California here we come...again

laugardagur, september 02, 2006

Allir í skóla...nema Valur

Jæja, jæja, jæja. Er ekki kominn tími til að blogga? Held það. Það er bara nóg að gera hjá okkur og verður framundan. Ferðalagið mikla frá LA og hingað heim gekk bara svaka vel. Lögðum af stað með yfirfullan bíl snemma morguns (prjónuðum á aftudekkjunum alla leið) og vorum um 8 tíma á leiðinni með 3 góðum stoppum. Strákarnir voru alveg rosalega góðir, heyrðist varla í þeim alla leiðina.

Íbúðin okkar var svo þvílíkt hrein og fínt þegar við komum. Við leigðum góðu fólki hana frá Spáni en fólk hér í kring var að lenda í ýmsustu vandræðum með fólkið sem það leigði til yfir sumarið. Við vorum blessunarlega laus við það. Halldór byrjaði svo í skólanum helgina eftir að við komum og er nú búinn að fara í skólann í 2 vikur. Hann er svaka ánægður með þetta allt saman.

Það er ný íslensk fjölskylda hér í garðinum. Þau eru bæði lögfræðingar í framhaldsnámi og eru með 3 krakka. 14 ára ungling, strák á sama aldri og Halldór (6 ára) og 5 ára stelpu. Þeir eru algjörir partners in crime og hanga saman öllum stundum. Svo er auðvitað nóg af krökkum hér út í garði öllum stundum til að leika við.

Valur er komin með vinkonu í íbúðinni við hliðina. Hún kemur til mín á hverjum degi til að leika sér við Val. Tveggja og hálfs árs stelpa sem heitir Día. Annars er íbúðin hjá okkur eins og félagsheimili barna. Það er alltaf fullt hús hér af krökkum úr garðinum....veit ekki hvort það sé af því við erum svo æðisleg eða að þau mega hvergi annars staðar leika öll sömul saman inni (flýja hitann).

Já það er búin að vera heitt veður hér undanfarið. Við höfum reynt að skreppa eins oft og við getum í sund hjá Esperönsu og Sean og við getum og er alltaf jafn gott að dýfa sér í kalda sundlaug þegar það er svona heitt.

Matarboðapakkinn heldur áfram og hefur ekkert verið slakað á í þeim efnum. Við vorum með nýju íslensku fjölskylduna í mat um daginn og búin að fara í nokkur boð sjálf. Fengum grannana okkar til að passa strákana í gærkvöldi og fórum í fondueboð hjá Espe og Sean í gærkvöldi ásamt pari frá Frakklandi. Skemmtum okkur konunglega og var þetta í fyrsta skipti sem við förum eitthvað tvö saman hér í Stanford. Það verður svo gerð bragarbót á því því tengdó er að koma hingað í dag i 2 vikur og vonumst við eftir að settið passi fyrir okkur....svolítið mikið.

Annars eru stóru fréttirnar héðan að Atli fékk tilboð um fasta vinnu hjá BCG (Boston Consulting Group) eftir útskrift eftir vinnu sumarsins. Já, drengurinn stóð sig bara vel og þeir vildu ráða hann. Við erum að skoða pakkann. BCG er alþjóðlegt fyrirtæki og er m.a. með skrifstofur í Köben, Stokkhólmi og Osló. Hann getur sóst eftir að vera fluttur þangað ef þannig stendur á. Við sjáum til hvað við gerum við þetta en samt gott að vera kominn með eitt gott tilboði í vasann.

Jæja, þetta er það helsta héðan. Jú, svo er ég auðvitað byrjuð í fjarnáminu í viðskiptafræðinni í HÍ og skemmti mér rosalega vel. Atli er bara með litlu dýrin á meðan ég sinni þessu en hann byrjar ekki í skólanum fyrr en í lok sept.

Set inn myndir á næstu dögum.
Love,
E

6 Comments:

  • Frábærar fréttir. Til hamingju Atli og Ella. Mæli með Stokkhólmi... var þar síðustu helgi og borgin er alveg frábær! kveðja, Ása

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:55 e.h.  

  • Blessuð Ása, heyrðu ég er alltaf að tékka á myndasíðunni hjá þér...þú hefur ekkert uppfært síðan um jólin! Hvernig væri að skella inn nýjum myndum af krökkunum og nýja húsinu.

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:21 f.h.  

  • Hæ,hæ og takk fyrir síðast. Gaman að spjalla við þig í símann um daginn, mæli með þessu símakorti.
    Hlakka til að koma til ykkar og sjá þetta allt saman hjá ykkur.
    Það verður greinilega nóg um gestagang hjá ykkur á næstu dögum.
    Ekki gleyma að setja inn myndirnar...
    Knúúúússs,
    E

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:24 f.h.  

  • En fyndið - heitir þetta nýja fólk nokkuð Borghildur og Viðar? Alla vega, ef svo er þá gerði Viggi upp húsið þeirra úti á Nesi og Borghildur er ein besta vinkona hennar Helgu Hlínar svilkonu minnar (= Helga er s.s. kærastan hans Unna bróður hans Vigga).

    Og ég hélt að þú hefðir farið í viðskiptafræðina í HR!?

    Mér sýnist ykkur ganga fáránlega vel þarna úti með allt - þetta flotta fyrirtæki þarf bara að opna brans á Íslandi til að þið komið einhvern tímann heim....

    Kv,
    Erla og kó.

    By Blogger Erla, at 6:27 f.h.  

  • En fyndið. Þetta eru þau!

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:08 f.h.  

  • Hæ hó!
    Alltaf gaman að sjá nýtt blogg með fréttum af ykkur.
    Til hamingju með starfstilboðið hans Atla, greinilegt að hann hefur verið að gera góða hluti þarna eins og hans er von og vísa auðvitað.
    Allt gott að frétta héðan annars, erum farin að hlakka mikið til að koma til ykkar þann 20.sept.
    Bjalla á þig á eftir Ella mín.
    Knús,
    S & co

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:38 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home