California here we come...again

sunnudagur, júní 06, 2004

Helgarar eru alltaf æði

Mér finnst æðislegt hvað við erum dugleg við að nýta helgarnar í að gera skemmtilega hluti. Alltaf eitthvað í gangi.

Það var field trip hjá bekknum hans Halldórs í leikskólanum á föstudaginn og foreldrar (alla veganna annað foreldrið) allra barnanna fóru með. Atli komst ekki en ég bauð íslenskum stráki og 8 mánaða syni hans að koma með okkur (konan hans vinnur hjá Össuri á Íslandi en hún er hér í heimsókn hjá fyrirtækinu). Þetta er auðvitað bara alveg evrópskt þið vitið, maður býður bara vinum sýnum hvort sem það er kona eða maður. Hins vegar er þetta ekki eðlilegt hér í USA, kona tjillar ekkert með öðrum manni og ég tala nú ekki um að bjóða honum með í field trip hjá leikskólanum nema að það sé eitthvað í gangi. Það var nú pínu horft á okkur þarna, margir að spyrja mig hvar pabbi hans Halldórs væri og svona.....ég er nú ekki orðin það mikill Kani í mér að ég fari að huga svona!
Á föstudaginn var svo fyrsti saumó hjá okkur stelpunum. Það mættu 7 stelpur og var bara mjög gaman. Hitti þarna eina frá Svíþjóð sem mér leist mjög vel á og spjallaði mikið við. Svo verður þetta bara haldið mánaðarlega þannig að það er ekkert nema gott um það að segja.

Laugardagurinn fór bara í að hafa það rólegt framan af. Skelltum okkur í laugina í smá stund og borðuðum fitandi amerískan morgunmat. Fórum svo í Plant Depo og keyptum okkur plöntur inní húsið hjá okkur og svo kryddjurtir í litla kryddjurtagarðinn minn. Svo var okkur boðið í mat hjá einni í Össuri (Jolee). Þar voru um 12 manns, fólk sem tók þátt í Mud runninu með Atla. Það var mjög gaman hjá okkur. Halldór lék sér við hundinn þeirra og sjaldböku sem þau eiga.

Erum á leið upp til LA á 17 júníhátið. Hátíðin er haldin hjá Sigurjóni Sighvattsyni og konu hans. Ætlum að vera mætt uppeftir kl. 14 þannig að maður þarf bara að fara að skella sér í sturtu núna og sjæna sig til!

Segi ykkur frá stuðinu á morgun.

1 Comments:

  • Þetta hljómar ekkert smá spennandi og skemmtilegt þarna hjá ykkur! Ég var sko að vinna upp lesturinn og að lesa undanfarið blogg hjá þér allt í einu hljómar eins og þvilíkt ævintýri.
    ...og er mín bara að koma af stað saumaklúbbi?

    By Blogger Betu, at 7:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home