Valentínos
Í dag er Valentínusardagurinn. Það var því ekki talað um annað í garðinum í dag en það hvernig kerlurnar ætluðu að koma mönnum sínum á óvart með því að gera þetta eða með því að gera hitt. Mér fannst hálf fyndið að sitja og hlusta á þær röfla um þessi rosalegu plön sín. Þetta er svo yfirgengilegt hjá mörgum eins og svo margt er orðið nú í dag. Þetta snýst allt saman um að kaupa, kaupa og kaupa. Auglýsingaflóðið rignir yfir mann í útvarpi, sjónvarpi og í ruslpósti. Þetta líkist brjálæðinu á jólunum. En alla vega, ég man eftir fyrsta Valentínusardeginum sem við Atli áttum hér í USA. Það var í febrúar árið 1997 í North Carolina. Ég föndraði með krökkunum sem ég var að passa þá önnina stórt hjarta sem ég fyllti af súkkulaði en auk þess keypti ég fyrir hann silkiboxeranaríur með hjartamynstri sem Atli svaf í í nokkur ár. Í ár skrifaði ég til hans sætt kort. Atli gerði þó enn betur, gaf mér kort á móti, bók (Saving fish from drowing eftir Amy Tan), SUDOKU bók (er orðin húkt á þessu sudoku - Bríet kom mér í þetta í spítalalegunni eftir gallsteinana) og fór og keypti take out (það er sko virkur dagur og námsmenn leyfa sér ekki slíkan munað nema tilefnið sé eitthvað spes). Ég hef því nóg að gera næstu vikurnar..hehe.
Annars var dagurinn hjá okkur síður en svo rómó. Atli kom heim í hálftíma, skellti pakkanum á mig, hljóp út til að kaupa mat sem hann renndi niður á met tíma og svo var hann rokinn. Allt vitlaust að gera hjá honum. Viðtöl, lærdómur, próf og ferðalög. Svo er hann hálf svefnlaus og lasinn ofaná allt saman. Vona að þessi törn fari að taka enda. Framundan er alla vega löng helgi (frídagur næsta mánudag) og byrjað er að læna upp matarboðum.

4 Comments:
Mikil pressa á mér að koma með komment hérna...ég er nokkuð sammála konunni minni að við höfum átt rómantískari v-daga. sudoku bókin bjargaði samt deginum!
By
Nafnlaus, at 12:18 f.h.
folks...hvernig væri að koma með smá comment?
By
Nafnlaus, at 1:30 e.h.
Gaf mínum líka kort - fékk óvissuferð til útlanda á móti!!! Fjör í saumó í gær mikið skrafað og skeggrætt, slúðrað og skellt uppúr - allar sammála um að það vantaði þig þó:-(
Knús,
Soffa og co
By
Nafnlaus, at 2:30 e.h.
Já..það er bara öllu tjaldað til. Óvissuferð til útlanda og kjóll úr Karen Millen. Þeir eru að standa sig strákarnir! Verðum að taka okkur á í þessu stelpur.
Soffa, hringi í þig fljótlega til að fá frekari upplýsingar um kjaftasögurnar!
By
Nafnlaus, at 9:53 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home