California here we come...again

mánudagur, júní 07, 2004

17. júní partýið

17. júní hátíð Íslendingafélagsins í LA var haldin í gær, sunnudag, og skelltum við okkur uppeftir ásamt Íslendingunum hjá Össuri. Þetta var haldið hjá Sigurjóni Sighvattsyni og Siggu konunni hans. Allt í allt hafa kannski um 100 manns mætt. Þarna voru grillaðar SS pylsur með öllu tilheyrandi, hamborgarar og svo var þetta æðislega eftirréttaborð. Þetta fór að mestu fram í garðinum hjá þeim þar sem búið var að koma upp borðum og stólum út um allt. Krakkarnir léku sér svo í sundlauginni allan tímann en búið var að leigja skemmtikraft sem sat á sundlaugarbakkanum og skemmti krökkunum. Að auki var þarna sundlaugavörður sem passaði upp á krakkana (ásamt öllum foreldrunum auðvitað). Eina liðið sem ég þekkti þarna voru Gunni og Solla frá Santa Monica. Við hittum reyndar ungt fólk þarna með krakka á sama aldri og Halldór sem var nýflutt til San Diego sem við ætlum að hafa samband við. Við stoppuðum þarna í rúma tvo tíma og keyrðum svo aftur heim (rúmlega klukkutíma keyrsla). Halldór og Atli fóru í grill með nokkrum strákum um kvöldið og horfðu á körfuboltaleik en ég fór með nokkrum stelpum í bíó. Frekar fínt.

Næstu helgi verður svo farið í útilegu með fullt af fólki þar sem liðið ætlar að skella sér í river rafting. Við ætlum auðvitað að skella okkur með, lagt af stað á laugardaginn og komið heim seint á sunnudag. Hlakka mjög til að fara í tjaldútilegu í Cali!

Setti nokkrar nýjar myndir inn á vefinn af field trippinu hjá Halldóri og frá 17. júní parýinu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home