What day is it today!
Maður verður alveg þokkalega ruglaður í hausnum á að vera "heimavinnandi". Ég veit aldrei hvaða dagur er, varla hvað klukkunni líður og er bara yfirleitt alveg dofin. Það er svo hlægilegt að þegar maður hefur allan tímann í heiminum til að gera hlutina....þá er alveg eins gott að gera þá bara á morgun. Maður hefur nægan tíma á morgun eins og í dag og....viti menn, það verður aldrei neitt úr neinu. Já, spáið í hvað maður getur verið ruglaður!
Tengdó komu til okkar seint í gærkvöldi. Byrjuðum daginn með að skella okkur í göngutúr á Salt Creek Beach (sörfströndin hérna). Það var ekki slæm byrjun hjá þeim að dífa tánnum aðeins í Kyrrahafið! Komum heim og bjuggum til þetta ægilega fína melónusalat (uppskrift frá Nigella, HRIKALEGA GOTT, mæli með þessu sem sumarsalati fyrir alla, jesús minn hvað þetta er gott salat) og skelltum okkur svo í laugina. Þreyta sló svo karlmennina þannig að þeir lögðu sig allir eftir átökin. Ég og Hildur ákváðum auðvitað að nýta tímann vel og skelltum okkur í spa manicure og spa pedicure fyrir 27 dollara (sem er auðvitað bara algjör djókur) og erum við alveg endurnærðar eftir þetta ævintýri.
Náði losins að horfa á þessa fínu ræmu, Kill Bill 2, og mæli ég með þessum Kill Bill myndum fyrir þá sem ekki hafa horft á þær.

2 Comments:
Uppskriftina af þessu mega góða sallati takk!! :) Erla
By
Erla, at 7:12 f.h.
Salatið góða úr Nigella (er ekki með magnið á hreinu, slumpa þetta bara).
1/2 til 1 rauðlaukur skorinn í sneiðar.
2-4 sítrónur eða lime.
Láta laukinn í skál og kreista safann yfir. Láta liggja í um 10 mín eða meðan verið er að gera salatið.
Skera kannski 1/2 vatnsmelónu í kassabita.
Fetaostur (í vatni ekki olíu), slatti.
Svartar ólífur.
Setja þrent saman í skál.
Skera ferska mintu og setja yfir.
Setja nokkuð mikið af ítölsku flötu parsly með, ekki smátt skorði, hafa það svona á stönglunum.
Hella svo lauknum út í og safanum og hræra í salatinu.
Krydda með pipar eftir smekk.
Þetta er geggjað og hefur slegið í gegn.
By
Ella, at 10:09 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home