LA style :)
Jæja þá erum við komin heim eftir fjör helgarinnar í borg englanna. Þetta var nú meiri ævintýraferðin get ég sagt ykkur. Það var hreinlega öllu til tjaldað þarna af hálfu BCG og það gert með sannkölluðum "LA style" en svona ferðir ganga hreinlega út á að "kaupa" til sín starfsmenn.
Ráðgjafabransinn í Bandaríkjunum snýst um að fá til sín gott fólk úr þessum skólum því starfsmannaveltan í bransanum er gríðarleg. Fólk stoppar stutt við, kannski 2-4 ár, og notar þetta starf sem stökkpall inn annað og varanlegra starf. BCG í LA sem sagt valdi um 12 manns eftir viðtölin sín og bauð starf. Þeir vita hins vegar ekki hvort þessir umsækjendur hafa fengið tilboð frá öðrum fyrirtækjum um starf en til að reyna að hafa "jákvæð" áhrif á val þeirra er boðið í svona ferðir þar sem öllu er tjaldað til, allt það flottasta og besta valið undir liðið og allt borgað auðvitað.
Við fórum öll fjögur héðan á föstudagskvöldið. Flugið frá San Jose flugvelli (sem er stutt frá okkur) til LA tók ekki nema 45 mínútur en heildarferðin hefur tekið svona um 4 klst. Þið vitið hvernig þetta er...það er öryggistékk og öryggistékk og öryggistékk og bið og traffík og allt þetta sem fylgir því að ferðast með flugi hér í USA. Svo er það allur farangurinn. Það fer nú ekki lítið fyrir honum þegar maður ferðast með 2 börn þótt þetta sé bara fyrir 2 daga. Ferðin gekk samt vel og var ekki erfið. Þegar við vorum komin upp á hótel hefðum við alveg getað sætt okkur við 3x meira og lengra ferðalag. Shutters on the beach (www.shuttersonthebeach.com) heitir hótelið og er staðsett á ströndinni í Santa Monica, sem sagt á besta stað í LA. Þarna tók hótelgengið hrikalega vel á móti okkur, vissi strax að við vorum hluti af BCG liðinu, allt klappað og klárt og greinilega búið að borga þeim fyrir að vinna vinnuna sína! Þar sem Atli kom með alla familíuna með sér var honum komið fyrir í einni af svítum hótelsins (hann var sá eini auðvitað af þessum sumarstarfsmönnum sem á börn..kemur það á óvart..nei). Okkur hreinlega brá þegar við löbbuðum inn á herbergið....eða íbúðina ætti ég frekar að segja. Held að hótelherbergið hafi verið stærra en íbúðin okkar hér heima en ég má til með að lýsa þessu aðeins fyrir ykkur.
Gengið var í stórt living room herbergi með sófa, skrifborði, bókahillum, hægindastólum. Þarna voru bækur, dvd-diskar, geisladiskar í græjurnar (Bang og Olafsen græjur) og risa LCD sjónvarpsskjár. Þetta herbergi átti Halldór Andri en sofanum var breytt í svefnsófa. Hann hafi svo sér klósett og skápa. Inn af þessu herbergi var stórt master svefnherbergi. Rúmið var æði og þarna var annað eins LCD sjónvarp sem við höfum út af fyrir okkur og gátum horft á úr rúminu. Master baðherbergið var svo út frá okkar svefnherbergi en þar var æðisleg sturta og risa nuddpottur þar sem hægt var að liggja og láta líða úr sér og horfa á enn eitt LCD sjónvarpið sem hékk þarna á veggnum. Á öllu herberginu var parket og hér og þar voru ofnar mottur á gólfinu. Sem sagt flottasta hótelherbergi sem við höfum komið inn á. Að auki var okkur sagt að allt væri frítt. Við máttum borða á okkur gat, panta það sem við vildum horfa á í sjónvarpinu (myndir sem verið var að sýna í bíó) og reyna bara að hafa það sem allra best. Á herberginu beið svo pakki til Atla frá BCG með einhverju dóti (flíspeysa og eitthvað meira). Þegar hjónakornin voru svo komin upp í rúm fyrsta kvöldið og farin að rífast yfir því hvaða mynd yrði fyrir valinu það kvöldið var bankað á dyrnar. Þjónn hafði verið sendur til okkar með late dinner (Atli náði ekki að mæta í dinner þetta kvöldið með liðinu þar sem við komum svo seint en liðið át á einhverjum svaka tískustað auðvitað sem heitir Geisha og er í eigu Aston Kutsher), ekta kampavín af fínustu gerð, hrúgu af sætum ljúffengum jarðaberjum, smákökur og mjólk. Við sofnuðum útbelgd með bros á vör það kvöldið.
Veðrið á laugardeginum var frábært, 25 stiga hiti og sól, og skemmti það ekki fyrir. Dagurinn hófst á því að panta það dýrasta á morgunverðarmatseðlinum í rúmið. Það sem seinna tók við voru svo limmur, Universal Studios með "in front of line pass" auðvitað svo við þyrftum ekki að standa í neinum röðum, matur, sundlaug og smá sólbað, dvdgláp og notarlegheit. Atli fór og hitti BCG liði á einhverjum veitingastaðnum þarna í Santa Monica um kvöldið en við Halldór fengum okkur auðvitað kvöldmat í rúmið, humar í kús kús beði, og rosalegustu eftirréttina sem við fundum á matseðlinum. Á bíóskjánum okkar við rúmið var svo verið að sýna Chicken Little yfir matnum! Sunnudagurinn fór svo í hvíld, sundlaug, mat, mat, mat og göngutúr meðfram ströndinni í Santa Monica. Við vorum svo kvödd um tvö leytið í dag af BCG liðinu. Lokaorðin voru þessi....við hugsum vel um starfsmenn okkar og við vonum að þið hafið fundið þá strauma! Vonandi hjálpar þessi ferð ykkur í að taka rétta ákvörðun um það hvar þið viljið vinna í sumar!
Við komum svo heim til Stanford um kvöldmatartímann í kvöld. Komin aftur á námsmannaböddséttinn og costco frystikistumatinn. Við erum þokkalega sátt við þetta óvænta fría lúxus-helgarfrí sem við áttum þarna í LA. Svona gerast þá kaupin á eyrinni hjá jöxlunum hér í Kaliforníu. Ja hérna hér, við bíðum bara eftir næsta tilboði og næsta weekend escape!

13 Comments:
Frábært, gott að þú skelltir þér með! Hlýtur að hafa skilið eftir sig jákvæða strauma í garð BCG. Var Atli ekki búinn að ákveða sig?
LDH
By
Nafnlaus, at 8:14 f.h.
Jú Atli var búinn að ákveða að fara til þeirra fyrir þessa ferð en þeir vissu það auðvitað ekkert. Sagðist ætla að klára öll viðtölin sín og ákveða sig svo sem er greiniega strageía sem virkar ágætlega. En þetta var spes og gaman. Ekki á hverjum degi sem maður kemst í svona pakka.
By
Nafnlaus, at 8:34 f.h.
þetta hljómar nú ekki illa! Ég sé að Halldór hefur hefur verið að fíla þetta í botn! Ég segi nú eins og Yogibilli, ef þetta er stökkpallurinn í önnur störf, hvernig eru þau þá með leyfi! Ótrúlega spennandi segi ég bara!
Hringi til að fá þetta beint í æð
By
Nafnlaus, at 9:44 f.h.
Er ekki einhver eftirspurn eftir ömmum þarna hjá BCG?
By
Nafnlaus, at 9:45 f.h.
Frábær helgi hjá ykkur greinilega! Ekki leiðinlegt að lenda í svona ævintýri.
Kv, Soffa og co.
By
Nafnlaus, at 10:06 f.h.
Komið þið sæl elskurnar.
Ég segi: "Ég er nú bara aldeilis hlessa", eins og kerlingin sagði. Sjálfur er ég að fara til Kaupmannahafnar í fyrramálið og býst ekki við svona trakteringum á hótelinu sem ég verð á - nema þá að síður sé - og þó. Vonin lifir!
Jæja. Kærar kveðjur til allra.
Guðjón afi.
By
Nafnlaus, at 12:03 e.h.
Sæl. Það er bara svona. Eruð þið ekki að verða feitari en Valur Björn? Hins vegar sýnist mér af myndinn í rólunni að hann sé farinn að renna! Hann er svo flottur þarna. Hræddur er ég um að ef Atli megi passa sig á að missa ekki brjóstkassann niður. Það er erfiðara en þú heldur Atli minn að ná honum upp aftur, - missirðu hann niður !! En til hamingu með þetta starf. Vonandi er það jafn gott og þú heldur en þetta er þó það sem þú vilt, eftir því sem Ella segir. Það skemmir nú ekki fyrir. Hvernig gengur í skólanum. Hvað kemur út úr prófunum og verkefnunum? Ertu ánægður með einkunnirnar ? Ef þú ætlar að vinna þarna einhvern tíma þá skiptir máli hverju þú getur flíkað frá skólanum, - það veistu.
By
Nafnlaus, at 1:01 e.h.
Gaman að heyra að þið hafið það svona gott. Sætar myndir af ykkur og Valur orðinn svona mannalegur, algjört KRÚTT.....Það er ánægjulegt að geta fylgst með ykkur svona í gegnum netið(mætti samt vera duglegri við að skrifa comment)Af okkur er allt gott að frétta bílakaup, brúðkaupsundirbúningur og fasteignahugleiðingar eru efst á baugi hjá okkur þessa dagana. Hlakka til að heyra frá ykkur aftur og sjá fleiri myndir af þessari myndarlegu fjölskyldu :) Sendum kossa og knús yfir hafið til ykkar xxxxx Mbk E+E+B
By
Nafnlaus, at 5:43 f.h.
Það er bara aldeilis, hamingjuóskir til Atla...þetta er ekkert smáræði sem er í gangi!
Gott að heyra hvað lífið fer vel með ykkur.
By
Nafnlaus, at 9:20 f.h.
Sæl og blessuð. Ég hef verið að fylgjast með þessu skemmtilega bloggi ykkar og einnig fengið fréttir beint í æð frá pabba og co. Til hamingju Atli minn, þetta er geggjað og ferðin til ykkar til LA lofar góðu með framhaldið. Spennandi! Það er greinilegt að strákarnir dafna vel þarna í sólinni, myndin af Val í rólunni er hrikalega sæt. Ástarkveðjur til ykkar allra.
Kv, Auntie Úlfhildur
By
Nafnlaus, at 5:51 f.h.
Hæ Ella mín
Þvílíkt prinsessuævintýri sem þessi helgi hefur verið. Þið þurfið væntanlega ekki að hafa peningaáhyggjur í framtíðinni ef bransinn er svona :) Gott að sjá að þið eruð að blómstra þarna úti. Ég sakna þess þó auðvitað að hafa ekki kompaní af þér hérna heima í fæðingarorlofinu. Ég sé að Valur er að dafna eins og blómi í eggi, Sóley líka (þó hún sé nú örugglega talsvert minni og nettari, er ekki mikil bolla frekar en systir hennar).
Ég hlakka til að sjá ykkur í sumar, bið að heilsa og ég óska Atla til hamingju með djobbið.
Heyrumst!
By
Nafnlaus, at 5:39 f.h.
takk fyrir allar heillaóskirnar...þetta er nú búinn að vers töluverður prósess að ná í vinnu hérna og ég held að Ella sé fegnust að þessu sé lokið. Gaman að geta tekið "the Knutsson klan" til LA í smá dekur :-)
By
Nafnlaus, at 12:31 f.h.
... verst að Ella gleymdi að nýta sér spaið á hótelinu!
En innilega til hamingju með þetta Atli minn. Bestu kveðjur, Ása og Einar.
By
Nafnlaus, at 1:00 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home