California here we come...again

sunnudagur, maí 09, 2004

Helgin er liðin

Nýtt útlit á blogginu mínu....hvernig líkar ykkur, betur eða verr? Er búin að vera að dunda mér við að setja þetta upp í allt kvöld :)

Jæja, þetta er búin að vera hin fínasta helgi. Atli tók sér frí í vinnunni á föstudaginn því ganga þurfti frá ýmsum málum, stofna bankareikning og annað. Við tókum okkur líka á í að ganga frá innbúinu, þetta er allt að koma. Atli fór svo í golf með íslenskum vinnufélögum á laugardagsmorguninn, humm...hann var sóttur held ég klukkan hálf sjö! Ég og Halldór hittum svo golfarana í nýja húsinu þeirra Oddný og Pálma. Þar var grillaður ofaní okkur kjúlli og bakaðar kartöflur og svo kom þessi gómsæti vöfflu eftirréttur með ís, sýrópi og berjum.....eitthvað fyrir sælgætisgrísinn mig. Þarna sátum við á pallinum hjá þeim fram á kvöld, spjölluðum og höfðum það notarlegt. Halldór Andri eyddi svona 5 klst. í pottinum hjá þeim að leika sér. Frábær dagur. Í dag skelltum við okkur í sundlaugina í smá tíma, var samt frekar kalt fannst mér. Atli og Halldór fóru svo í fótbolta og ég hélt áfram að ganga frá, náði meira að segja að skúra niðri, svo mikið af draslinu var farið af gólfinu. Skelltum okkur svo niður í Laguna beach, löbbuðum þar um og fengum okkur kvöldmat. Kíktum að lokum í smá bíltúr um hæðirnar hér í kringum okkur sem snúa út að sjónum, skoðuðum glæsihúsi og létum okkur dreyma!

Er ekkert í fréttum heima?

1 Comments:

  • Sæl,
    Þetta er flott síða, skipulögð og fín. Það verður að segjast eins og er að það er notalegt að fá að fylgjast svona með hvernig gengur og svona.
    Það væri gaman að fá að sjá myndir af Halldóri á skautunum. Það er alveg ótrúlegt hvað þau eru fljót að ná þessu.
    Það er allt gott hjá okkur, farið að sumra loksins.
    Bið að heilsa :)
    Védís.

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home