Komin í viku"frí" eða þannig
Atli leggur í vikuferð til Evrópu í fyrramálið. Hann er að fara í slatta mörg viðtöl heima, í Svíþjóð og í Danmörku. Þetta verður pakki hjá honum. Ég hef hins vegar ákveðið að fara ekki til Flórída á meðan. Fann ekkert fargjald þangað yfir á viðráðanlegu verði fyrir námsmenn nema með stoppi þar sem þurfti að skipta um vél og eitthvað vesen. Það er of mikill pakki fyrir minn smekk. Ég er búin að reyna ýmislegt ein með þá tvo og ég veit nákvæmlega hvernig þetta á eftir að vera. Leiðinlegt samt að geta ekki hitt settið, velja með þeim hús og hanga í smá sólbaði.
Við verðum sem sagt ein hér í Stanford frá og með morgundeginum en þetta er Thanksgiving vikan hér í USA þar sem allir eru í fríi og fara heim til sín að borða góðan mat og hitta ættingja. Halldór Andri á svo afmæli á þriðjudaginn, verður 6 ára. Hann fær sína afmælisveislu næstu helgi þegar pabbi hans verður kominn heim. Gjöfin var pöntuð á netinu fyrir nokkrum dögum, forlátur Barcelona fótboltabúningur (liðið hans Eiðs Smára í dag) þar sem búið er að skrifa Halldór nr. 10 á treyjuna. Haldið þið að gaurinn verði glaður eða hvað!
Það er búið að vera of mikið að gera hjá öllum hér síðustu vikur. Atli er búinn að vera á trilljón að skila og klára fyrir "fríið" þannig að ég hef lítið séð af honum síðustu vikuna. Ég rétt hangi uppi þessa dagana þar sem Valur tók upp á því fyrir nokkrum vikum að vakna 100x á nóttu.....aftur. Ég er oft gjörsamlega vöknuð kl. 5 á morgnana, illt í augunum, puttunum og löppunum af þreytu en get ekki sofnað aftur. Svo hef ég verið svo þreytt að það hefur lítið farir fyrir lærdómi hjá mér á kvöldin. Horfi á Grey's Anatomy og fer svo að sofa. Þetta er eina serían sem ég nenni að horfa á um þessar mundir. Bíð spennt alla vikuna eftir næsta þætti en svo var reyndar að byrja einhver sería sem heitir Day Brake, spennusería sem lofar góðu. Held ég detti líka í hana.
Að lokum, les blogg hjá vinum og kunningjum á Íslandi og blöðin á netinu og alls staðar er minnst á þetta blessaða íslenska vetrarveður. Ég finn til með ykkur. Maður er fljótur að gleyma þessu búandi langt í burtu frá kuldanum og finnst skrýtið hvernig allt getur verið svo dimmt og napurlegt þarna fyrir austan þegar hér er orðið bjart kl. 6:30 á morgnana og maður þarf kannski að skella sér í flíspeysuna og UGG stígvelin þegar hjólað er með Halldór í skólann á morgnana. Þetta er ekki verra en það.
Sendi eina góða með í tilefni af veðurtalinu....þó þið finnið lítið fyrir Global Warming á Íslandi um þessar mundir og klæðist eflaust þessum stóru í hörkufrostinu sem skollið er á um allt land :)

Verið nú dugleg að senda mér pósta og símtöl í vikunni meðan kallinn er í burtu.
Luv,
E

2 Comments:
Það er nú bara gamla og góða föðurlandið sem blífur núna í 11° frosti.Ég fylgist með sifum og myndum(frábærar),vildi að ég væri hjá ykkur í hitanum og góðaveðrinu.Kær kveðja Anna frænka.
By
Nafnlaus, at 3:25 e.h.
Hæ Anna. Já, þú þarft að skella þér í heimsókn. Velkomin þegar þú vilt. Heyrði í Atla áðan, hann þurfti að klofa snjó til að komast inn hjá mömmu sinni. Halldór fannst þetta mjög spennandi.
By
Nafnlaus, at 3:09 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home