California here we come...again

fimmtudagur, september 30, 2004

Afmælisbarn dagsins

Ný vertíð af Bachelor er byrjuð.....þið sjáið hana ábyggilega ekki fyrr en næsta vetur eða eitthvað en nýji gaurinn er ferlega slímslegur finnst mér. Með jafnsítt hár niður að eyrum, 40 ára atvinnu veiðimaður á stöng og hefur greinilega hætt að nota sólavörn fyrir einhverjum áratugum, allt of brúnn og hrukkóttur fyrir aldur fram. Ekki mín týpa. Alltaf er samt jafn gaman að horfa á þessa þætti, við Atli getum legið hér í kasti yfir þessu saman. Svo er ný seria af þáttunum með Donald Trump byrjuð þannig að það er nóg að gera í að fylgjast með öllum þessum þáttum í sjónvarpinu.

Afmælisbarn dagsins er hún mamma mín. Heyrði í henni áðan til að óska henni til hamingju með daginn en hún var með fullt hús af fólki sem hafði bara kíkt inn til að óska henni til hamingju með daginn. Vona að pabbi muni eftir deginum hennar....hann er alveg svakalegur með afmælisdaga hann pabbi minn. Þegar það gerist að hann muni eftir svona dögum þá hef ég hana ömmu mína á Ísafirði (mömmu pabba) grunaða um að hringja í hann í vinnuna og minna hann á að konan hans, sonur eða dætur eigi nú afmæli!

High point of yesterday: Fór til bæklunarlæknis og fékk sterasprautu í hnéð. Þar með vona ég að ég finni ekki meira til pirrings í hnénu!

Low point of yesterday: Mamma....ég tók ekki nap (með amerískum hreim borið fram sem nep) í leikskólanum dag!


1 Comments:

  • Ég er ánægður með kappann í surfinu :) Pabbi er nú ekki sá eini sem er erfiður með afmælisdagana. Takk fyrir að minna mig á þetta Ella mín. Sló alveg í gegn þegar ég óskaði mömmu til hamingju svona "upp úr þurru" ... svo þarf ég bara að koma og kenna ykkur á surfið ;)
    kveðja billi

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:10 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home