California here we come...again

fimmtudagur, maí 20, 2004

Úrslitin í bachelor og meira

Lokamínúturnar í Bachelor í gær voru dramatískar maður. Þvílík spenna...svo kom valið. Held hann hafi valið alveg hárrétt drengurinn, Jessica var það (sorry, búin að skemma spennuna fyrir þeim sem eiga eftir að horfa á þetta, serian er ekki komin til Íslands). Mér leist mjög vel á þau saman. Ég lifi mig svo inní þetta að þið hefðuð átt að sjá mig hér í gær.

Ein pæling. Við erum nýbúin að stofna bankareikning hér í USA og með því fylgdi frír heimabanki á Netinu þar sem maður getur borgað reikninga og svona eins og heima. Við vorum einmitt að borga okkar fyrsta reikning hér í gær á Netinu og fórum við að hugsa um hvort maður ætti að treysta þessu hérna jafn vel og maður treysti þessu heima. Mín tilfinning er sú að maður treystir þessu heima þar sem allt kerfið er á íslensku og kannski erfitt fyrir útlending að hakka sig inná íslenska reikninga. Ef maður myndi lenda í því heima, væri það þá ekki líklega Íslendingur sem væri þar að störfum og þannig kannsku auðveldara að nappa hann? Svo myndi bankinn heima án efa taka svona á sig en hann myndi örugglega ekki gera það hér (stendur ábyggilega einhvers staðar í smáa letrinu). Veit það ekki, hugsa þetta svona en kannski er þetta öryggi sem ég held að maður fái heima bara falskt! Ekki nógu vel að mér í þessum tæknimálum. Við enduðum samt á að treysta þessu hér í gærkvöldi og borguðum okkar fyrsta reikning í gegnum Netið af ameríska reikningnum okkar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home