Hin fínasta helgi
Helgin var flott. Skelltum okkur í dýragarðinn í San Fran á laugardaginn og skemmtum okkur konunglega. Alltaf þegar ég fer til útlanda verð ég að komast í dýragarð...mér finnst það alltaf jafn frábært. Hef oft oft hugsað með mér að ef ég hefði búið í öðru landi eða ef það væri almennilegur dýragarður á Íslandi hefði ég orðið zoo-ologist. Mest hefði ég verið til í að vinna með birni, þeir eru alltaf í uppáhaldi. Einu sinni voru það ísbirnir en hin síðari ár hef ég meira heillast af grizzly björnum (brúnu skógarbjörnunum). Finnst þeir algjört æði. En nóg um það, veðrið var kannski ekki upp á marga fiska (miðað við Kaliforníu) þennan laugardag og var það líklega ástæðan fyrir því að við vorum nánast ein í garðinum! Það var svalt og rigndi örlítið á köflum en það truflaði okkur lítið enda vorum við vel búin. Við vorum hin glöðustu með þetta því þarna gátum við spókað okkur um í friði...engin læti, enginn troðningur, nánast bara við og dýrin. Garðurinn var passlegur að stærð, ekki of stór eins og sumir þessir garðar eru. Það tekur svona um 4-5 klst. að sjá flest allt sem þar er. Það besta við garðinn var samt sem áður það að maður var í svo mikilli nálægð við dýrin (sjá myndirnar hér að neðan). Aldei áður hef ég á ævinni t.d. komið svo nálægt tígrisdýri að ég gæti skoðað tannsteininn á öftustu jöxlum þess! Þetta var alveg magnað en það var einungis gler sem skildi á milli okkar...okkur þótti þetta magnað (sjá myndir hér að neðan). Þetta var allt svona, dýrin voru nánast ofaní manni en svona hef ég ekki fundið fyrir áður í dýragarði. Þarna var einnig frábær Kids Zoo þar sem krakkar gátu gefið húsdýrum að borða en að auki var lítið hús með svona "öðruvísi" afkvæmum sem mátti koma við og jafnvel halda á. Þarna var t.d. barna krókódíll, kyrkislanga, tígrisdýraungi og ég veit ekki hvað og hvað. Halldóri þótti þetta allt saman alveg hreint geggjað. Lilti kallinn varð samt fyrir því óláni þegar hann ætlaði að fara að borða kexið sitt að óvenju lúmskur mávur varð fyrri til og hrifsaði kexið úr höndunum á honum um leið og færi gafst (sjá mynd af óvargadýrinu hér að neðan). Þetta var mjög skondið atvik og höfum við mikið strítt honum á þessu.
Eftir þennan frábæra túr brunuðum við heim á leið og hittum nágranna okkar á besta pizzastað Palo Alto. Þegar heim var loksins komið var börnunum komið í svefn og Risk spilið dregið upp. Hér var svo spilað fram eftir kvöldi.
Það var farið snemma á fætur í morgun og morgunmaturinn undirbúinn. Atli var búinn að bjóða vini sínum í morgunmat og eldaði hann góðan, fitandi morgunmat fyrir okkur a la americano....amerískar pönnslur með sýrópi, jarðaberjum og bönunum, egg og beikon. Við tók svo langur lærdómsdagur hjá Atla en ég og strákarnir spókuðum okkur úti í garði framan af degi. Í garðinum var verið fagna nýju ári Kínverja með tilheyrandi fíneríi. Boðið var upp á alls kyns kræsingar og spjall við nágranna.
Þetta var hin fínasta helgi.
Eftir þennan frábæra túr brunuðum við heim á leið og hittum nágranna okkar á besta pizzastað Palo Alto. Þegar heim var loksins komið var börnunum komið í svefn og Risk spilið dregið upp. Hér var svo spilað fram eftir kvöldi.
Það var farið snemma á fætur í morgun og morgunmaturinn undirbúinn. Atli var búinn að bjóða vini sínum í morgunmat og eldaði hann góðan, fitandi morgunmat fyrir okkur a la americano....amerískar pönnslur með sýrópi, jarðaberjum og bönunum, egg og beikon. Við tók svo langur lærdómsdagur hjá Atla en ég og strákarnir spókuðum okkur úti í garði framan af degi. Í garðinum var verið fagna nýju ári Kínverja með tilheyrandi fíneríi. Boðið var upp á alls kyns kræsingar og spjall við nágranna.
Þetta var hin fínasta helgi.

5 Comments:
Já Ella mín þú hefur nú verið með lúmskan áhuga á hinum ýmsu dýrategundum frá því ég kynntist þér og hef ég nú deilt sumu af því með þér, sbr mýs, kanínur og fleira....! Bölvuð frekja í fjárans fuglinum, hann hefur greinilega ekki kynnt sér "reglur Dóra Dunks"!! Vorum annars að koma úr frábærri skíðaferð í Austurríki. Hef oft heyrt fólk tala um að skíðafrí væru bestu frí sem það færi í og eftir þessa reynslu get ég alveg tekið undir það! Mæli með því!
Saknaðarkv, Soffa og co
By
Nafnlaus, at 5:23 f.h.
þetta hefur greinilega verið frábært, og sætar myndir. Þið sýnið okkur þetta allt þegar við komum í haust. Ég sá Val á skypinu í gær (þú varst sofandi held ég ) hann verður mannalegri með hverjum deginum. Ég held að hann þekki röddina mína, því hann reynir hvað hann getur að fókusera inn í myndavélina þegar ég tala til hans. Barnið er í einu orði sagt yndislegt! bless elskan þín Hildur
By
Nafnlaus, at 8:06 f.h.
Hæ, það er alltaf gaman að heyra af öðru fullorðnu fólki sem hefur gaman af að fara í dýragarða :) (þ.e. er ekki að fara bara fyrir börnin). Þar sem þú hefur áhuga á grizzly björnum þá mæli ég eindregið með myndinni Grizzly man. Þetta er rosalega góð heimildarmynd um mann sem býr með grizzly björnum í Alaska í 13 sumur. Er svoldið átakanleg og spes en vel þess virði að sjá.
Kv. Sigga
By
Nafnlaus, at 1:08 f.h.
Já Grizzly man, held ég hafi séð hana, sá alla vega mynd um mann sem ættleiddi svona björn og kenndi honum....alveg hreint mögnuð mynd en ég man ekki hvað hún heitir (líklega er þetta nú sama myndin). Tékka á henni næst þegar ég fer á leiguna!
By
Ella, at 8:08 e.h.
Guð hvað það hefur verið gaman hjá ykkur :) Ég dýrka líka að fara í zoo fer alltaf þegar ég fer e-ð út :) skemmtó myndir líka.
Bið að heilsa í bili :)
By
Nafnlaus, at 9:08 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home