California here we come...again

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Thanksgiving að nálgast

Jæja, nú er vika þar til við leggjum af stað til Florida og nóg eftir að gera. Annars er ég búin að vera að passa Dalmatíuhundinn hennar Birgittu í nokkra daga og haft gaman af. Það er ótrúlega fyndið hvað taktarnir í þessu kyni eru sterkir. Hún minnir mig ótrúlega á Frigg þó horft sé framhjá útlitinu. Hún er klaufsk og klunnaleg, algjör beautyqueen og notfærir sér það út í eitt hvað hún er sæt, spilar sig svolítið vitlausa þótt hún sé það kannski ekki alveg, öll þessi búkhljóð sem hún gefur frá sér á einkennilegustu augnablikum, erfitt að ganga með hana í bandi, algjör æði og svona mætti lengi halda áfram. Birgitta og fjölskylda koma heim á morgun og buðu okkur í staðinn í Thanksgiving mat hjá sér annað kvöld.

Já það er sem sé 4ra daga frí framundan, Thanksgiving helgin. Fólk hér er alveg hissa á því að fólk út um allan heim haldi ekki upp á Kalkúnadaginn því þetta er svo mikið mál eitthvað hjá þeim. Fólk stendur í eldhúsinu frá morgni og eldar allan daginn. Allt meðlætið sem þarf að búa til, pie kökurnar og ég veit ekki hvað og hvað. Það er ægilegt tilstand í kringum þetta hjá þeim. Held okkur Íslendingum finnist nóg að standa í þessu um jólin!

Helgin er annars alveg óplönuð. Þarf að reyna að ganga frá öllu og kaupa síðustu gjafirnar áður en við höldum í hann. Erum boðin í enn eitt barnaafmælið um helgina. Bíddu verð að segja ykkur enn eitt.....fór í leikskólann með HAA í morgun og í möppunni hans beið okkar þakkakort frá stelpunni sem var afmæli aldarinnar sem ég skrifaði um hér að neðan. ÞAKKAKORT! Fyrir að hafa komið í afmælið og fyrir gjöfina (skrifað upp hvað það var) sem var gefin! Þetta lýsir alveg hvað mömmur hér hafa lítið að gera. Plana stórafmæli fyrir 4 ára börn og skrifa svo þakkakort til 100 manns eftirá! Þetta var samt allt mjög gaman og allt það en hey, smá ríalití tékk hérna.

Það er búið að vera frekar kalt hér síðustu daga, eiginlega hálfgert úlpuveður...alla veganna jakkaveður þannig að það er ekki mikið fólk útivið. Farið niður í svona 8-10 stiga hita. Það var hlýrra hér í Janúar þegar við komum út en núna. Maður er loksins kominn í lokaða skó og ullarkápu, ég er þá mest fegin því að það sé hægt að nota þetta hér.

Eitt að lokum. Ég er búin að setja upp hjá mér skype sem er forrit þar sem maður getur talað frítt í gegnum Netið. Maður hringir úr þessu forriti í tölvunni, heyrir svo bara í viðkomandi í hátölurunum og svo tala ég í svona headphona (eins og maður tengir í vasadiskó) sem ég sting í samband við tölvuna og viti menn.......þetta er alveg eins og að tala í síma nema að þetta er frítt.
Þetta er ótrúlegt, er með nokkrar stelpur inní þessu hjá mér og vill endilega bæta við fleiru fólki. Þeir sem vilja tékka á þessu, farið á www.skype.com og hlaðið þessu upp hjá ykkur. Notandanafnið mitt er elladora til að hringja í mig. Ef ykkur vantar hjálp við þetta, skrifið mér þá bara hér eða á ehalldorsdottir@msn.com

Heyrumst

föstudagur, nóvember 19, 2004

Afmælisveislan

Jæja, þá er afmælisveislan yfirstaðin. Borðuðum pizzur eins og planað var á pizzastaðnum, fengum okkur svo afmælisköku og löbbuðum svo yfir á stað sem heitir Jump´n Jammin. Þar var rosa stuð og allir skemmtu sér konunglega, jafnt fullorðnir sem börn.
Halldór er himinn lifandi yfir öllum gjöfunum sem hann fékk, hlaupahjól, hjólabretti fyrir litla gaura, playmódót, power rangers karlar, alvöru turtle bíll, baseball sett og ég veit ekki hvað og hvað.
Þetta tókst sem sé bara allt ágætlega og allir fóru glaðir heim. Hér að neðan sjáið þið nokkrar myndir frá kökubakstrinum fyrir afmælið og frá afmælinu.

í næstu viku er svo Thanksgiving. Ekkert planað hvað við ætlum að gera en það er frí á fimmtudag og föstudag í næstu viku og er þetta hinn eini sanni fjölskyldutími Ameríkana. Við vonumst auðvitað til að vera boðin í mat hjá einhverjum eða alla veganna að elda með einhverjum kalkúninn og meðlætið sem honum fylgir. Læt ykkur vita hvernig þetta fer allt saman.


Ég bakaði kökurnar mínar sjálfur! Posted by Hello


Gott að fá smá smakk eftir alla vinnuna! Posted by Hello



Halldór, Alec og Mark (Tommy bróðir Mark er þessi litli) Posted by Hello


Á pizzastaðnum (borðuðum úti)
Posted by Hello



fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Og afmæli var það

Ó mæ god, ó mæ god, ó mæ god. Já, við vorum að koma heim úr fjögra ára afmælisveislu aldarinnar! Já, ég á ekki til orð til að lýsa þessu fyrir ykkur.

Partýið byrjaði kl. hálf sjö og stó til níu. Þau höfðu leigt einn af þessum stöðum sem ég skrifaði um hér um daginn nema þá að þau leigðu ekki eitt herbergi og fengu afnot af leiksvæðinu heldur leigðu þau allan staðinn, þ.e. höfðu allt út af fyrir sig og sína veislu. Þarna voru líklega um 120 manns. Þetta byrjaði með hlaðborði (salöt, kjúllaréttir, pizzur, spagettíréttir og fleira). Eftir það fóru krakkarnir að leika sér á leiksvæðinu (sem er svona eins og krakkaland á Smáratorgi og í Kringlunni) og það flugu beisiklí gjafir til krakkanna úr loftinu allan tímann. Alls konar skrýtnir skór, uppblásin hljóðfæri og þess háttar. Á svæðið mætti svo DORA (úr Dora the explorer) og gaf fleiri gjafir til gestanna, lét taka myndir af sér með krökkunum og vakti hún verulega kátínu. Svo var kökuveisla fyrir allt liðið. Það var þvílíkt hlaðborð af kökum get ég sagt ykkur. Og afmæliskakan sjálf.....já, ég bara hrökk í kút þegar ég sá hana, hún var hjúmangos Curious Goeorge kaka. Í kökuveislunni fengu krakkarnir svo kveðjugjafirnar sínar sem var risa hattur hlaðinn af dóti. Ég átti í mesta basli við að drösla Halldóri heim eftir að veislunni lauk með hlaðnar hendur af kveðjugjöfum. Á leiðinni út var mér litið á einn vegginn þarna sem var þakinn hillum upp í loft. Út úr hillunum flæddu svo gjafirnar, ég er að segja ykkur að þetta var meira en það sem maður sér í kringum jólatré hjá fjölskyldu með 3 börn! Já þetta var svei mér þá upplifun, at least a $1300 dollar birthday for a four year old! Aline hlóg að mér allan tímann. Ég sat bara þarna og gapti undrandi. Spáið í að eiga svona mikla peninga að maður þurfi hreinlega að rembast við að eyða þeim. Já, Aline sagði mér að þetta væri alls ekki það svakalegasta sem hún hefði séð. Bræður mannsins hennar eru víst í þessari categoríu og nú síðast þegar þegar börn annars bróðursins (sem eru þrjú og eiga afmæli öll í sama mánuði) áttu afmæli, komu uppádressaðir hestar að sækja krakkana í skólann, leigt var Disney show inná heimilið....alvöru show og ég veit ekki hvað og hvað. Úff, gæti maður vanist þessu? Ég er bara enn að ná mér. Frábært að eiga hlaðna vasa af peningum en veit ekki...., ég bara næ ekki að hugsa svona langt.

Alla veganna ætla ég að halda uppá afmælið hans Halldórs á morgun. Planið er þetta, 7 krakkar og mömmur þeirra, ætla að koma og hitta okkur Halldór á skemmtilegum pizza stað hér skammt frá. Borðum pizzu og fáum svo afmælisköku á eftir sem ég er að klára að baka! Löbbum svo yfir á svona "barnaskemmtistað" sem ég ætla að bjóð krökkunum á og þeir leika sér þar í klukkutíma. Þetta verður ekki síðri skemmtun, haldið þið að krakkarnir sjái muninn......4 ára, hehe, nei. Þetta verður nefnilega alveg jafn gaman fyrir brot af því sem eytt var í veisluna góðu í kvöld!

Annars eitt enn. Er búin að setja upp hjá mér skype forritið. Þið sem ekki eruð með þetta ættuð endilega að setja þetta upp hjá ykkur. Getið nálgast þetta frítt á www.skype.com Þetta er hægt að setja upp á öllum nýlegum tölvum. Frábært er að hafa litla tölvuhátalara til að heyra betur og svo þarf bara headphona (eins og maður notar í vasadiskó) sem mæk til að tala í (þarf ekki að kaupa neitt). Svo talar maður bara saman á Internetinu eins og í síma, bara að kostnaðarlausu! Þetta er alveg hreint meiri háttar og er búin að vera að tala við nokkra svona.
Notandanafnið mitt er elladora

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

LOS DUNKOS er að verða 4

Nú fer að styttast í afmælið hans Los Dunkosar. Ætla að halda smá afmæli fyrir hann hér úti 19. nóv (hann á afmæli 21. nóv) en svo fær hann almennilega veislu þegar við komum heim í des. Annars hef ég verið að spá mikið í hvernig ég eigi að halda þetta. Við erum búin að fá nokkur afmælisboð frá krökkum í bekknum hans og eru afælisparýin alltaf haldin á leigðum stöðum sem eru innréttaðir fyrir krakka, með leiksvæði, borðum og þess háttar. Ég fór svo á stúfana í dag og tékkaði á nokkrum stöðum og Ó MÆ GOD. Minnst er hægt að kaupa veislu fyrir 25 krakka og 25 fullorðna. Innifalið í því er herbergi, afmæliskaka er framreidd, drykkir, glös og diskar og svo afnot af leiksvæðinu á staðnum eftir að búið er að borða. Þetta kostar 300 dollara. Og þetta gerir fólk án þess að spá. Ríflega 20 þúsundir í að halda afmælisveislu fyrir 4ra ára barn, fyrir utan kveðjugjafir fyrir gesti (sem er siður hér) og fyrir utan þína afmælisgjöf til barnsins. Ég er bara í sjokki yfir þessu spreði. Halldóri hefur alla vegana verið boðið í nokkrar svona veislur þannig að fólk gerir þetta!

Okkar plan er þetta: Við bjóðum 7 krökkum á pizzastað þar sem ég fæ að koma með afmælisköku sem ég baka sjálf, svo borga ég bara fyrir þessa krakka inn á leiksvæði á einum svona krakkastað sem er við hlið pizzastaðarins eftir átið! Pakkinn kostar mig 120 dollara sem mér finnst nú samt nóg fyrir 4ra ára afmæli.

Halldór er að taka svo miklum framförum í enskunni núna að þið trúið því ekki. Fyrir svona tveimur til þremur vikum byrjaði þetta. Á sama tíma fór hann að ruglast aðeins í íslenskunni, beygja orð, sem áður voru beygð hjá honum rétt, vitlaust, farinn að nota eitt og eitt enskt orð í íslenskum setningum og farinn að rugla íslenskum orðum saman. Við gerum ekki annað en að leiðrétta hann og segja honum íslensk orð sem hann vantar eða er búinn að gleyma. Svona gerist þetta víst.
DÆMI:
Ég tók nap í dag.
Ég er með magagang (ruglar saman magapínu og niðurgang), þessi finnst mér frábær.
Hvar eru scissorin (skærin).
Má ég baka cake?
Ég þyrfti eiginlega að halda commentabók utan um all þetta, við Atli höfum nefninlega legið í krampa af mörgum af þessum frösum hans. Hann hefur gott af því að komast heim núna í smá stund og fá tötsið fyrir íslenskunni aftur.

Fer að styttast annars í heimferðina, 18 dagar þar til við leggjum af stað til Florida....úff, þarf að fara að klára jólagjafakaupin og allt það. Ætla að vera búin að klára þetta allt saman og meira að segja jólakortin áður en ég kem heim.


sunnudagur, nóvember 07, 2004

Ein mynd að lokum síðan í sumar af Halldóri og Dísu vinkonu með Minnu mús! Posted by Hello

Um kvöldið var svo farið með Íslendingunum og nágrönnum þeirra. Styrmir, Arnrún og þessi litli er Jack úr hverfinu hjá Beggó og Eyþóri. Posted by Hello

Þarna er minn svo í röð fyrir framan stórmarkaðinn til að fá smá nammi í pokann sinn. Posted by Hello

Bekkurinn hans Halldórs Andra búinn að dressa sig upp fyrir Halloween  Posted by Hello

Bekkurinn hans Halldórs með Montessori kennurunum á Pumpkin patch skemmtun. Posted by Hello

Halldór og Alec Posted by Hello

Aline með myndavélina og tvær aðrar mömmur úr leikskólanum sem við hittum einu sinni í viku eftir skóla til að leyfa krökkunum að leika. Posted by Hello

Í Halloween parýi heima hjá Aline og Alec (vini Halldórs í Spiderman gallanum) með nokkrum vinum úr leikskólanum Posted by Hello

laugardagur, nóvember 06, 2004

Nei, hvað er þetta.....hún er lifandi!

Vúff, það er að veraða mánuður síðan síðast var bloggað. Já svona getur þetta farið, þegar maður dettur út er oft erfitt að byrja aftur. Þegar fréttirnar fara að safnast upp finnst manni svo voðalega mikið sem maður verði að segja frá, sem verður auðvitað alltaf meira og meira og meira með hverjum deginum. Á endanum nennir maður hreinlega ekki að setjast niður og skrifa frá ÖLLU því sem hefur verið í gangi fyrr en maður kemst á það stig að vera farinn að gleyma því sem gerðist fyrir mánuði síðan. En sjáum til hverju ég man eftir.

Ok, man hér eftir einu góðu. Atli tók þátt í hálf Iron man keppni niður í Sand Diego (La Jolla fyrir þá sem þekkja til) um daginn. Össur er styrktaraðili fyrir Challenged Athelate Foundation sem sá um þessa keppni og fóru þrjú lið frá Össuri þangað niðureftir. Challenged Athelate Foundation er sjóður sem sér um að styrkja fatlað fólk í keppnisíþróttum og ég held að þessi keppni hafi verið liður í fjársöfnun. Þarna voru því keppendur í hjólastólum, með gervilappir, gervihendur og einnig heilbriðgir. Iron man er keppni þar sem maður syndir, hjólar og helypur. Þarna voru sumir einstaklingar sem kepptu í öllum pakkanum en sumir voru með lið þar sem einn syndir, einn hleypur og einn hjólar. Atli var sem sé í slíku liði frá Össur og sá um hlaupaþáttinn en hann hljóp halft maraþon eða rúma 20 kílómetra. Þar sem keppendur áttu að skrá sig inn um hálf sjö leytið um morgun, ákváðu allir Össurar keppendurnir að skella sér á hótel í La Jolla daginn áður en fyrir þá sem ekki vita er þetta svona ríkramanna hverfi í San Diego (held einnig að á þessu svæði sé hæst verðlagðasta húsnæðisverð í öllu USA). La Jolla var algjört æði, hrikalega fallegt bæjarstæði með lítinn og krúttlegan miðbæ. Við náðum nú samt ekki að skoða mikið en skelltum okkur í miðbæinn, skoðuðum smá og fengum okkur gott að borða.
Daginn eftir vorum við svo mætt á keppnissvæðið og var það algjör upplifun. Þarna var alls konar fólk sem hafði þvílíka sögu á bakinu um það hvernig það hafði lamast eða misst útlimi. Stofnandi sjóðsins var þarna í hjólastólunum sínum en hann hafði frá átakanlegri sögu að segja. Hann var mikill íþróttamaður en lenti í hörmulegu bílslysi þar sem hann missti aðra löppina. Hann gafst samt ekki upp, hélt áfram að æfa sig og hóf að keppa sem fatlaður einstaklingur með gervilöpp og stofnaði þennan sjóð. Svo gerðist það þegar hann var eitt sinn að keppa í hlaupi að hann var keyrður niður og endaði sem mænuskaddaður maður í hjólastól. Og þarna var hann, tilbúinn í hálfa Iron man keppni! Alveg ótrúlegt lið get ég sagt ykkur.
Verndari sjóðsins var mættur á svæðið og var það enginn annar en Robbin Williams. Já, gat virt hann vel fyrir mér því við vorum auðvitað með einhverja passa sem við gátum nýtt okkur til að komast á aðalsvæðin þannig að Robbin og ég vorum ekki nema í meira en 2 skrefa fjarlægð í fámenni í um 30 mínútur. Karlinn er frekar lágvaxinn og kubbslegur og hrikalega loðinn. Hann virkaði samt mjög góðlegur og almennilegur. Hann var þarna í hjólakeppnisgalla (hann keppti í hjólaleggnum) þannig að allar útlínur vor vel skýrar! Ég klikkaði samt alveg á myndavélinn og eiginhandaárituninni. Fannst það of lásí fyrir Íslendinginn. Þarna hafið þið það.
Keppnin hjá Atla gekk mjög vel, hann hljóp þessa rúmlega 20 kílómetra á 1 klst og 50 mínútum. Hann var númer 39 af 148 keppendum í hlaupinu en liðið hans lenti í sæti nr. 22 af 140 sem kláruðu keppni. Samanlagt voru þau að í rúma 6 klukkutíma.

Halloween er svo auðvitað nýbúin. Halldór Andri klæddi sig upp sem Spiederman og var þetta algjört fjör. Þegar fór að rökkva var liðið komið út með föturnar og pokana og tilbúið í að reita hverfin svoleiðis upp af nammi. Við fórum til Eyþórs og Beggó og fórum með þeim og nágrönnum þeirra í hópi þannig að þetta var mjög gaman. Held þetta kvöld hjá þeim sé svona álíka skemmtun fyrir krakkana hér og áramótin heima. Alla veganna þá sit ég uppi hér með fleiri kíló af nammi sem ég held ég verði að henda. Ég er búin að stelast í nokkur stykki á kvöldi og með þessu áframhaldi endar þetta ekki vel þannig að ég held þetta verði bara að fara í ruslið.

Félagslífið er búið að vera ágætt, fórum út að borða með Aline og Verom manninum hennar um daginn og buðu þau okkur öllum í mat til sín í vikunni. Halldor og Alec sonur þeirra eru bestu félagar og geta varla án hvors annars verið. Þau eru líka virkilega fín og bjarga mér alveg hér. Við erum einu ungu mömmurnar á svæðinu þannig að það er ágætt að við höfum fundið hvor aðra hér. Erum svo á leið í partý í kvöld hjá Oddný og Pálma. Halldór fer í pössun með Styrmi og Arnrúnu og hlakkar hann voða mikið til auðvitað.

Svo lalla þessu vinnumál alltaf hér. Er að skoða hitt og þetta og tala við þennan og hinn en ekkert hefur gerst ennþá. Læt ykkur vita ef eitthvað gerist í þeim málunum.

Annars fer að styttast í að við komum heim. Ég og Halldór förum með Atla til Miami á Florida 1. desember (þar sem Atli er að vinna þar). Við verðum þar til 6 des. og fljúgum við Halldór heim frá Orlando þá. Atli kemur svo ekki til Íslands fyrr en líklega 23. des. HLAKKA TIL AÐ KOMA.

Jæja, nenni ekki meiru í bili, reyni að halda þessu jöfnu við núna svo ég lendi ekki í einhverri skrifkrísu aftur.

Adois í bili.