GLEÐILEGT ÁR
...allir saman og takk fyrir það gamla. Vil ég þakka fyrir öll sætu jólakortin og allar sætu myndirnar sem við fengum send frá ykkur heima. Þau hanga öll upp á stórri korktöflu í eldhúsinu og ég held ég haldi þeim bara þar áfram. Fannst frábært að fá þetta hingað út til mín.
Já, jólin búin og árið liðið. Það flaug frá okkur á met tíma finnst mér. Við áttum rosa cozy jól hér í Stanford, bara við fjögur. Borðuðum á okkur gat eins og aðrir, skelltum Val í rúmið og Halldór var í sviðsljósinu í pakkarifinu um kvöldið. Tímanum milli jóla og nýárs eyddum við í dagsferðir hingað og þangað á svæðinu, heimsóttum krakkasöfn, dýragarðinn í San Fran, bíó og annað skemtilegt og þegar strákarnir voru sofnaðir lögðumst við yfir síðustu seríu af 24 sem við keyptum og horfðum á á 7 dögum. Áramótin voru álíka róleg og jólin. Saknaði þess helst að vera ekki heima á klakanum yfir áramótin en Kaninn er ekkert mikið að fagna þessum tíma á áberandi hátt.
Á næstu dögum fer allt að detta í rútínu aftur. Halldór byrjaði í skólanum í gær, Atli byrjar 9. jan og ég 10. jan. Útsölurnar eru hér í blóma núna eftir jólin. Finnst líklegt að við skötuhjúin þræðum þær þá fáu daga sem við eigum eftir í fríi á meðan Dunkurinn er í skólanum.
Set inn myndir fljótlega....er með þær í minni tölvu og er löt við að starta enni þar sem það tekur óþarfa langan tíma :( læt samt verða að því fljótlega.
Luv,
The Knutssons

1 Comments:
Bíð eftir myndum.....
LDH
By
Nafnlaus, at 9:54 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home