Af nógu er að taka....
...því það er svo langt síðan ég skrifaði síðast, vika eða svo.
Ég byrjaði í graphic design áföngunum mínum í síðustu viku og skemmti ég mér konunglea við það sem við erum að læra. Þetta eru auðvitað alveg grunn áfangar í faginu, við erum rétt að byrja að læra á forritin öll sömul sem eru notið í grafískri hönnun, vinnuferlið við hönnun og annað. Mér finnst þetta samt verulega gaman. Svo heldur þetta bara svona áfram næstu 5 vikurnar.
Ég tók ákvörðun um helgina að afþakka MS námið sem mér stóð til boða að fara í. Ég sótti sem sé um tvö MS prógröm en komst ekki í það sem mig langaði í. Þetta sem mér stóð til boða var svona til vara hjá mér en það var bara svo margt undir því sem ég hafði ekki áhuga á. Þar sem ég var ekki 100% sátt við prógramið, tók ég þá ákvörðun að fara ekki útí þetta (búin að hugsa og dreyma þetta út í gegn). Þetta kostar tíma og mikla peninga og tel ég öllu þessu betur varið í eitthvað sem ég er sátt við og finnst skemmtilegt. Þetta var ekki það sem ég var að leita að þannig að nú er bara að reyna að fá sér vinnu. Verð að fara að vinna í þeim pakkanum á næstunni.
Á fimmtudaginn var fórum við Atli, auk annarra foreldrar, á foreldrakvöld í Montessori þar sem krakkarnir sýndu foreldrum sínum hvað þeir eru nú að gera þarna öllum stundum. Þetta var mjög skemmtilegt, ótrúlegt að sjá hvað það eru margskonar verkefni í gangi þarna hjá þeim. Þau eru með vísindahorn þarn sem þau læra um þyngdir og annað (allt gert konkret þannig að þau sjá þetta með eigin augum, t.d. með vog), listahorn, stafahorn, heimsálfuhorn, dýrahorn, vatnshorn, fínhreyfingahorn, bókahorn og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var endalaust og ótrúlega spennandi. Kennararnir segja að Halldóri þykji vísindahornið frekar mikið spennandi! Einnig finnst alltaf voða gaman að fikta í eldfjallinu. Þá setur hann matarsóta ofaní þykjustunni eldfjall og svo setur hann edik með dropateljara í þetta þannig að eldfjallið fer að gjósa. Allar kennslustofurnar hafa svo sitt gæludýr. Þau eru svo með chinchilla sem heitir Roxy (þetta er eitthvað afbrigði af kanínu) sem þau sjá um að klappa og fóðra. Aðrar deildir eru með skjaldböku, eðlu og krabba. (Sjá myndir í myndaalbúminu frá kvöldinu).
Ad aefa finhreyfingarnar pinu pons
Helgin var stórgóð. Gerðum okkur dagamun og ákváðum að fara í Universal Studios upp í LA á laugardaginn. Maður fer ekki á hverjum degi í svona ferðir, þetta er peningaplokk sem hefst á bílastæðinu og lýkur ekki fyrr en þú lætur þig hverfa. Miðinn inná svæðið kostaði um 50 dollara á kjaft, bílastæðið um 10 dollara, leiga á kerru 10 dollara. Svo voru þarna mörg þúsund manns (mesta ferðahelgi ársins) þannig að maður gat ekki þverfótað þarna fyrir fólki. Raðir alls staðar, bið, bið, bið. Okkur tókst samt að sjá ansi margt. Við fórum þarna rúnt með lest um studio-svæðið þar sem myndirnar og þættirnir eru teknir upp; gerviborgir, í evrópskum stíl, kúrekastíl, New York stíl og svona mætti lengi telja. Svo eru öll settin þarna fyrir þættina sem breytast ekkert, t.d. settið fyrir Matlock (hver man ekki eftir honum blessuðum), Psycho myndina, bankann fræga í Back to the future og fleira. Í túrnum fengum við að sjá og lenda í ýmsum brellum. Hákarlinn frægi í Jaws kom t.d og réðs á okkur í eitt skiptið með tilheyrandi, lentum í árás frá hrapandi þyrlu, lentum í jarðskjálfta á járnbrautarstöð og fleira. Halldór Andri var með hjartað í buxunum allan tímann og upplifði sjálfan sig í bráðri lífshættu. Hann var bara skemmtiatriði útaf fyrir sig greyjið.
Okkur tókst líka að sjá frábært leikið Spiderman show þar sem Green Goblin (vondi maðurinn) reynir að koma Spiderman fyrir kattarnef. Svo sáum við þrívíddarútgáfu af Shrek klippu í bíósal sem var alveg magnað. Sætin hreyfðust, þegar einhver hnerraði frussaðist á mann vatn og í eitt skiptið duttu kóngulær á gólfið (í myndinni þ.e.s) og þá kom blástur á lappirnar á manni. Þetta var alveg magnað og Halldór Andri var sem áður með hjartað í brókinni. Svo var eitthvað fleira sem við sáum þarna en þetta stóð uppúr. Það almagnaðasta hins vegar var að þegar við vorum komin með nóg um kvöldið og vorum á leið út, rakst Atli á stelpu sem var með honum í Duke. Hún fattaði strax hver hann var eftir að Atli stoppaði hana og hún segir...you can´t believe who I am with....í ljós kom að hún var þarna með tveimur bestu vinum hans Atla frá Duke. Við fórum með henni inn aftur að hitta þá og það voru auðvita þvílíkir fangaðafundir. Faðmlög í bak og fyrir og ég veit ekki hvað og hvað. Þessir krakkar búa í LA þannig að við auðvitað höldum sambandi og hittum þau aftur síðar.
Med Green Goblin ur Spiderman
Dagurinn í dag var svo bara tekinn rólega á ströndinni, frábært veður og róleg alda. Grilluðum svo bara í kvöld og höfðumm það nice.

2 Comments:
Jæja nú þarftu að kenna mér að setja myndirnar svona inn á milli textans...!
By
Erla, at 6:14 f.h.
Hæ,
til hamningju með brúðkaupsafmælið - minnti reyndar að það hafi verið í fyrra sem þið giftuð ykkur, svona líður tíminn hratt. Við Jónas áttum 12 ára afmæli, ég man það með því að taka aldurinn hennar SD og draga tvö ár frá....
Héðan er allt gott að frétta, ætlum til Wolfgangs vínbónda í Þýskalandi um helgina, Juan's í Barcelona helgina eftir og helgina þar á eftir kemur mamma í heimsókn með ömmu og afa.
Kveðja, Lilja
By
Nafnlaus, at 7:37 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home