Það sem gerðist um helgina
Það var mikið um að vera hjá okkur um helgina. Það merkilegasta sem gerðist er án efa það að...........haldið ykkur.........Halldór Andri hætti að sofa með snuð síðasta föstudag. Við erum búin að vera að ræða þetta mál við hann núna í smá tíma og hann hreinlega var bara tilbúinn að hætta á föstudaginn var (það var auðvitað búið að lofa honum ægilegum verðlaunum og allt en það varð alla veganna til þess að hann vildi hætta!). Við spurðum hann hverjum hann vildi nú gefa snuðin sín og hann var með það alveg á hreinu. Hann ætlaði að gefa baby-hvölunum þau í sjónum. Það vildi svo skemmtilega til að Atli stóð í því á föstudaginn að láta mynda mann á snekkju útá sjó fyrir markaðsefni hjá Össuri. Ég allt í einu kveikti á perunni, hringdi í hann og spurði hvort ég og Halldór Andri gætum ekki komið og hitt hann niðri á höfn og framvkæmt athöfnina. Jú, ekki málið. Við Halldór drifum í að safna öllum snuddum sem við fundum, settum þær í poka og keyrðum af stað. Þegar við komum á höfnina voru þeir að koma í land eftir myndatökuna og haldið þið að eigandi snekkjunnar hafi ekki boðist til að fara með okkur út á bátnum svo strákurinn gæti nú gert þetta almennilega. Halldóri Andra fannst þetta geðveikt, þegar við komum út úr höfninni var slökkt á öllum vélum og Hálldór kom sér fyrir á stað þar sem hann gæti hent og horft á eftir snuðunum sínum. Hann henti svo einni og einni í einu í sjóinn. Síðasta snuðið fékk svo nokkra sekúndna sog áður en það flaug...svona í síðasta sinn! EFtir þetta var haldið í Toys´r us og þar voru sko keypt verðlaun. Hann fékk bók, sverð, eldhússett (gervivask, glös, hnífapör diska og allt þetta), og risadollu með gervimat til að leika með í gervieldhúsinu. Raunveruleikinn rann svo upp fyrir honum þegar hann átti að fara að sofa....það var hrikalega erfitt. Hann engdist um í rúminu grátandi, vissi ekkert hvernig hann átti að vera svona snuddulaus: "ég get ekki sofið mamma, það er ekki hægt að sofa án þess að hafa snuddu, ég get ekki sofið hérna". Þetta tók tvo klukkutíma. Hann er orðinn skárri núna en þetta er enn erfitt fyrir hann. Hann er í fyrsta skipti að sofa snuddulaus á leikslólanum í dag, vonandi getur hann sofnað. Tekur kannski vikuna að komast yfir þetta, vonandi ekki meira en það.
Halldor Andri tilbuinn i slaginn!
Á laugardaginn var farið á ströndina með Bob og Unni og íslensku pari sem var í heimsókn hjá þeim (búa í Santa Barbara). Það voru svakalegar öldur í gangi þennan dag. Veit ekki hvað kom yfir mig en ég skellti mér í sjóinn með Atla. (By the way, sjórinn er allt í einu orðinn þokkalega volgur). Það var mjög gaman að fljóta svona með öldunum áður en þær brotna, við erum að tala um að maður fór svona 3 metra yfir sjávarmál, þetta voru stórar öldur get ég sagt ykkur. Svo allt í einu kom það, við höfðum flotið of nálægt landi, ég leit við og sá bara þessa brjáluðu öldu nálgast mig á ógnarhraða og var að skella á mér.....ég rétt náði samt að draga að mér andann áður en ég lenti í henni. Ég var að kafna þarna undir öldunni, vissi ekki hvað sneri upp né niður, bikiníið var farið niður á ökla en mér var þokkalega sama, vildi bara fá loft. Þegar ég loksins komst upp til að anda....kemur önnur og búmmmmm.....þá hélt ég að þetta væri nú bara búið...en ég komst einhvernveginn skríðandi í land, örmagna eftir þetta. Ég skalf svo í góðan klukkutíma eftir þetta bara úr sjokki(ekki kulda). Atla fannst þetta hins vegar alveg geðveikt. Held ég geri þetta ekki aftur í svona miklum öldum. Þetta var virkilega sjokkerandi.
Um kvöldið borðuðum við grillaðan lax hjá Bob og Unni og spjölluðum. Gott kvöld.
Á sunnudaginn fórum við Halldór að horfa á Atla keppa í fótbolta með einhverjum lúðum. Einhvern veginn tókst honum að finna hér hóp af körlum (af öllum stærðum og gerðum) sem æfa bolta saman og keppa við aðra lúða af og til okkur Halldóri til mikillar gremju. Þetta var leiðinlegasti fótboltaleikur sem ég hef augum litið og hafa þeir samt flest allir sem ég hef séð verið leiðinlegir. Það helsta sem hann fær út úr þessu eru meiðsli og sár...það er alla veganna það sem við Halldór fáum að heyra um. Nú tognaði hann í náranum, hælskinnið fór af honum á öðrum fætinum auk annarra smására sem hann hlaut. Skilur þetta einhver?
Seinnipartinn fórum við á ströndina og hittum þar nokkra frá Össuri. Þar grilluðum við saman, lékum okkur og horfðum á sólarlagið. Þetta er það sem California snýst um.
Ég byrjaði svo í graphic design prógraminu mínu áðan og var bara rosalega gaman. Leist hrikalega vel á kennarann og bara skólann. Þetta á bara eftir að verða gaman. Svo veit ég ekkert hvað ég geri í haust. Er að fara í viðtal upp í California State LA vegna mastersprógramsins. Kemur svo bara í ljós hvernig það fer.
Jæja, held þetta sé gott í bili, þið megið alveg skrifa mér fréttir af ykkur, annað hvort í meili eða með því að skrifa comment. Finnst ég farin að heyra minna og minna í fólki!
Ps. komnar nýjar myndir undir lífið hér úti.

4 Comments:
Jæja ástin min...ég get ekki látið þessi skrif þín vera svona án kommenta í fleiri daga! Mér finnst allavegann alltaf jafn gaman að lesa nýja pósta og sjá nýjar myndir...ég er bara eiginlega að kynnast þér á nýtt í gegnum netið. Skemmtilegt. Þú færð A+ fyrir content!
Atli
By
Nafnlaus, at 8:12 e.h.
Hæ pæ, ég bara varla trúi þessu með Dóra dunk! Frábært hjá stráknum. Kysstu hann stóran koss frá okkur Vigga fyrir árangurinn. Og hei - svo langar mig að fara að fá myndir innan úr húsinu með húsgögnunum inni!
By
Erla, at 3:26 f.h.
Frábær árangur hjá Halldóri ;) Þetta er alltaf mikill áfangi hjá stuttu fólki.
Það er brostið á sumar á Íslandi, hitastigið komið upp fyrir 10 gráðurnar. Kominn nýr forsetaframbjóðandi, Baldur eitthvað, allt vitlaust í pólítíkinni svo að það er eiginlega allt eins og venjulega :)
Bið að heilsa
Védís
By
Nafnlaus, at 8:25 f.h.
Hei þetta eru engar smá fréttir ! Dóri orðinn duddu laus!! til hamingju, er sjálf alltaf að stinga þessu að dóttur minni og gengur frekar hægt er alltaf að segja sjálfri mér að nú verði þetta að fara að gerast en þetta er miklu erfiðara en ég hélt, kannski vegna þess að það er stundum SVO þægilegt að stinga tappanum upp í ... En nú hefur Dóri sett gott fordæmi sem við Dísa verðum bara að fylgja eftir. Er búin að vera að segja henni í nokkuð langan tíma að það sé alveg bannað að vera með duddur í nýja húsinu, og nú er að koma að því að við flytjum svo ég verð að standa við þetta!! Ætli við gefum ekki bara öndunum okkar snuð engir baby hvalir hér !! Annars erum við nú á leiðinni til ykkar eftir mánuð þannig að ef allt klikkar getur Atli þá reddað bátsferð?
Annars allt fínt að frétta héðan, ágætis veður um hvítasunnuna, er að fljúga alla helgina en nota frítímann á milli til að pakka. Við mæðgur orðnar mjög spenntar að flytja í Gbæ og auðvitað líka að koma til ykkar í júlí!!
Knús og kossar
Soffa og Dísa
By
Nafnlaus, at 4:22 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home