Update
Er búin að vera eitthvað hálf löt að skrifa núna undanfarið en hef ákveðið að bæta úr því!
Nú er ég búin að skrá mig í grafíska hönnunarnámið. Tek sex einingar núna (af 24) í sumar (byrjar í næstu viku og er þar til miðjan júlí). Er í skólanum alla daga vikunnar nema föstudaga frá 9-14:10 og fer svo beint og sæki HAA þegar ég er búin.....hlakka mjög til að byrja. Svo á ég held ég að fara að heyra frá hinu mastersprógraminu sem ég sótti um upp í LA....kemur allt í ljós vonandi fljótlega. Annars er ég í tómu rugli með þetta allt saman.....langar líka bara til að fara að vinna! Alltaf er ég jafn óákveðin týpa!
Er að vinna í að koma social lífinu mínu af stað hér!!! Talaði við Unni lengi í gær og ætlum við að stofna saumó....hehe, já saumó. Erum með nokkrar kerlur í huga til að bjóða, ætlum að reyna að komast hjá því að enda bara uppi tvær í klúbbnum! Nei, djók, hún þekkir nokkrar stelpur hér og svo eru nokkrar auðvitað hjá Össuri sem koma þannig að vonandi verðum við kannski svona 7 og reynum að hittast einu sinni í mánuði. Það verður vonandi gaman. Einnig ákváðum við að hittast á sunnudögum á ströndinni og gera eitthvað gaman saman með fjölskyldunum. Þetta er allt að koma.....já, svo eitt enn, hringdi í Birgittu (eldgamla vinkonu Lilju Dóru sem hefur búið hér 10 mín frá í 14 ár) í gær og ætlum við loksins að reyna að hittast. Við ætlum að skella okkur í grill til þeirra á morgun eftir hádegi. Spennandi að sjá hvernig það þróast!!!! Eins og þið sjáið er nóg á planinu hjá mér, verð bara að fara að hitta fólk...fljótlega.
Húsið er allt að komast í stand. Við erum samt búin að hrúga svo miklu í bílskúrinn að ég held við verðum að taka hann í gegn og skipuleggja hann fyrr en seinna. Annars á nánast bara eftir að hengja upp myndirnar í húsinu og þá er þetta komið að mestu.
Halldór Andri er alsæll með nýja herbergið sitt og risarúmið sem hann fékk (setti gamla queen size rúmið okkar Atla inn til hans). Hann er byrjaður að sofa sem sagt í sínu herbergi en kemur samt alltaf uppí til okkar þegar hann rumskar. Mjög misjafnt hvenær það er, milli 3 og 7 á nóttunni. Hann er samt mjög ánægður með sig að sofa svona aleinn. Hann er líka voða duglegur að leika sér inni hjá sér, hlustar á geisladiskana sína og dundar sér. Nýjasta hittið hjá honum núna er Glámur og Skrámur, Í sjöunda himni. Meira ruglið sá diskur.....við Atli erum nú með það á hreinu að einhverjir hafi verið á sýru við gerð disksins! En þetta fílar Halldór í ræmur í dag, hlustar á þetta aftur og aftur. Á sama hátt er hann búinn að taka Dýrin í hálsaskógi, Mjallhvíti, Rauðhettu og Karíus og Baktus með trompi. Verð að tékka á fleiri sögum fyrir hann á Íslandi í sumar....á samt einn disk inni fyrir hann í viðbót, Kardemommubæinn.
Skautarnir hjá honum ganga ágætlega. Hann er samt orðinn voða pirraður á að detta alltaf svona, fer eitthvað í hann að mastera þetta ekki strax. Um daginn þegar við fórum á skautana, keyrðum við fram á risa fimleikahöll. Ég ákvað að kíkja þar inn með hann og þá er þetta bara alveg heljarinnar íþróttamiðstöð, mismunandi íþróttir hér og þar um húsið. Þarna voru litlir gaurar í tækfondó (bardagaíþrótt) og missti HAA andlitið þegar hann sá þá í hvítu karategöllunum sínum sparkandi í einhverja púða. HANN VILDI INN OG VERA MEÐ. Prógrömmin eru frá 3ja ára aldri þannig að það er aldrei að vita nema við skellum okkur í þetta eftir skautana. Auk þess voru þarna fimleikahópar og ballett. Ballettinn fannst honum verulega heillandi. Hann setti í dyragættina hjá einum hópnum og blikkaði varla augunum þar til hann stóð upp hálftíma seinna og reyndi að gera það sem ballettstelpurnar voru að gera. Honum fannst þetta æði....held samt ég seti hann ekki í ballett, hehe, Dóri adrenalínbolti í bellett.
Jæja, hætti nú áður en þið gefist upp á þessari langloku minni. Verð bara að vera duglegri að skrifa, held það sé greinilegt.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home