Smá fréttir af okkur
Það er orðinn góður mánuður síðan síðast var skrifað á síðuna og kominn tími á nokkrar myndir og update. Það hefur verið nóg að gera. Fengum gesti yfir spring break frá Íslandi og áttum við frábæran tíma með þeim hér í Cal. Síðan þau yfirgáfu okkur hefur rútínan tekið við, allir byrjaðir aftur í skólanum og svo erum við bara mikið útivið þar sem sumarið er nánast komið. Atli er í fáum tímum þessa önnina þannig að við náum miklum tíma saman öll sömul sem er frábært. Hann klárar skólann svo 5. júní og útskriftin er þann 17. Við ætum svo að fara til Flórída að hitta mömmu og pabba og Lilju og Jónas þann 18 og vera þar til 1. júlí. Planið er svo að koma heim í frí í júlí til byrjun eða miðjan ágúst og halda svo til Danmerkur þar sem við komum til með að vera í 1-3 ár....eftir því hvernig gengur :) Jebb. Familían verður orðin lífsreynd þegar hún mun flytja á skerið aftur....ef það gerist þá einhvern tímann! Haha. Atli fer sem sagt að vinna hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey í Köben og ég er í startholunum með að sækja um nám í Cobenhagen Buisness School. Það er strax kominn biðlisti af gestum sem ætla að nýta sér þetta einstaka tækifæri og heimsækja okkur til Köben :)
Annars eru allir orðnir hressir eftir veikindin miklu á heimilinu síðustu mánuði....7913 um að þessar pestar komi ekki aftur. Valur hefur verið með í eyrunum í hverjum mánuði síðan í nóvember, Halldór fékk lungnabólgu sem hann var með í 10 daga og magastíflu viku síðar sem kom ekki í ljós fyrr en eftir 8 klukkustundir á ER. Þetta er búið að vera aljgört djók.
Sit hér og horfi á þessar hörmungarfréttir frá atburðunum í Virginia Tech. Þeir eru í þessum töluðu að tala um Gun law í Virginíu og segja að ungmenni 12 ára og eldri megi eiga skotvopn, það sé bara löglegt. Þetta er svo mikil bilun. Þessar skotárásir í skólum hér eru að gerast oftar og oftar...manni finnst líka að þetta gerist bara í USA (fyrir utan Þýskalandsmálið hér um árið). Hvað er málið? Þeir eru að velta hér upp orsökum eins og.....ofbeldisleiki í tölvum og hreinlega overdose af ofbeldi sem þessir krakkar meðtaka í tölvuleikjum, sjónvarpinu og fleiru. Finnst það ekki segja mér neitt því þetta gerist nánast bara hér í USA og krakkar hér eru varla meira í þessu hér en krakkar í öðrum heimshlutum. Myndi frekar horfa hér á byssueign landans og hreinlega bara samfélagið, hvað margir þættir þess eru eitthvað svo súrir.
Jæja, nóg um það. Það er farið að styttast í að við sjáum ykkur öll sömul :) Þegar við komum heim er ár síðan ég var þar síðast.....og Valur orðinn stór. Drengurinn er að verða 18 mánaða, alltaf í stuði og farinn að tala alveg svakalega mikið. Hann er svo tilbúinn til að komast á leikskóla, held hann verði hrikalega ánægður að byrja...eða kannski að losna við að hanga með mér allan daginn! Halldór er ferskur líka. Orðinn gaur með nokkrar kærustur í skólanum. Hann er í júdó og fílar það í tætlur. Nú þarf hann bara að tækla dönskuna...hann er hetja. Hann hlakkar til að flytja til Danmerkur og læra dönsku, sérstaklega þar sem Tivoli mun vera í næsta nágrenni við hann :) Það þarf lítið til að fá hann yfir á sitt band þessa elsku.
Jæja, læt þetta duga í bili. Set inn nokkrar myndir fyrir ykkur hér fyrir neðan.
Luv,
E
Mamma er með svolítið fyrir þig Valur.....
Páskaeggin góðu frá Íslandi....ummmmmm

Eitt matarboðið hjá okkur
Partners in crime og góðir saman, félagarnir Halldór og Viðar
Valur í Easter Egg Hunt
Ég með strákana í Easter Egg Hunt
Familian í Easter Egg Hunt
Á ströndinni í Carmel...þar sem Clint Eastwood var einu sinni bæjastjóri
Celine og Valur að hoppa í polli
Atli í sápukúlinum
Og Valur hermir auðvitað

Valur gleymdi ekki að bursta eftir allt átið
Eitt matarboðið hjá okkur
Partners in crime og góðir saman, félagarnir Halldór og Viðar
Valur í Easter Egg Hunt
Ég með strákana í Easter Egg Hunt
Familian í Easter Egg Hunt
Á ströndinni í Carmel...þar sem Clint Eastwood var einu sinni bæjastjóri
Celine og Valur að hoppa í polli
Atli í sápukúlinum
Og Valur hermir auðvitað
Og þau voru hrikalega góð

8 Comments:
Gaman að heyra frá ykkur,loksins.Það verður auðveldara að heimsækja ykkur í Köben(Norræna).Ég var í Eyjum um páskana,mjög fínt.Vona að þyð hafið það gott og hlakka til að sjá ykkur í sumar.FRÁBÆRAR MYNDIR. Anna frænka.
By
Nafnlaus, at 5:27 f.h.
Valur eins og nýtt barn með hverri myndaseríu, meira hvað hann stækkar! Hlakka til að sjá ykkur öll í sumar, til hamningu með Köben. Það verður sko notað!!!
By
Nafnlaus, at 6:01 f.h.
Gleðilegt sumar elskurnar!
Hér er -2°C á sumardaginn fyrsta!! Greinilegt að sumarið er handan við hornið og ekki seinna vænna en að dusta rykið af stuttbuxunum....
Flottar myndir, Valur meiri dúllan og greinilega sami nammigrísinn og mamma hans :-)
Sumarkveðja úr frostinu!
Soffa og co.
By
Nafnlaus, at 2:52 f.h.
Gaman að sjá myndirnar... þeir eru flottir strákarnir ;) Valur minnir mig nú soldið á litla Jónas þegar hann var lítill...
Nú er ég kominn með ástæðu til að heimsækja Kaupmannahöfn. Hef aldrei komið þangað.
kv Billi
By
Nafnlaus, at 5:09 e.h.
Hæ hæ og gleðilegt sumar :)
Gaman að heyra með Köben þó að ég hefði heldur viljað fá ykkur heim. Það er alltaf jafn ánægjulegt að sjá myndir af ykkur og hlakka ég mikið til að fá ykkur heim í sumar. Það væri frábært ef við gætum farið í bústað með saumaklúbbnum í júlí/ágúst ;)svo verðum við nú að plana stelpuferð til ykkar á nýja staðinn þegar þið eruð búin að koma ykkur fyrir og væri þá tilvalið að fá flugfreyjuíbúðina að láni. Legg ég til að við leggjum frekari drög að þessum plönum þegar þið komið heim :)
Hafið það sem allra best þangað til.
Knús,
Elísabet.
By
Nafnlaus, at 8:09 f.h.
Hæ,
ég vil líka endilega panta þig í stelpupartý og spyr því hvenær má eiga von á ykkur heim til landsins??
Tíðar ferðir til Köben hjá mér og mínum eru greinilega á dagskránni... :)
Erla
By
Erla, at 10:00 f.h.
Komum heim í byrjun júlí (held 1. júl) og förum til Danmerkur í byrun ágúst (dagsetning ekki komin á enn). Verður þú ekki úti allan júlí?
By
Ella, at 8:58 f.h.
Vá hvað það er orðið langt síðan ég kíkti inn á síðuna ykkar Ella mín. Til hamingju með köben. Rosa flottar myndir og strákarnir orðnir stórir. Er sammála Elísabetu með góða bústaðarferð í sumar og svo flugfreyjuíbúðina í köben seinna meir...hlakka til að hitta þig og ykkur í sumar. Öfunda ykkur af góða veðrinu.
kv, Eva
By
Nafnlaus, at 3:20 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home