California here we come...again

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Valurinn er kominn með enn aðra eyrnabólguna. Þetta er að verða sama sagan með hann og Dunkinn. Stanslausar eyrnabólgur, sinusitis og hósti sem þarfnast pensilínmeðferðar. Halldór var liggur við veikur í hverjum mánuði til 3,5 ára aldurs og það sama er að gerast með Val. Eftir þenna meðalaskammt hittir hann háls, nef og eyrnalækni og fær vonandi rör.

Hér rignir og rignir þessa dagana. Vorið með tilheyrandi vorfríi er hins vegar á næsta leiti þar sem vinir okkar frá Íslandi mæsta í heimsókn. Það verður hætt að rigna þá því við erum búin að ákveða að vera í sundi og sólbaði þessa frídaga.

Ekki er enn kominn neinn botn í vinnumálin. Það er eins og áður Reykjavík eða Köben. Nú fara deadlinarnir að detta inn þannig að það þarf að fá botn í þetta mál sem fyrst. Við erum enn að rökræða fram og til baka og reyna að ákveða þetta. Lausn á málinu er í aðsigi og verður bloggað um hana hér þegar hún kemur.

Jæja, þarf að skella mér í apótekið að ná í lyfin.

2 Comments:

  • valur svalur... vonandi að honum fari nú að batna greyinu...

    gott hjá ykkur að vera búin að ákveða að það verði sól hjá ykkur í vorfríinu.. maður á ekki að láta hluti eins og veðrið segja manni fyrir verkum ;)

    hér er búið að vera mjög fallegt veður... bjart en kalt.. og ég er nú búinn að nota hjólið mitt soldið og fá þannig frískt loft ...

    kv Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:05 f.h.  

  • nei hæ - gleður mig að sjá að þú ert ekki hætt að blogga vinkona. Skemmtilegar myndir og rosalega er Valur orðinn stór!!

    Bíð svo spennt eftir að heyra hvert þið flytjið....

    luv, Ása

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home