Það er misjafnt hvað á fólk er lagt!
Helgin var með leiðinlegra móti þar sem Atli var í Kanada frá miðvikudegi og kom heim um hádegisbil í gær. Með leiðinlgra móti á ég við að það var ekki sama stuðið á okkur og hefur verið síðustu helgar. Bob og Unnur buðu okkur Halldóri í morgunmat á laugardaginn, Bob þvoði bílinn minn með Halldóri og Unnur pússaði hringana mína. Svona á þetta að vera! Ég og Halldór hengum hjá þeim til að ganga fjögur held ég. Svo kíkti Unnur á okkur um kvöldið, gláptum á sjónvarpið og pökkuðum inn þakkargjöfum fyrir brúðkaupið hennar heima á Íslandi. Þetta var sem sé gert um helgina.....annar tími fór bara í sjónvarpsgláp og hangs.
Það er frí hjá mér í skólanum í dag og á morgun þannig að ég ætla að reyna að nota tímann í að taka hér til, þvo þvott og gera fínt áður en tengdapabbi kemur frá Danmörku á miðvikudaginn. Hann ætlar að vera í um viku hjá okkur þannig að það verður aldeilis gaman. Svo eru Soffa vinkona og Dísa dóttir hennar að koma til okkar í frí um næstu helgi og við bíðum auðvitað öll spennt eftir að hitta þær. Halldór er svo spenntur að hann spyr mig á hverjum degi hvort Dísa sé að koma í dag. Svo eftir fríið förum við Halldór með Soffu og Dísu heim til Íslands (15. júlí) og ætlum að vera í tæpan mánuð (förum aftur heim 13. ágúst).
Það verður nóg að gera hjá okkur heima við að heimsækja ættinga og vini. Það er heill skari af nýjum börnum sem við þurfum að fara að skoða og svo verður það annað eins þegar við komum heim um jólin. Þvílík framleiðsla í gangi. Ég er búin að vera að þræða barnafatabúðirnar hér á útsölunum til að gera góð kaup því þetta er svo mikið að gjöfum sem ég þarf að kaupa! Annars eru nokkrir vinir okkar að eiga sín önnur börn og allir tala þeir um hversu rosalegur munur þetta er frá því að eiga eitt barn. Þetta sé bara gríðaleg veldisaukning. Spurning um að bíða í smá tíma í viðbót!
Verð nú að segja ykkur eina sögu sem ég frétti frá Atla í tengslum við þessi börn. Atli talaði við vin sinn í gær sem er nýbúinn að eignast sitt annað barn og sagði að ástandið á heimilinu væri skelfilegt. Konan hans hafði gleymt að loka uppþvottavélinni í eldhúsinu og var eitthvað að stússast þar áður en hún þurfti að rjúka út. Hún snéri sér við og hljóp af stað en hljóp beint á hurðina á uppþvottavélinnni, hentist yfir hana og lenti illa á báðum olnbogum og brotnaði (sem sé á báðum). Hún er í gifsti á báðum höndum upp fyrir olnboga í fæðingarorlofi með tvo litla krakka (eldri stelpan er 2 ára) og getur auðvitað ekkert gert í 6-8 vikur. Vinurinn er því bara heima með krakka í sitthvorri hendinni, og veit ekki sitt rjúkandi ráð! Það er misjafnt hvað á fólk er lagt! Ok, það er kannski erfitt að vera með tvö smábörn en að vera karlmaður sem þarf að hugsa um konuna sína og tvo smákrakka..einn..ég veit það ekki.
Jæja, ætla að fara að byrja á hreingerningunum. Skrifið mér endilega einhverjar fréttir eða kjaftasögur.
Love
E

1 Comments:
Þú hefur greinilega ekki mikla trú á heimavinnandi karlmönnum... haha! Gott á hann. Nei, ég segi svona...
By
Erla, at 1:47 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home