California here we come...again

þriðjudagur, desember 07, 2004

Ísland, fagra Ísland....

Jæja, þá erum við mætt heim í myrkrið og kuldan sem er frábært. Var í alvörunni byrjuð að sakna alls hins versta við Ísland. Mættum í morgun í rokið og frostið á Keflavíkurflugvelli, skriðum upp í rúm um 8 leytið eftir að hafa borðað okkur södd af íslenskum morgunmat og sváfum til að verða 15 í dag. Frábært.

Miami var líka alveg stórkostleg borg. Við vorum á alveg mögnuðu hóteli á Miami Beach, frábær aðstæða, frábær einkaströnd og allt til fyrirmyndar. Hitinn var fullkominn, sjórinn var fullkominn, allt var bara frábært. Við náðum að skoða okkur pínu um þarna, fórum m.a. til South Beach (sem var um 5 mínútur suður af okkur) sem þekkt er fyrir að vera jammstaðurinn í Ameríkunni, ótrúlega fallegur staður þar sem allar byggingar eru í Art Deco stíl (stærsta samansafn Art Deco byggingarlistar í heiminum) og allt opið 24/7, sama hvað það heitir. Fórum með Halldór að skoða krókóa og slöngur sem vakti mikla hrifningu og keyrðum aðeins um svæðið sem var einkar fallegt. Já, ég hef nú komið á nokkra staði í Florida og hef haft ákveðna ímynd af henni eftir þær heimsóknir, en þetta var eitthvað allt annað en ég hef séð af Flórída áður. Mæli með Miami fyrir alla.

Jæja, ætla að fara að njóta dvalarinnar hér. Vildi bara láta ykkur vita að við erum mætt á svæðið. Erum á Hegranesi 28 í Garðabænum í síma 564-3458. Aldrei að vita nema ég verði komin með GSM bráðlega.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home