California here we come...again

mánudagur, september 27, 2004

Surf

Já, eins og þið sjáið á myndunum hér að neðan fórum prófuðum við loksins að surfa. Við fórum í Össurarparýið á laugardaginn og hittum þar fólk sem er mikið surf fólk. Við höfum reyndar hitt þau áður, þegar við fórum í rafting útileguna hér í vor. Þau sem sé fara á þessa surfströnd hér fyrir sunnan okkur alla miðvikudaga og reyna einnig að komast alla sunnudaga. Þau buðu okkur með og við skelltum okkur auðvitað.

Strákurinn vinnur hjá Össuri og heitir Cody. Konan hans er japönsk og heitir Judy. Ætli þau séu ekki á svipuðum aldri og við. Þau eru mikið útivistafólk og mjög skemmtilegt par. Við komum þangað niðureftir um hádegisbil en þau höfðu þá verið að surfa frá því 7 um morguninn. Fjara skellur hins vegar á um hádegisbil þannig að öldurnar verða mjög litlar og krakkavænar. Halldóri var fyrst skellt útí. Cody og Atli fóru með hann í frussið eins og það er kallað (þegar öldurnar eru búnar að brotna og þetta hvíta kemur). Honum fannst þetta alveg hreint geðveikt. Þeir voru með hann útí í um 20 mínútur eða svo og í 3 tilraun þá stóð drengurinn bara upp á brettinu og renndi sér standandi nokkra metra með frussinu (sjá myndir hér að neðan). Ótrúlegt! Já, hvorki mér né Atla tókst að standa upp á brettinu í þetta skiptið þannig að Halldór hefur augljóslega náð tækninni við þetta á undan okkur. Við Atli fórum lengra útí eða þangað sem öldurnar byrjuðu en okkur tókst báðum að komast upp á hnén! Þetta lítur út fyrir að vera verulega auðvelt en er það alls ekki. Þetta er svakalegt jafnvægismál! Eftir allt erfiðið var sest niður og Cody, sem var með fullan bíl af mat, kveikti upp í ferðagrillinu sínu og byrjaði að elda ofaní liðið. Fengum hjá honum þessa fínu kjúllaborgara og í eftirrétt var kaka! Sátum svo í sólinni í nokkurn tíma og spjölluðum. Held það sé ekki til betri leið til að eyða sunnudegi en nákvæmlega þetta. Komum heim um hálf fimm lúin eftir allt erfiðið og sólina.

2 Comments:

  • blessuð!
    Mér hefur nú aldrei þótt líta út fyrir að "surf-ið" virki eitthvað auðvelt!! Góður Dóri að standa á þessu! En ekkert hissa að foreldrarnir hafi ekki "meikað" það.
    KV, Soffa

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:24 f.h.  

  • Vá - þetta er þá þessi Kaliforníudraumur sem talað er um!

    By Blogger Erla, at 11:02 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home