Halldór orðinn 6
Prinsinn á afmæli í dag, 21. nóvember. Hann er orðinn 6. Merkilegt hvað hann er fljótur að stækka og eldast. Hann fékk Playstation Lego Star Wars II leik í afmælisgjöf og var hæstánægður með það. Barcelonabúningurinn er ekki enn kominn í póstinum sem hann átti að fá. Það verður því bara jólagjöfin í ár. Það er svo búið að bjóða í veislu á sunnudaginn þegar Atli er kominn.
Mamma og pabbi eru enn á Flórída og klóra sér víst í hausnum yfir því hvaða hús þau eiga að velja sér. Þau hafa skoðað held ég 17 hús og hafa valið einhver 5 úr sem þau ætla að líta á aftur. Þetta er allt í sama garðinum, eru ólík og misjafnlega verðlögð. Já, þetta getur verið hausverkur. Ég skil það. Þau fara heim á laugardaginn og verða að vera búin að finna út úr þessu fyrir þann tíma.
Annars ekkert nýtt að frétta. Allt gengur vel og sinn vanagang þótt við söknum Atla auðvitað.
Kv,
E
Mamma og pabbi eru enn á Flórída og klóra sér víst í hausnum yfir því hvaða hús þau eiga að velja sér. Þau hafa skoðað held ég 17 hús og hafa valið einhver 5 úr sem þau ætla að líta á aftur. Þetta er allt í sama garðinum, eru ólík og misjafnlega verðlögð. Já, þetta getur verið hausverkur. Ég skil það. Þau fara heim á laugardaginn og verða að vera búin að finna út úr þessu fyrir þann tíma.
Annars ekkert nýtt að frétta. Allt gengur vel og sinn vanagang þótt við söknum Atla auðvitað.
Kv,
E

7 Comments:
hæ hæ Ella og fjölskylda
Innilegar hamingjuóskir með 6 ára afmælið Halldór, þú ert sannanlega orðin stór, við hlökkum til að sjá þig/ykkur, þó ekki sé nema á myndum í bili. Ástarkveðja Anna og Steinunn frænkur.
p.s. er búið að ná bófanum?
By
Nafnlaus, at 4:36 f.h.
Takk fyrir kveðjuna,
Bófinn er fundinn og sofum við því orðið á nóttunni. Mamma sagði mér frá því að þau settu óvart af stað þjófavarnarkerfið í einu húsinu sem þau voru að skoða með fasteignasalanum. Næsta sem þau vissu var að þau horfðu beint upp í byssuhlaupið hjá löggunni sem var mætt á svæðið. Þeir eru sko ekki lengi að draga upp byssurnar hér, hvort sem er almenningur eða löggur.
By
Nafnlaus, at 7:49 f.h.
Ása, síminn minn er:
001-650-497-9490.
Endilega láttu í þér heyra sem fyrst. Stelpurnar eru líka með hann ef þú gleymir honum aftur...og aftur :)
By
Nafnlaus, at 7:50 f.h.
Innilega til hamingju með drenginn. Tíminn er svo sannarlega fljótur að líða. Mér finnst svo stutt síðan þið Soffa voruð svo myndarlegar með kúlurnar ykkar, ólettar af Halldóri og Dísu. Ég á svo fínar myndir af ykkur saman.
Sendum okkar bestu afmæliskveðjur,
Knús og kossar,
Elísabet,Eiríkur og Brynja Lísa.
By
Nafnlaus, at 7:59 f.h.
hæhæ... til hamingju með afmælið Halldór..
úff hvað ég væri til í að vera þarna með ykkur í hitanum.. ég er sko nánast orðinn samvaxinn við ullarsokkana.. sérstaklega þar sem ofnakerfið í húsinu tók upp á því að virka illa.. besti tíminn til þess í hundrað gráðu frosti :/
ég sé mig alveg fyrir mér.. á linuskautum eða fjallahjóli með sólgleraugun mar...
þarf að finna mér lottómiða með vinning og bara koma mér fyrir í svona loftslagi..
kv Billi
By
Nafnlaus, at 8:28 f.h.
Til hamingju með afmælið Halldór Andri. Pabbi þinn tók smá afmælispakka með út handa þér frá okkur í Hegranesinu.
Lilja Dóra og co.
By
Lilja Dóra, at 4:37 f.h.
Til hamingju með afmælið elsku Halldór. Vonandi sjáumst við sem fyrst, hvort sem það það verður á Spáni, USA eða heima á Íslandi;) Þín vinkona Daníela.
By
Nafnlaus, at 2:52 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home