California here we come...again

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Íbúðin farin

Vildi bara láta þá sem hugsanlega voru að spá í leigu á húsnæðinu okkar hér ...sorry...húsnæðið hefur nú þegar verið leigt út í heilu lagi allan þennan tíma. Það hafa nokkrir haft samband en þetta tók nokkrar klukkustundir eftir að íbúðin var skráð á leigu.

Annars er ég búin að kaupa miða heim 22. júní og út aftur 29. júlí. Vonandi verða þetta sóladagar á Íslandi.

Veðrið hér í dag var glæsilegt. Allir krakkarnir sem búa í garðinum voru úti í allan dag og var þetta því góður dagur hjá Halldóri Andra. Við Atli ruku til í góða veðrinu og keyptum okkur loksins grill. Grilluðum kjúlla í kvöld, drukkum rauðvín og fengum okkur eftirrétt. Svo er bara nóg að gera framundan. Er að fá vinkonu mína hana Esperönzu í lunch á morgun. Við Atli ætlum á smá djamm á föstudagskvöldið og skella okkur í þrítugsafmæli og svo höfum við boðið 4 pörum frá Argentínu í rosa grillveislu til okkar á laugardaginn. Svo er verið að reyna að troða inn dinner á sunnudaginn með íslensku fjölsyldunni hér í garðinum. Þegar helgin er liðin koma mamma og pabbi þannig að það er bara nóg að gera.

Læt hér fylgja með myndir af nokkrum krökkum í garðinum á laugardaginn þegar þau fóru á Easter Egg Hunt (þá er búið að fela nammi út um allan garð sem krakkarnir reyna að finna og setja í páskakörfuna sína).

Seinna,
E


3 Comments:

  • Sæl elskurnar mínar.

    Sætar myndir eins og við var að búast. Skrapp til mömmu þinnar í gær með sumargjafir handa Vali og Halldóri mínum. Hitti Billa og ömmu þína og afa ofl. og virtust allir bara ansi hressir. Nú er allt í einu farið að hlýna hér, bara komið vor held ég. Pabbi þinn var úti í garði og ég get ekki betur séð en að verið sé að grafa upp allan garðinn og gott betur, því gatan fyrir framan húsið er öll uppgrafin líka! Hver er Esperanza? Þú hefur ekki sagt mér neitt um hana eða hvað? Þú veist hvað ég er forvitin. Ég sé að það er heilmikið í gangi hjá ykkur, og ekki spillir náttúrulega þetta góða veðurfar fyrir öllum þessum uppákomum og skemmtunum. Jæja elskurnar mínar verum í bandi, hitti ykkur á MSNinu um helgina,kossar og knús frá ömmu Hildi

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:48 f.h.  

  • Gleðilegt sumar elsku fjölskylda! Kveðja frá öllum á Melhaganum

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:13 f.h.  

  • Gleðilegt sumar elsku vinir :)Gaman að heyra að þú og strákarnir ætlið að kíkja heim í sumar. Leiðinlegt samt að þú komist ekki í brúðkaupið en þín bíða þá bara myndir, myndband og gomma af slúðri þegar þú kemur heim í júní.
    Hafið það sem allra best þar til næst...
    Knús,
    Elísabet

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home