her med Lilju Doru og erum vid a leid i bjargvaettinn IKEA og kaupa skapa.

fimmtudagur, júní 28, 2007

Útskrift

Karlinn í kuflinum.
Val og Hal fengu að fara með pabba sínum upp á svið að taka á móti skírteininu. Halldór var með rauðu útskriftarhúfuna sína þar sem hann var að útskrifast úr Kindergarten.
Skírteinið loksins í höfn.

sunnudagur, júní 17, 2007

Útskriftarhetjan

Þann 17. júní var Atli minn annar Íslendingurinn til að útskrifast með MBA próf frá Stanford University en prógramið er metið eitt af topp þremur MBA í heiminum. Hann er auðvitað snillingur og erum öll ákaflega stolt af drengnum okkar. Útskriftin var eins og í bíómynd, hrikalega flott og algjör upplifun að vera á staðnum og sjá svona útskrift. Ég set mynd af honum í útskriftarkuflinum inn þegar ég er búin að hlaða af myndavélinni.

Eftir útskriftina var sett í sjöunda gír, pakkað, þrifið og restin af dótinu okkar gefin vinum og nágrönnum. Halldóri þótti mjög erfitt að kveðja vini sína og var mikið grátið. Það kom honum eiginlega á óvart hvað erfitt var að segja bless.

Erum annars komin til Florida í HÖLLINA til mömmu og pabba. Þetta er ekkert smá glæsilegt hús í alla staði. Erum búin að vera hér með Lilju sys og Jónasi litla í 2 daga en þau fóru heim áðan. Fórum í Busch Gardens í gær (sem er eins og Disney World) og skemmtum við okkur eins og börnin....ef ekki betur. Ætlum að slappa af í dag, kannski kíkja á ströndina. Við Atli erum svo búin að leigja okkur bíl og taka hótel á Miami og ætlum að skella okkur bara tvö í 2 daga. Kominn tími á að komast eitthvað tvö út eftir rúm 2 ár.

Jæja, ætla að skella mér í sólina og grilla mig aðeins.

laugardagur, maí 26, 2007

Sól, sól...

Nú fer aldeilis að styttast í flutninga hjá okkur hér. Ég kláraði síðasta prófið mitt í vikunni en Atli á viku eftir af skólanum hjá sér. Það er búið að pakka öllu sem á að fara í gám þannig að við náum að sjúga upp síðustu Stanfordminningarnar í rólegheitunum með léttvín í annari og sólina í hinni. Gámurinn kemur í næstu viku, ætlar að ferja drasl tveggja fjölskyldna yfir Atlantshafið, og keppumst við nú um að fylla gáminn af alls kyns kræsingum úr Crate and Barrel og öðrum amerískum gæðabúðum.

Það er degurdagur hjá okkur stelpunum í dag og er planið að skella okkur til San Jose nú upp úr hádegi og liggja þar á sundlaugarbakkanum með koteila og slúðurblöð í allan dag, fá okkur smá nudd og fara svo út að borða. Á meðan ætlar Atli að taka strákana í póker svo kellan hafi nú efni á að lifa lífinu aðeins :)

Já, það er ekki leiðinlegt að vera í Cali þegar shopping og sólböð eru á dagskránni á hverjum degi. Það er hins vegar svolítið skrýtið til þess að hugsa að við séum að fara eftir nokkrar vikur. Ævintýrið er hins vegar ekki búið hjá okkur því Danmörk tekur við og vonum við að það verði ekki síðra ævintýri. Við erum farin að hlakka mikið til að sjá fjölskyldu og vini, enda orðið pínu of langt síðan. Eitt ár!

Luv í bili.
E

laugardagur, maí 12, 2007

Myndir liðinna daga

Skelltum okkur í dagsferð og hittum um nokkra MBA félaga og fjölskyldur úti á landi fyrir nokkrum helgum. Hér er Esperanza og Valur að leika
Sundgarpar settu met og sátu í ísköldu vatninu í nokkrar mínútur...mamma beið með hlýtt teppi handa yngsta garpinum
Atli og Halldór Andri úti á hjólabát
Valur og uppáhaldið

Hið mánaðarlega stelpupartý okkar vinkvennanna klikkaði ekki og var haldið fyrir nokkrum dögum...
Atli bauð mökum þeirra í póker á meðan...þegar langt var liðið fram á nótt var ákveðið að gera innrás...
og tékka á hvað væri að gerast hjá þeim
Halldór Andri og Hildur að glápa á TV saman eftir skóla

Halldór í nýja Judo gallanum
Bræður á býflugnaveiðum..sem endaði með því að báðir voru stungnir í puttana

Movie night úti í garð í gærkvöldi þar sem Happy Feet var sýnd við góðar undirtektir. Boðið var upp á popp og heitt kakó.
Halldór gæðir sér á poppi á meðan fylgist með Happy Feet
Val finnst ís MJÖG góður
Bræður að skoða caterpillars sem Halldór var búinn að veiða í skordýrabúið sitt en þeir eru báðir miklir áhugamenn um skordýr og önnur kvikindi sem við foreldrarnir kærum okkur ekki mikið um

mánudagur, apríl 30, 2007

Milliafmæli VB

Valsarinn okkar er eins og hálfs árs í dag. Trúir því einhver?
Hann er algjör krúsímús, farinn að tala alveg heilan helling, farinn að leika með öllum krökkunum sjálfur í garðinum, er alltaf kyssandi og knúsandi, dasandi og syngjandi og er bara svo mikill rúsínurass. Mér finnst þetta án efa skemmtilegasti litlukrakka-aldurinn og allt sem þau gera á þessum aldri er bara það sætasta í öllum heimi.

Lágum í sundi og sólbaði alla helgina í yfir 30 stiga hita. The summer is here get ég sagt ykkur og keppast þeir hvítu við að fá smá tan á sig til að hressa smá upp á útlitið. Það helsta sem ég þarf hins vegar á að halda er KLIPPING. Hef ekki farið í klippingu síðan í lok júní 2006. Þarf að bíða með það þar til ég kem heim í byrjun júlí....tek enga sénsa með þetta lengur hér. Til að setja ykkur í mín spor, ímyndið ykkur að þið séuð að fara til tannlæknis og þið takið eftir því þegar hann fer að tala að það vantar uppí hann nokkrar tennur....restin af tönnunum er svo hálf svört. Mynduð þið hlaupa út eða þora í stólinn? Þetta er eins með hárið.

Skelli inn myndum af knutsskinnunum okkar fljótlega.

OO Ella

mánudagur, apríl 16, 2007

Smá fréttir af okkur

Það er orðinn góður mánuður síðan síðast var skrifað á síðuna og kominn tími á nokkrar myndir og update. Það hefur verið nóg að gera. Fengum gesti yfir spring break frá Íslandi og áttum við frábæran tíma með þeim hér í Cal. Síðan þau yfirgáfu okkur hefur rútínan tekið við, allir byrjaðir aftur í skólanum og svo erum við bara mikið útivið þar sem sumarið er nánast komið. Atli er í fáum tímum þessa önnina þannig að við náum miklum tíma saman öll sömul sem er frábært. Hann klárar skólann svo 5. júní og útskriftin er þann 17. Við ætum svo að fara til Flórída að hitta mömmu og pabba og Lilju og Jónas þann 18 og vera þar til 1. júlí. Planið er svo að koma heim í frí í júlí til byrjun eða miðjan ágúst og halda svo til Danmerkur þar sem við komum til með að vera í 1-3 ár....eftir því hvernig gengur :) Jebb. Familían verður orðin lífsreynd þegar hún mun flytja á skerið aftur....ef það gerist þá einhvern tímann! Haha. Atli fer sem sagt að vinna hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey í Köben og ég er í startholunum með að sækja um nám í Cobenhagen Buisness School. Það er strax kominn biðlisti af gestum sem ætla að nýta sér þetta einstaka tækifæri og heimsækja okkur til Köben :)

Annars eru allir orðnir hressir eftir veikindin miklu á heimilinu síðustu mánuði....7913 um að þessar pestar komi ekki aftur. Valur hefur verið með í eyrunum í hverjum mánuði síðan í nóvember, Halldór fékk lungnabólgu sem hann var með í 10 daga og magastíflu viku síðar sem kom ekki í ljós fyrr en eftir 8 klukkustundir á ER. Þetta er búið að vera aljgört djók.

Sit hér og horfi á þessar hörmungarfréttir frá atburðunum í Virginia Tech. Þeir eru í þessum töluðu að tala um Gun law í Virginíu og segja að ungmenni 12 ára og eldri megi eiga skotvopn, það sé bara löglegt. Þetta er svo mikil bilun. Þessar skotárásir í skólum hér eru að gerast oftar og oftar...manni finnst líka að þetta gerist bara í USA (fyrir utan Þýskalandsmálið hér um árið). Hvað er málið? Þeir eru að velta hér upp orsökum eins og.....ofbeldisleiki í tölvum og hreinlega overdose af ofbeldi sem þessir krakkar meðtaka í tölvuleikjum, sjónvarpinu og fleiru. Finnst það ekki segja mér neitt því þetta gerist nánast bara hér í USA og krakkar hér eru varla meira í þessu hér en krakkar í öðrum heimshlutum. Myndi frekar horfa hér á byssueign landans og hreinlega bara samfélagið, hvað margir þættir þess eru eitthvað svo súrir.

Jæja, nóg um það. Það er farið að styttast í að við sjáum ykkur öll sömul :) Þegar við komum heim er ár síðan ég var þar síðast.....og Valur orðinn stór. Drengurinn er að verða 18 mánaða, alltaf í stuði og farinn að tala alveg svakalega mikið. Hann er svo tilbúinn til að komast á leikskóla, held hann verði hrikalega ánægður að byrja...eða kannski að losna við að hanga með mér allan daginn! Halldór er ferskur líka. Orðinn gaur með nokkrar kærustur í skólanum. Hann er í júdó og fílar það í tætlur. Nú þarf hann bara að tækla dönskuna...hann er hetja. Hann hlakkar til að flytja til Danmerkur og læra dönsku, sérstaklega þar sem Tivoli mun vera í næsta nágrenni við hann :) Það þarf lítið til að fá hann yfir á sitt band þessa elsku.

Jæja, læt þetta duga í bili. Set inn nokkrar myndir fyrir ykkur hér fyrir neðan.
Luv,
E

Mamma er með svolítið fyrir þig Valur.....
Páskaeggin góðu frá Íslandi....ummmmmm
Og þau voru hrikalega góð
Valur gleymdi ekki að bursta eftir allt átið
Eitt matarboðið hjá okkur
Partners in crime og góðir saman, félagarnir Halldór og Viðar
Valur í Easter Egg Hunt
Ég með strákana í Easter Egg Hunt
Familian í Easter Egg Hunt
Á ströndinni í Carmel...þar sem Clint Eastwood var einu sinni bæjastjóri
Celine og Valur að hoppa í polli
Atli í sápukúlinum
Og Valur hermir auðvitað
Vatnsleikfimi í boði Atla fyrir krakkana í garðinum á heitum degi Valur og Amalía frá Íslandi að kubba
Anna María var dugleg að leika við Valsarann sem fannst hún æði og knúsaði hana og kyssti óspart
Halldór á júdóæfingu að fá kennslu frá kennaranum
Í náttfatapartýi í skólanum hjá Halldóri Andra....alltaf stuð að fá að koma þangað


miðvikudagur, mars 14, 2007

Hann á afmæli í dag....

Atli minn á afmæli í dag. Í tilefni dagsins á að skella sér í smá verslunarleiðangur og versla smá græjur fyrir kallinn. Okkur er svo boðið í mat með strákana í kvöld. Ætli ég reyni ekki að finna tíma í að baka eina afmælisköku til að taka með.

Veðrið hér er búið að vera hreint út sagt klikkað síðan í síðustu viku. Hátt upp í 30 stiga hiti og sól. Krakkarnir spranga hér um í garðinum á sundfötunum og við foreldrarnir kælum þau af og til með að sprauta yfir þau úr garðslögnunum. Það er aðeins farið að draga úr hitanum sem er fínt. Það er enn alveg nógu heitt auk þess sem það er heiðskírt.

Vinir okkar úr Lundi eru svo væntanlegir til okkar á föstudaginn. Það er því hörkufjör framundan en Atli er kominn í spring break á föstudaginn í 2,5 vikur:)

Jæja, set inn fleiri fréttir og myndir fljótlega.....það fer svo að draga til tíðinda hér á heimilinu....Köben eða Reykjavík....kannski í vikulok.

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Valurinn er kominn með enn aðra eyrnabólguna. Þetta er að verða sama sagan með hann og Dunkinn. Stanslausar eyrnabólgur, sinusitis og hósti sem þarfnast pensilínmeðferðar. Halldór var liggur við veikur í hverjum mánuði til 3,5 ára aldurs og það sama er að gerast með Val. Eftir þenna meðalaskammt hittir hann háls, nef og eyrnalækni og fær vonandi rör.

Hér rignir og rignir þessa dagana. Vorið með tilheyrandi vorfríi er hins vegar á næsta leiti þar sem vinir okkar frá Íslandi mæsta í heimsókn. Það verður hætt að rigna þá því við erum búin að ákveða að vera í sundi og sólbaði þessa frídaga.

Ekki er enn kominn neinn botn í vinnumálin. Það er eins og áður Reykjavík eða Köben. Nú fara deadlinarnir að detta inn þannig að það þarf að fá botn í þetta mál sem fyrst. Við erum enn að rökræða fram og til baka og reyna að ákveða þetta. Lausn á málinu er í aðsigi og verður bloggað um hana hér þegar hún kemur.

Jæja, þarf að skella mér í apótekið að ná í lyfin.

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Myndir

Hér koma nokkrar myndir sem ég lofaði fyrir löngu að setja inn...var minnt á það í dag.

International makahópurinn minn góði, höfum verið duglegar við að skemmta okkur

Borghildur nágranni og ég á diskói hjá börnunum
Það var brjálað stuð hjá þeim Viðari, Halldóri og Hildi á diskóinu


Sveitt og sæl eftir mikil læti á dansgólfinu
Í skólanum hjá Halldóri í vikunni sem hann var special me. Við komum inn með smá ræðu um drenginn og tókum við spurningum. Sjáið plaggatið um Halldór í bakgrunninum. Mjög mikið lagt í listaverkið.

Halldór í afmæli að slá í pinadaValurinn að narta í eitthvað gott
Valur með duddurnar sínar
Bræður að leika sér
Ella og Espe í Stanford