Fréttir frá OC
Síðasta vika var fremur slöpp hjá okkur. Atli fór á vinnufund út á land og var þar nánast alla vikuna. Hann kom þó sterkur inn og bauð okkur Halldóri í smá helgarfrí um síðustu helgi til Palm Springs. Við lögðum af stað á laugardagsmorguninn og keyrðum í um 2 tíma. Eins og ég hef sagt ykkur er komið smá haust hér í OC, hitinn kominn niður í um 70 eða um 20 stig og er golan orðin frekar köld. Það er varla hægt að fara í sund lengur! Í Palm Springs, sem er inni í eyðimörkinni er sól 364 daga á ári og er nær ólíft þar á sumrin. Veturnir þar eru álíka og sumrin hér! Hitinn þessa helgina var í kringum 100 og var því alveg geggjað að tékka sig inná resort hótel og hanga þar við laugina allan daginn í leikjum við Halldór Andra. Skelltum okkur líka í wild life dýragarð á svæðinu og fórum á frábærtan lítinn ítalskan veitingastað sem kom skemmtilega á óvart. Gestirnir inná staðnum voru flestir ítalskir. Þjónarnir tóku upp á að syngja fyrir gestina og þarna myndaðist þessi líka fíni fílingur. Maturinn og vínið var eðal eins og Ítölum er einum lagið að kokka. Á heimleiðinni stoppuðum við í rosalegu outleti með öllum fínustu merkjunum. Mér tókst að finna mér flotta kápu úr fínlegu rúskinni sem átti að kosta 700 dollara en var komin niður í 99 dollara á útsölu í outletinu! Sjáum til hvort ég geti notað hana hér í vetur. Ferðin var alla vegana æðislega skemmtileg og gott var að komast úr bænum í smá stund. Næst verður það bara skíðaferð en skíðatíðin byrjar hér í lok nóvember og er víst fínt skíðasvæði í 2 klst. keyrslufjarlægð.
Annars er það að frétta að Halldór Andri er búinn að fá Halloween grímubúning. Hann vildi vera Batman og Batmanbúning fékk hann. Hann fer ekki úr búningnum sínum, kemur heim úr leikskólanum og vill fara í búninginn. Halloween er samt ekki fyrr en í lok október þannig að við teljum niður með honum á dagatalinu því hann spyr okkur mörgum sinnum á dag hvenær hann geti farið í búningnum í leikskólann! Það er alveg svakalegt batterý í kringum þetta. Fólk er svoleiðis búið að skreyta húsin sín að utan með hauskúpum, nornum, köngulóavef og öðru álíka. Og þrátt fyrir að Halloween sé ekki byrjað og Thanks giving sé líka eftir er farið að selja jólaskraut í mörgum búðum hér og fólk farið að bera jólasveinahúfur í stórmörkuðum. Þetta er náttúrulega bara klikkun.....í byrjun október!
Halldór er einnig byrjaður að hjóla á litla hjólinu sínu sjálfur. Hjálpardekkin voru tekin af síðasta föstudag að hans eigin frumkvæði. Allt í einu sagði hann....mamma ég er orðinn nógu stór til að hjóla sjálfur, viltu taka hjálpardekkin af. Það var gert, Halldór skellti sér uppá hjólið og viti menn, hann hjólaði bara af stað! Aðal málið er að koma sér af stað, koma sér fyrir á hjólinu og ýta sér af stað. Hann er hins vegar búinn að vera á fullu að æfa það þannig að ég held þetta sé bara komið hja honum. Hann er að verða eitthvað svo stór og sjálfstæður. Farinn að hafa þokkalegar meiningar og maður má ekki lengur knúsa hann og kyssa eins og áður....mamma hættu, þetta er ógeðslegt, það kemur slef á mig! Humm, mér finnst þetta ekki hægt!
Hvað er annars að frétta heima?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home