California here we come...again

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Thanksgiving að nálgast

Jæja, nú er vika þar til við leggjum af stað til Florida og nóg eftir að gera. Annars er ég búin að vera að passa Dalmatíuhundinn hennar Birgittu í nokkra daga og haft gaman af. Það er ótrúlega fyndið hvað taktarnir í þessu kyni eru sterkir. Hún minnir mig ótrúlega á Frigg þó horft sé framhjá útlitinu. Hún er klaufsk og klunnaleg, algjör beautyqueen og notfærir sér það út í eitt hvað hún er sæt, spilar sig svolítið vitlausa þótt hún sé það kannski ekki alveg, öll þessi búkhljóð sem hún gefur frá sér á einkennilegustu augnablikum, erfitt að ganga með hana í bandi, algjör æði og svona mætti lengi halda áfram. Birgitta og fjölskylda koma heim á morgun og buðu okkur í staðinn í Thanksgiving mat hjá sér annað kvöld.

Já það er sem sé 4ra daga frí framundan, Thanksgiving helgin. Fólk hér er alveg hissa á því að fólk út um allan heim haldi ekki upp á Kalkúnadaginn því þetta er svo mikið mál eitthvað hjá þeim. Fólk stendur í eldhúsinu frá morgni og eldar allan daginn. Allt meðlætið sem þarf að búa til, pie kökurnar og ég veit ekki hvað og hvað. Það er ægilegt tilstand í kringum þetta hjá þeim. Held okkur Íslendingum finnist nóg að standa í þessu um jólin!

Helgin er annars alveg óplönuð. Þarf að reyna að ganga frá öllu og kaupa síðustu gjafirnar áður en við höldum í hann. Erum boðin í enn eitt barnaafmælið um helgina. Bíddu verð að segja ykkur enn eitt.....fór í leikskólann með HAA í morgun og í möppunni hans beið okkar þakkakort frá stelpunni sem var afmæli aldarinnar sem ég skrifaði um hér að neðan. ÞAKKAKORT! Fyrir að hafa komið í afmælið og fyrir gjöfina (skrifað upp hvað það var) sem var gefin! Þetta lýsir alveg hvað mömmur hér hafa lítið að gera. Plana stórafmæli fyrir 4 ára börn og skrifa svo þakkakort til 100 manns eftirá! Þetta var samt allt mjög gaman og allt það en hey, smá ríalití tékk hérna.

Það er búið að vera frekar kalt hér síðustu daga, eiginlega hálfgert úlpuveður...alla veganna jakkaveður þannig að það er ekki mikið fólk útivið. Farið niður í svona 8-10 stiga hita. Það var hlýrra hér í Janúar þegar við komum út en núna. Maður er loksins kominn í lokaða skó og ullarkápu, ég er þá mest fegin því að það sé hægt að nota þetta hér.

Eitt að lokum. Ég er búin að setja upp hjá mér skype sem er forrit þar sem maður getur talað frítt í gegnum Netið. Maður hringir úr þessu forriti í tölvunni, heyrir svo bara í viðkomandi í hátölurunum og svo tala ég í svona headphona (eins og maður tengir í vasadiskó) sem ég sting í samband við tölvuna og viti menn.......þetta er alveg eins og að tala í síma nema að þetta er frítt.
Þetta er ótrúlegt, er með nokkrar stelpur inní þessu hjá mér og vill endilega bæta við fleiru fólki. Þeir sem vilja tékka á þessu, farið á www.skype.com og hlaðið þessu upp hjá ykkur. Notandanafnið mitt er elladora til að hringja í mig. Ef ykkur vantar hjálp við þetta, skrifið mér þá bara hér eða á ehalldorsdottir@msn.com

Heyrumst

3 Comments:

  • hmm thanksgiving... minnir mig á Tofu-Turkey sem ég át á Kripalu :) já við erum stundum sjálfmiðuð eftir hverri þjóð.. ég td skil ekkert í því afhverju mörgum útlendingum finnst harðfiskur vondur... gaman að fá smá minningu um Frigg .. hlýjar mér allavega .. ætla að tékka á þessu skype dóti...
    bestu kveðjur Billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:32 f.h.  

  • Já skil heldur ekkert í þessu með harðfiskinn. Tók með mér nokkra poka hér út og geymi í frystinum. Fór með einn pokann í leikskólann um daginn (dagur þar sem krakkarnir voru að smakka framandi mat). Kennarinn opnaði víst pokann og var fljót að loka honum sökum fýlu. Þótt þetta væri dagur framandi matar ætlaði hún ekki að gefa börnunum "ónýtan" mat (hélt það væri ekki í lagi með þetta, stybban var svo svakaleg.

    By Blogger Ella, at 10:43 f.h.  

  • Þekki alveg þessi afmælisdæmi. Fór með Jónas í nokkur svona, þar sem voru "ponyrides", trúðar og fl. Varð auðvitað til þess að mér datt ekki í hug að bjóða krökkunum í skólanum í afmæli JR. Ég man hvað mér leið nett illa þegar ég fékk fyrsta svona þakkarkortið eftir geðveikt afmæli, þar sem þakkað var innilega fyrir 500 króna púsluspil sem ég hafði sent drenginn með....

    Kærar kveðjur til Biddu og fjölskyldu
    LDH

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home