California here we come...again

mánudagur, september 13, 2004

Hitt og þetta

Halldór koms loksins á leikskólann aftur í dag. Hann fór síðast í skólann föstudaginn 3. sept og í dag er hvað......13. sept. Öll síðasta vika var......haldið ykkur......starfsvika hjá kennurum. Já, ég er sko ekki að djóka, hér er sko ekki verið að taka sér einn dag eins og heima heldur heila viku og það til að skipuleggja starfið í vetur fyrir helmingi minni leikskóla. Heyrði ekki eina manneskju kvarta undanþessu....það eru greiniega allar mömmur heimavinnandi í þessum leikskóla! Halldór var alla vegana glaður eftir daginn, fyrsti dagur í vetrarstarfi og allir vinirnir mættir aftur í leikskólann eftir sumarfrí (nb. 3 mánuðir hjá sumum).

Við Atli skelltum okkur í bíó í fyrsta skipti síðan við fluttum út í byrjun mars (fórum reyndar að sjá SHREK með Halldór með okkur einhvern tímann). Sáum Born Supremecy....þvílíkur thriller. Ég var ánægð með hana. Það var æði að komast allt í einu í bíó! Það er svo fyndið hér að við förum svo sjaldan út á kvöldin að við keyrum nánast aldrei eftir myrkur! Það er allt öðruvísi að vera í bílnum þegar það er komið myrkur....eins og að keyra nýjan bíl því við gerum það svo sjaldna!

Atli skellti sér á ströndina með mömmu sinni og dúnknum á sunnudaginn (ég sat heima að vinna skýrslu fyrir Gallup). Veðrið var æðislegt og öldurnar voru verulega litlar...fóru á strönd sem er mjög aflíðandi lant út í sjó þannig að það var enginn undirstraumur og hún er grunn langt út og allt það. Halldór litli á lítinn kork (svona svipað eins og maður er með í sundi þegar maður lærir að synda) sem hann kallar brimbrettið sitt. Hann var víst óstöðvandi frá hádegi til 5 á þessari blessuðu strönd að láta sig fljóta með litlu öldunum á litla brimbrettinu sínu. Tók víst smá tíma að ná tækninni en þegar það kom gat hann látið sig fljóta nokkra metra. Hræðilegt að hafa misst af þessu en þetta er sem sé ströndin sem farið verður á framvegis. (Pínulitlar öldur, grunnt langt út og enginn undirstraumur þar sem ströndin er svo aflíðandi langt út í sjó).

Annars er púkinn farinn að geta synt í sundlauginni án kúta. Svo úrþví hann er búinn að fatta það að hann druknar nú ekki þegar hann rífur af sér kútana þá er major mál að fá hann til að hafa þá á sér. Vill bara æfa sig að kafa og synda. Hann passar sig verulega þegar hann er að þessu, er bara hjá bakkanum og hjá stiganum...fer ekkert langt frá þessu. Maður getur samt ekki tekið augun af honum þegar hann e r svona kútalaus auðvitað. Það er skóli hér skammt frá sem heitir Soka University sem margir frægir sundmenn hafa komið frá (Californiusundfólkið á Olympics) og eru þeir víst með sundnámskeið frá 3ja ára aldri og hafa verið að skila verulega góðum árangri. Spurning bara að fara með hann þangað í vetur!

Var annars að koma úr South Cost Plaza sem er molli hér um 30 mínútum frá. Hann er með öllu sem hugurinn girnist. Mjög flottar og fancy búðir, sá eitt sparidress auðvitað sem mig langar svo hrikalega í, sá það í DKNY....ætla að sofa á þessu en keyptir mér samt eina skyrtu í Söru.


Jæja, eru nú allir búnir að rjúka til og breyta húsbréfalánunum sínum í bankalán? Hvernig er það nú! Eru ekki líka allir að fara að stækka við sig þar sem fólk hefur aukna greiðslugetu eftir að þessi lán komu á markað? Var bara að spá í hvort stærri húsnæði væru að rjúka upp og kannski minni íbúðir að lækka? Hér í OC (Orange County), þar sem húsnæðisverð er hreint út sagt viðbjóðslega dýrt og hefur aldrei verið hærra eins og nú, er markaðurinn byrjaður að kælast. Við erum að tala um að íbúð eins og okkar heima hefði kannski selst á 425-475 þúsund dolla og reikni menn nú! Við erum að taka eftir að húsnæði er skyndilega lengur á sölu og erum líka farin að sjá lækkun í verði á húsum sem eru ekki að seljast. Sjáum til hvað gerist!



1 Comments:

  • Já það er ansi gott að skella sér í bíó af og til einhvernveginn gerist það SVO sjaldan þegar maður er með lítil börn hvort sem maður er í Cali eða á Íslandi (með allt sitt fólk nálægt!) en heldurðu ekki að ég hafi líka upplifað þetta um daginn og það meiri að segja sömu mynd og þið!! Litla Ísland greinilega ansi framalega í þessu. Verð að segja að skrif um strandarferðir hljóma ansi girnilega nú þegar haustið er að skella á með allri sinni rigningu og roki!! Enjoy it!!!
    Bkv frá okkur Dísu skvísu!!
    Soffa

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:16 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home