California here we come...again

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Og það verður....LA í sumar

Hef eina góða stóra frétt fyrir ykkur. Atla var boðið starf hjá BCG (Boston Consulting Group) í LA í sumar sem hann ætlar að taka. Hann fór í viðtal nr. 2 hjá þeim á miðvikudaginn í LA og þegar hann lenti aftur í San Fran var hingt í hann og honum boðið starfið. Ég er auðvitað hrikalega stolt af honum enda ekki auðvelt að komast í þessar stöður. Þetta var eitt af þeim stöfum sem hann langaði mest í og hjá þessu fyrirtæki þannig að hann er ótrúlega ánægður með þetta. Fyrirtækið er mjög international (staðsett um heim allan og mikið af allra þjóða kvikindum á öllum skrifstofunum þeirra) og er þekkt fyrir mjög góða starfsmannastefnu. Reynt er að passa uppá að menn vinni ekki yfir sig og reyni að halda balans milli vinnu og einkalífs eins og þeir geta (en vinna í þessum bransa er ekki 40 tíma vinnuvika get ég sagt ykkur en samt ekki svo slæmt að þeir eigi mann eins og bankageirinn er hér). Fyrirtækið er rankað nr. 11 á lista yfir bestu fyrirtækin til að vinna hjá í USA.

Þeir buðu okkur hjónunum svo niður til LA yfir helgina ásamt hinum sumarstarfsmönnunum í activity og dinnera. Við erum svolítið búin að liggja yfir þessu með barnapössunarmálin og á endanum ákváðum við að fara bara öll fjögur til LA. Hefði alltaf þurft að taka Val með mér og Halldór hefði orðið vitlaus hefði hann einn verið skilinn eftir í pössun hér. Við getum spókað okkur saman eitthvað í LA og Atli mætir bara í dinnerana einn. Förum á föstudagskvöldið og komum heim seinnipartinn á sunnudaginn. Sumarið mitt er nú farið að skýrast, Ísland, LA og Palo Alto (San Fran).

7 Comments:

  • Þetta er spennandi fyrir ykkur og góðar fréttir. Hjartanlega til hamingju.Sendi smá pakka í dag til strákanna bara e-ð lítið frá ólympiuleikunum. Bless mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:19 e.h.  

  • Innilega til hamingju með þetta!
    Kv. Vilborg.

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:25 f.h.  

  • Þetta er frábært, enn og aftur til hamingju. Gott hjá ykkur að fara bara öll til LA - það verður gaman að frétta af þessu eftir helgi, kkv Hildur

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:49 f.h.  

  • Góðar fréttir! Innilega til hamingju með þetta kæru vinir. það verður svo spennandi að vita hvar í LA þið verðið, mæli með strandlengjunni s.s Manhattan beach, Redondo, Torrence eða Hermosa beach! Mmmmm LA er frábær og þið eigið án efa gott sumar framundan!
    Knús og kossar frá T9
    S & co

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:19 e.h.  

  • Frábærar fréttir. Innilega til hamingju:)) Kv., BetaH

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:18 e.h.  

  • Frábært!! Óskum ykkur innilega til hamingju með þetta.
    Kv,Eva og Frosti

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:57 e.h.  

  • Hæ,
    vorum að koma úr frábæru skiðaferðalagi til Selva á Ítalíu. JR orðinn maestro á skíðum - eltir okkur niður allar brekkur alpanna. Meira að segja stóra Jónas fór fram i´"stíl" (ath. í gæsalöppum - þið getið ímyndað ykkur JFJ á skíðum).

    Til hamingju Atli með að landa sumardjobbi hjá BCG. Held að það sé betra að vinna fyrir BCG en McKinsey, þeir gefa mönnum allavega séns á að eiga fjölskyldu. Þetta verður æðislegt á CV-ið.

    Kveðja frá Jónusum, JR þakkar fyrir bréfið frá HA. Lilja Dóra

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:23 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home