California here we come...again

mánudagur, maí 17, 2004

Brennsla, brennsla, brennsa....

Mæli með spinning tímum (hjólatímum) fyrir þá sem vilja brenna og það hratt! Byrjaði að fara í spinningtímana í gymminu mínu á föstudaginn og var að koma úr einum slíkum núna....þetta er brjálæðisleg brennsla, bara að vara ykkur við, hef bara aldrei komist í annað eins. Ég sé það alveg að ef maður mætir í spinning 3 til 4 sinnum í viku...þá er þetta komið. Öll aukakíló verða flogin af á nokkrum vikum. Þetta er púl, puð og sviti í 1 klukkutíma. Maður verður bara að láta sig hafa þetta. Það þýðir ekkert að búa í CA þar sem maður er hálf nakinn alla daga og leyfa líkamanum að vera jafn "frálslegum" og heima.....nei, gengur ekki hér.

Laugardagurinn var alveg æðislegur hjá okkur. Ég prófaði línuskautana mína í fyrsta skiptið hér úti og tók langan hring á þeim á laugardaginn, reyndar eiginlega of langan. Halldór Andri var á hjólinu sínu á eftir mér en Atli endaði með að þurfa að ýta honum mest alla leiðina, þetta var allt of langt fyrir hann. Stóru tærnar á mér voru svo bólgnar og aumar þegar ég loks komst úr skautunum en þetta var samt hrikalega gaman. Skelltum okkur svo í heimsókn til Birgittu (gömlu vinkonu Lilju Dóru) og fjölskyldu og stoppuðum þar í um tvo tíma. Það var mjög gaman að hitta þau og Halldór lék sér við stelpuna þeirra hana Gýgju, sem er held ég 9 ára, allan tímann. Þau eiga 8 ára gamlan dalmation hund en taktarnir hjá henni minntu okkur ótrúlega á Frigg, hvernig hún snýkti mat, hvernig hún lék sér og hreyfði sig, klaufskan hjá henni og allt þetta. Þetta var ægilega gaman.
Við buðum Eyþóri (bossinum hans Atla) svo í mat til okkar um kvöldið en hann er búinn að vera hér einn í fleiri mánuði. Konan hans og börn flytja svo hingað út í júlí og er mikið beðið eftir þeim. Mín eldaði vask íslenska lambakjötsúpu ofaní liðið sem heppnaðist bara helvíti vel verð ég að segja og var með frábært jarðaberjapæ (frá Erlu) og ís í eftirrétt.

Meira seinna....eitthvað að frétta heima?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home