California here we come...again

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Smá bakslag

Veðrið síðust daga hefur verið æðislegt. Við hjónakornin höfum því nýtt tímann vel í langa göngutúra um Stanford kampusinn meðan Halldór er í skólanum. Halldóri fannst frábært að byrja í skóla eins og Jónas stóri frændi og Anna María vinkona. Hann fór fjórða daginn sinn í morgun en þetta gengur ekki alveg eins og planað var. Hann er auðvitað orðinn 4 mánuðum á eftir hinum krökkunum í að læra að lesa og skrifa auk tungumálsins sem hann þarf að læra. Kennarinn taldi að hann myndi ekki ná krökkunum í bekknum á næstunni og gæti hann því ekki tekið almennilega þátt í því sem þeir voru að gera. Þegar krakkarnir eru jú komnir í almenna public skólakerfið hér þá er bara einn dampur í gangi. Þetta hefði auðvitað verið í lagi hefði hann byrjað með hinum krökkunum í haust en þetta yrði mjög erfitt fyrir hann. Þetta skapar auðvitað vanlíðan hjá honum. Einnig er kannski erfitt fyrir hann að fara úr play umhverfi í algert academic umhverfi. Hann rétt svo komst inn í skólann vegna aldurstakmarkana, þ.e. þeir krakkar sem fæddir voru fyrir 2. des 2000 komust inn í Kindergarten en þeir sem fæðast eftir þennan dag þurfa að bíða eitt ár í viðbót, hann er því með þeim yngstu í bekknum líka. Við töldum því réttast að taka hann út úr skólanum og reyna að setja hann í Montessori prógram (sem blandar saman academic og play) þessa önnina fram á sumar og svo myndi hann byrja aftur í Kindergarten í Escondido Elementary næsta haust, búinn að ná tökum á tungumálinu og gæti verið með alveg frá byrjun. Atli er á fullu núna að skoða skóla í hverfinu sem hann gæti komist í og læt ég ykkur vita hvernig þetta endar nú allt saman. Þar til við finnum annan skóla verður hann í Escondido Elementary þar sem hann byrjaði en það er frábært public skóli sem góðar sögur fara af. Smá bakslag sem Halldór vonandi kemst yfir fjótt.

Lilti Valur er alltaf hinn spakasti. Sefur, borðar, hlær og brosir, aldrei neitt vesen á þessum manni og er hann alltaf glaður. Vinkonur Atla hér á svæðinu höfðu lánað okkur alls konar barnadót sem þær voru hættar að nota sem Valur er að fíla mjög vel. Í uppáhaldi er ruggustóll sem gengur fyrir batteríum og fyrir ofan hann hangir órói sem snýst. Hann getur setið endalaust í stólnum og látið sér líða vel meðan mamman gerir húsverkin eða eldar matinn. Þarf að senda ykkur mynd af þessu apparati þegar tölvan mín er komin í lag (get m.a. ekki hlaðið inn myndum þannig að þið verðið að bíða í nokkra daga í viðbót eftir þeim).

Atli á svo ekki að byrja í skólanum fyrr en eftir 6 daga. Erum að spá í að skella okkur eitthvað um helgina, kannski í einhverjar dagsferðir og skoða okkur um. Við erum búin að kaupa okkur fínan ferðabíl...Ford Escape jeppling, þannig að við ertum tilbúin í að skella okkur á hraðbrautir Californiu.

Svo eitt meðan ég man. Hvet ykkur til að kaupa Atlasferlsi símakort á næstu bensínstöð. Hægt er að kaupa held ég 500, 1000 og 2000 kr. kort en þá kostar ekkert að hringja í mig. Fyir 1000 kr. kort fær maður um 300 mínútur til Bandaríkjanna, kostar bara þessar 1000 krónur fyrir kortið sjálft og svo borgið þið bara innanladssímtal þannig að það er alveg eins að hringja í mig eins og í næsta hús! Veit þetta hljómar hálf ótrúlega en við Atli töluðum saman mörgum sinnum á dag fyrir innanlandstaxta. Skoðið þetta endilega svo ég geti heyrt í ykkur.

Skrifa aftur eftir helgina og læt ykkur vita um ævintýri helgarinnar (og vonandi tekst mér að koma einhverjum myndum á síðuna hjá mér).

Until then...tchuss.

2 Comments:

  • hae hae. Gaman ad vita ad thid erud ad koma ykkur fyrir og ferdin hafi nu endad vel. Eg er sjalfur a hotelraeskni vid Newark Airport og a flug til Taelands a morgun manudag. Hafid thad gott. Bid ad heilsa.
    Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:59 e.h.  

  • Góða ferð til Tælands...líklega langt ferðalag! Heyrðu, varstu ekki búinn að stofna bloggsíðu sem þú ætlaðir að halda á ferðalaginu um Tæland?

    By Blogger Ella, at 6:25 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home