Afmælisveislan
Jæja, þá er afmælisveislan yfirstaðin. Borðuðum pizzur eins og planað var á pizzastaðnum, fengum okkur svo afmælisköku og löbbuðum svo yfir á stað sem heitir Jump´n Jammin. Þar var rosa stuð og allir skemmtu sér konunglega, jafnt fullorðnir sem börn.
Halldór er himinn lifandi yfir öllum gjöfunum sem hann fékk, hlaupahjól, hjólabretti fyrir litla gaura, playmódót, power rangers karlar, alvöru turtle bíll, baseball sett og ég veit ekki hvað og hvað.
Þetta tókst sem sé bara allt ágætlega og allir fóru glaðir heim. Hér að neðan sjáið þið nokkrar myndir frá kökubakstrinum fyrir afmælið og frá afmælinu.
í næstu viku er svo Thanksgiving. Ekkert planað hvað við ætlum að gera en það er frí á fimmtudag og föstudag í næstu viku og er þetta hinn eini sanni fjölskyldutími Ameríkana. Við vonumst auðvitað til að vera boðin í mat hjá einhverjum eða alla veganna að elda með einhverjum kalkúninn og meðlætið sem honum fylgir. Læt ykkur vita hvernig þetta fer allt saman.

1 Comments:
Til hamingju með afmælið elsku Halldór Andri!
Hlakka til að hitta þig á Íslandi eftir nokkra daga. Hafðu það gott í dag!
Þín vinkona Dísa skvísa!!
By
Nafnlaus, at 4:55 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home