California here we come...again

mánudagur, ágúst 30, 2004

Partýið, hundurinn og sólin

Össura "strandpartýið" var ágætt. Mættum frekar seint en náðum okkur þó í nokkra grillteina áður en leikir hófust. Einn þeirra var frekar fyndinn. Karlmönnum fyrirtækisins var skipt í nokkur lið. Þeir fengu á sig auka "tilla" sem lafði milli lappanna á þeim og náði niður í jörð og áttu þeir að "sparka" bolta með nýja félaganum þó nokkra vegalengd en máttu ekki nota lappir né hendur. Þurftu bara góða mjaðasveiflu og þá fór boltinn að rúlla. Liðið var auðvitað í kasti yfir þessu enda frekar fyndið að sjá karlmenn á besta aldri æfa mjaðmahnykkina!

Halldóri tóks að næla sér í nokkrar flísar á svæðinu. Hann þarf alltaf að lenda í einhverju svona strákurinn. Enginn fékk auðvitað flís nema hann. Við lágum með hann öskrandi í grasinu í hálftíma og reyndum að ná þessu úr honum. Hann vildi ekki vera með þetta í löppinni (fann samt ekkert fyrirþessu) en vildi heldur ekki leyfa okkur að plokka þetta út! Það endaði með að einn pabbinn á svæðinu mætti með first aid kittið sitt sem innihélt almennilega flísatöng, hann hóaði svo í nokkra þarna í kring sem komu og héldu stráknum niðri og svo.......allt búið að 10 sekúndum. En þá var partýið búið og allir á leið heim!

Ekkert bólar enn á hundinum mínum. Sendi karl skömminni í Kanada bréf fyrir 2 vikum síðan og hann svarar mér ekki. Líklega er hann einhverstaðar í USA að dæma í hundakeppni en mér finnst þetta bara hreinlega ekki góð þjónusta hjá karlinum. Búin að vera í sambandi við hann núna í um 6 mánuði og þarf alltaf að ganga eftir því að fá fréttir af því sem er að gerast. Kannski tekur þetta svona langan tíma? Þ.e. að fá almennilegan hreinræktaðan hund? Sé eiginlega bara eftir þessu. Hefði bara átt að labba hér út í búð þegar ég kom og kaupa mér hann þar, eða jafnvel ættleitt hund frítt?

Það er svo frábært veður úti núna að ég er að hugsa um að skella mér í laugin og lesa blöðin út við sundlaug. Set myndir inn fljótlega. Er að reyna að koma mér í gang aftur en þetta tekur allt sinn tíma!


5 Comments:

  • Hæ, hringdu bara í kallinn með hundinn - það er ekkert víst að hann sé mjög aktívur á tölvuna. Líka miklu betra að tala við fólk en senda póst.
    Ég hlakka ekkert smá til að fá fjórfætlingana mína heim, það er frekar skrítin tilfinning að koma hingað í Hegranesið á daginn og það er ekkert dýr sem tekur á móti manni. Ekki einu sinni páfagaukurinn....
    Kv. Lilja

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:15 e.h.  

  • sæl frænka!

    þetta er hún Sigríður Bríet ég var að rembast við að reyna muna hvað hún Soffa héti til að geta flett henni upp í símaskránni en man það ómöglega. hún systir þín benti mér á þessa fínu síðu hjá þér og sagði að þú værir dugleg að svara til baka :) ég er með e-r bækur hjá henni Soffu og þarf líka aðeins hjálp frá e-m sem hefur gegnið í gegnum annað árið í sambandi við val og annað...

    allavega geturu sagt mér hvað Soffa heitir eða bara síman :) getur líka kannski sent mér bara á briet@hamstur.is eða bara hér....

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:34 e.h.  

  • Nei hæ,
    Þú nærð Soffu í síma 554-2833 eða í 696-2833. Endilega sláðu á þráðinn til hennar. Gangi þér vel í vetur. Ps. hvenær á Sigrún Elsa að eiga, veistu það?

    By Blogger Ella, at 5:52 e.h.  

  • Þarf bara að hringja í karlinn og tékka á hvað sé í gangi þarna í Kanada. Ég hef líka af og til verið að spyrja hann hvað hundurinn kostar en fæ aldrei neitt svar varðandi það. Hringi í karlinn í vikunni.
    Kv.
    Ella

    By Blogger Ella, at 6:12 e.h.  

  • takk fyrir..
    held að barnið eigi að koma 30. oktober:)

    sigga

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:38 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home