Brúðkaupsafmæli
1.júní 2002 fyrir utan Dómkirkjuna 
Já, við Atli eigum sko 2ja ára brúðkaupsafmæli í dag, 1. júní. Þetta er fljótt að líða. Haldið þið ekki að Atli sæti hafi gefið mér pakka í tilefni dagsins (í gær reyndar, hann gat ekki beðið). Hann hafði spottað flotta, græna leðurtösku í einhverri versluninni hér fyrir nokkru síðan og skellti sér í gær og keypti hana mér til mikillar ánægju. Svona á ég nú góðan mann. Aldrei að vita hvað verður í pakkanum hans í kvöld, vonandi dettur mér eitthvað skemmtilegt í hug.
Já, ekki nóg með að við eigum brúðkaupsafmæli heldur eiga mamma og pabbi að sjálfsögðu brúðkaupsafmæli líka, 36 ára. Til hamingju með það mamma og pabbi.
Setti inn ykkur til skemmtunar nokkrar myndir af fjörinu í veislunni okkar, aldrei að vita nema þið rekist á mynd af ykkur!
1. júní 2002 fyrir utan Dómkirkjuna
1. juni 2002, brudarvalsinn

2 Comments:
Til hamingju krúsídúllur! Þið eruð svo sæt...
By
Erla, at 2:57 f.h.
Til hamingju með daginn elskurnar !!
Allt fínt hér, forseti vor reyndar að gera allt vitlaust með því að hafa í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins beitt synjunarvaldi sínu og efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hið margumdeilda fjölmiðlafrumvarp, fellur í mis góðan farveg manna, veit ekki hversu mikið þið kanarnir eruð inni í þessu máli, en hér hefur varla annað komist í fréttirnar undanfarnar vikur. Þessi yfirlýsing forsetans í dag veldur því ansi miklum usla ! Líst vel á þessa ákvörðun þína varðandi MS námið Ella mín, ekkert vit í að vera að hella sér út í svona mikið nám nema vera 100% viss!!
Saknaðarkveðjur,
Soffa
Saknaðarkveðjur, Soffa
By
Nafnlaus, at 1:07 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home