California here we come...again

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

LOS DUNKOS er að verða 4

Nú fer að styttast í afmælið hans Los Dunkosar. Ætla að halda smá afmæli fyrir hann hér úti 19. nóv (hann á afmæli 21. nóv) en svo fær hann almennilega veislu þegar við komum heim í des. Annars hef ég verið að spá mikið í hvernig ég eigi að halda þetta. Við erum búin að fá nokkur afmælisboð frá krökkum í bekknum hans og eru afælisparýin alltaf haldin á leigðum stöðum sem eru innréttaðir fyrir krakka, með leiksvæði, borðum og þess háttar. Ég fór svo á stúfana í dag og tékkaði á nokkrum stöðum og Ó MÆ GOD. Minnst er hægt að kaupa veislu fyrir 25 krakka og 25 fullorðna. Innifalið í því er herbergi, afmæliskaka er framreidd, drykkir, glös og diskar og svo afnot af leiksvæðinu á staðnum eftir að búið er að borða. Þetta kostar 300 dollara. Og þetta gerir fólk án þess að spá. Ríflega 20 þúsundir í að halda afmælisveislu fyrir 4ra ára barn, fyrir utan kveðjugjafir fyrir gesti (sem er siður hér) og fyrir utan þína afmælisgjöf til barnsins. Ég er bara í sjokki yfir þessu spreði. Halldóri hefur alla vegana verið boðið í nokkrar svona veislur þannig að fólk gerir þetta!

Okkar plan er þetta: Við bjóðum 7 krökkum á pizzastað þar sem ég fæ að koma með afmælisköku sem ég baka sjálf, svo borga ég bara fyrir þessa krakka inn á leiksvæði á einum svona krakkastað sem er við hlið pizzastaðarins eftir átið! Pakkinn kostar mig 120 dollara sem mér finnst nú samt nóg fyrir 4ra ára afmæli.

Halldór er að taka svo miklum framförum í enskunni núna að þið trúið því ekki. Fyrir svona tveimur til þremur vikum byrjaði þetta. Á sama tíma fór hann að ruglast aðeins í íslenskunni, beygja orð, sem áður voru beygð hjá honum rétt, vitlaust, farinn að nota eitt og eitt enskt orð í íslenskum setningum og farinn að rugla íslenskum orðum saman. Við gerum ekki annað en að leiðrétta hann og segja honum íslensk orð sem hann vantar eða er búinn að gleyma. Svona gerist þetta víst.
DÆMI:
Ég tók nap í dag.
Ég er með magagang (ruglar saman magapínu og niðurgang), þessi finnst mér frábær.
Hvar eru scissorin (skærin).
Má ég baka cake?
Ég þyrfti eiginlega að halda commentabók utan um all þetta, við Atli höfum nefninlega legið í krampa af mörgum af þessum frösum hans. Hann hefur gott af því að komast heim núna í smá stund og fá tötsið fyrir íslenskunni aftur.

Fer að styttast annars í heimferðina, 18 dagar þar til við leggjum af stað til Florida....úff, þarf að fara að klára jólagjafakaupin og allt það. Ætla að vera búin að klára þetta allt saman og meira að segja jólakortin áður en ég kem heim.


3 Comments:

  • Skil vandræðagangin yfir afmælishaldi, er einmitt í sama þankagangi þessa dagana. Hér eru krakkar farnir að bjóða vinum af leikskólanum í afmælin sín (börnin skilin eftir án foreldra). Dísu hefur verið boðið í nokkur svoleiðis bæði af nýja leikskólanum og svo þeim gamla!! Veit ekki alveg hvernig ég "tækla" þetta. Ekki er hægt að blanda þessu öllu saman í eina veislu! á ég þá að halda eina veislu fyrir fjölskylduna, eina fyrir "nýju vinkonurnar" af nýja leikskólanum og svo þriðju fyrir gömlu vinkonurnar(því þangað eru hún að fara aftur svo ekki vill maður slíta tengslin)!!!
    Úfff það er erfitt að halda barnaafmæli nú til dags...
    kv, Soffa

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:34 e.h.  

  • Ekki spurning að þið verðið að halda utanum þessi mismæli hjá stráknum...allavega gullmolana

    By Blogger Betu, at 8:37 f.h.  

  • Já, þyrfti að gera það. Margt af þessu er alveg gríðalega fyndið!

    By Blogger Ella, at 10:40 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home