California here we come...again

föstudagur, september 24, 2004

Nóg að gerast

Hann Halldór er byrjaður í fimleikum...þar hafið þið það. Fór með hann í pruftíma í fimleikagymmi hér á fimmtudaginn og held bara að það sé ekki aftur snúið. Hann fílaði þetta í tætlur. Ferlega fyndið að sjá hvað þessi kríli geta gert. Þau voru að gera kollhnísa á slá (sem lá á jörðinni með fullt af dínum á), æfa jafnvægi á slá með því að labba á henni, hanga í hringjum og og svo var það bomban....trampolínið. Fyrst æfðu þau sig á svona krakka-trampolíni en fengu svo að fara á ALVÖRU tramolín. Það var þvílíkt aksjón í gangi í klukku tíma none stop. Svo voru auðvitað alls kyns teygjur og fleira til að æfa liðleika. Já, mér fannst þetta bara nokkuð traust. Verð að mæta með myndavélina næst og taka nokkrar myndir fyrir ykkur. (Veit ég er alltaf að lofa myndum en er ekki enn búin að koma þessum tæknimálum á hreint). Þetta er risa salur með öllum áhöldunum (enda er þetta eitthvað Olympic Gymnastic Gym) og svo er allt kráted af krökkum að labba á milli tækja í röð með kennaranum sínum, þetta er alveg eins og maður sér í sjónvarpinu af svona fimleikamótum, nema kannski bara fleiri krakkar!

Matt vinur Atla frá Duke kom til okkar í dag og verður fram á sunnudag í smá afslöppun. Ætlum með hann á ströndina og svo held ég við eigum bara eftir að hagna við sundlaugina borða góðan mat. Það er reyndar rosa Össurarpartý annað kvöld, kokteill og dinner, en Matt ætlar að passa! Buðum honum auðvitað með en hann vildi frekar vera heima með Dórann.

Það eru komnir maurar á baðið hjá mér. Sat í 2 tíma ofaní baðinu í dag með Windex spreyið (þetta er rúðuúði sem virðist drepa maura) til að reyna að fatta út hvaðan þeir voru að koma og drepa þá sem komu nálægt mér. Mér tókst hins vegar ekki að sjá hvaðan þeir komu nákvæmlega, þeir bara birtast allt í einu. Maður fattar ekki alveg í hvað þeir eru að sækjast þarna. Það er eins og einn maurinn hafi fengið þá hugdettu að þarna inni væri sko mikið að hafa og hafi látið orðróminn berast! Hey guys...spread the word! Svo þegar á hólminn er komið grípa þeir í tómt! Skil þetta ekki alveg. Hringi í pest control á morgun og sé hvað þeir geta gert. Held þeir setji eitrað gel í veggina þar sem eru pípulagnir, maurarnir halda að það sé matur og bera í búið. Þetta er sem sé eitur sem eitrar búið. Já, maður er sko orðinn þokkalega pödduvanur hér!


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home