Helgin
Atli kom heim í gærkvöldi við mikinn fögnuð húsfreyjunnar. Hún var orðin frekar þreytt á aðskilnaðinum og krökkunum sínum eftir vikuna. Ferðin gekk mjög vel og nú er bara að setjast yfir hlutina og ákveða hvað familían vill gera og hvar á hnettinum hún vill búa næstu 2 eða 10 árin. Það er bara hver höfuðverkurinn hér á fætur öðrum....þó þetta séu nú yfirleitt "góðir" höfuðverkir ef það má orða það svo! Það að erfitt sé að velja á milli skóla eða atvinnutilboða þýðir bara að þetta eru allt góðir kostir.
Halldór fékk svo afmælisveisluna sína í dag. Það var þrusu stuð og nóg fyrir okkur foreldrana að snúast að hugsa um 14 krakkagorma á öllum aldri. Héldum þetta út í garði þar sem við buðum í pizzu, Atli var svo með leiki fyrir krakkana og stýrði þeim eins og leikskólastýra með 40 ára starfsreynslu (þurfti reyndar að leggja sig eftir átökin en það er önnur saga), átum afmælisköku og skvísuðum að lokum liðinu inn í holuna og settum á eina mynd þegar allir voru orðnir uppgefnir. Tókst rosa vel og allir fóru glaðir heim.
Læt fylgja með nokkrar myndir af litlu dýrunum mínum frá síðustu dögum, og afmælisveislunni auðvitað.
E
Bræður að leika sér

Bræður að glápa á skjáinn

Valur staðinn að verki að stelast til Díu sinnar í næsta húsi

Mér líst nokkuð vel á þessa mamma...Sinbad....já skellum henni á

Lítil sæt rófa

Halldór að baka afmæliskökuna

Slatti mættur....klukkutíma fyrir afmælið

Skipt í lið

Hitt liðið

6 Comments:
Alltaf gaman að sjá nýjar myndir :)
Afmælisveislan hefur greinilega heppnast vel. Atli er góð fyrirmynd, ánægjulegt að sjá hvað hann er virkur í barnauppeldinu.
Annars er allt gott að frétta af okkur. Vorum með opið hús í dag með von um að selja íbúðina. Tvö pör mættu. Vonandi fáum við tilboð eftir helgi, annars er ekki mikil hreyfing þessa dagana...
Er Soffa búin að senda þér óléttumyndirnar? Hringi í þig í vikunni :)
Knús,
Elísabet.
By
Nafnlaus, at 8:37 f.h.
Hæ. Við erum komin heim og byrjuðum á að kíkja á bloggið. Halldór til hamingju aftur með afmælið. Vest að geta ekki sent þér myndir af húsinu en það tekst vonandi en tímann. Lilja er í Danmörku annars allt gott að frétta. Bless mamma
By
Nafnlaus, at 11:07 f.h.
Mikið er næs veður hjá ykkur! Skemmtilegar myndir... var að hringja en engin svaraði. Reyni síðar. Ása
By
Nafnlaus, at 12:22 e.h.
Oh, var úti í garði með Val að leika. Já, er yfirleitt inni á morgnana, til hádegis. Um 5-6 heima...kannski ekki besti tíminn fyrir ykkur með krakka að hringja á! Heyri vonandi í þér fljótlega.
By
Nafnlaus, at 1:57 e.h.
Hæ hæ þið öll!
Glæsileg afmælisveisla spurning um að Atli sendi Jóa línu með uppskrift að afmælisleikjum þar sem við verðum í þessum sporum næstu helgi,,he he :-)
Hitti kallinn þinn í mýflugumynd í Leifstöð, gott að sjá einhvern hluta af ykkur og vonandi náði hann að skila knúsi til restar af familiunni. Frábært að heyra af góðu gengi hans í atvinnuviðtölunum og nú krossum við bara putta og vonum að ákvörðun um að færa sig á nærliggjandi slóðir verði fyrir valinu.
Sætir og sælir bræður á myndunum.
Kv,Soffa og co
By
Nafnlaus, at 2:26 f.h.
Flott veisla hjá ykkur... soffa segist hafa seð atla í myflugumynd... ég reyndar bara heyrði af honum í myflugumynd :)
Hér er allt gott að frétta... er bara að starfa mína 11-12 tíma á dag sem er ágætt.. sérstaklega þar sem jólin eru bara á morgun.. tíminn fljótur að líða ..
gaman að heyra af góðum tilboðum..
snilld að sjá myndirnar!! ég þykist nú eiga smá heiður sko.. þar sem ég var nú soldið í því að styðja Valinn við að skríða .. gaman að sjá hann bara hlaupa um núna...
Kveðja Billi
By
Nafnlaus, at 9:16 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home