Brúðkaupið
Brúðkaupið í gær tókst verulega vel hjá Bob og Unni. Bob hefur verið búsettur hér frá því hann var lítill en fjölskyldan hans flutti heim til Indlands fyrir mörgum árum. Unnur flutti hingað út til hans held ég í fyrra þannig að brúðkaupsgestir voru bara vinir þeirra hér í USA. Þetta var verulega krúttlegt lítið brúðkaup sem fór fram undir berum himni með útsýni yfir Kyrrahafið, nánar tiltekið smábátahöfnina í Dana Point (sem við búum). Eftir að parið hafði verið gift var haldið til Laguna Beach sem er ekki langt í burtu og þar var svaka fín veisla (einnig undir berum himni) og partý á eftir. (Setti nokkrar myndir inn á myndasíðuna frá giftingastaðnum).
Halldór Andri var í fyrsta skipti passaður hér úti. Við fengum frænku einnar konu sem vinnur með Atla en Halldór var ekkert mjög mikið að fíla hana. Hún kom honum auðvitað ekki í rúmið....hann stóð bara og grét við gluggann og beið eftir okkur. Það endaði með að hún hringdi í okkur og Atli ákvað að skella sér bara heim (11 eða hálf tólf). Mín var eftir með liðinu djammaði eitthvað áfram fram eftir kvöldi.
Sunnudagurinn (dagurinn í dag) endaði ekki á að vera eins æðislegur og planið hafði gert ráð fyrir. Þótt hitamet hafi verið slegið og þessi dagur mjög ákjósanlegur til að hanga öll þrú við sundlaugina með fullt af ávöxtum og vatni .....þurfti Atli að fara til North Carolina í morgun. Þetta er náttúrulega ekkert eðlilegt. Hann kom heim seint á föstudagskvöldið úr 3 daga ferð og er farinn aftur í morgun! Hann kemur reyndar heim annað kvöld en mér er sama. Ég sem sé var ekki í neinu frábæru skapi með þetta allt saman í dag þannig að við Halldór eyddum mest öllum deginum inni fyrir framan sjónvarpið, kíktum reyndar í laugina í 2 tíma.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home